Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Page 18
18 DV HELGARBLAÐ LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 Mennimir hennarVölu Valgerður Matthíasdóttir er drottning sjón- varpsþátta á íslandi. Hún hefur sjaldan staðið ein á skjánum heldur haft sér til fulltingis ýmsa meðreiðarsveina sem fáir hafa enst lengi. Valgerður Matthíasdóttir er án efa einhver vinsælasta sjónvarpskona á íslandi og hefur í áranna rás stýrt mörgum afar vinsælum þátt- um og verið óhrædd við að fitja upp á því sem hafa talist nýjungar á íslenskum sjón- varpsmarkaði. Það má rekja feril Valgerðar, eða Völu Matt eins og hún er jafnan kölluð í munni alþýðu þessa lands, allar götur aftur til upphafs hins frjálsa sjónvarps á Islandi en Vala var í byrj- unarliði Stöðvar 2 þegar það umdeilda fjöl- miðlaveldi reis upp á afturlappirnar fýrir rúmum 17 árum. Þar hannaði Vala sviðs- myndir, ráðlagði um búninga, stýrði magasínþáttum og átti í rómuðu ástarsam- bandi við frumkvöðulinn sjálfan, Jón Óttar Ragnarsson. Opinskár frumkvöðull Á þessum árum voru nokkur tímarit á fs- landi að koma undir sig fótunum og það var að verða til það sem sfðan hefur stundum verið kallað einu nafni „glanstímaritin". Eitt af því sem þessi tímarit reiddu sig á meðan þessi mótunartími gekk yfir voru ítarleg við- töl við mismunandi frægt fólk þar sem fólk tjáði sig um einkalíf sitt á opinskárri hátt en áður hafði tíðkast á Islandi þótt slfkt væri orðin þrautreynd blanda í útlöndum. Vala Matt átti sinn þátt í þessari bylgju opinskárra viðtala og sumir hafa jafnvel gengið svo langt að kalla hana frumkvöðul í þessum efnum og hún mun reyndar hafa tekið undir þá sögu- skoðun í persónulegu viðtali í vinsælum spjallþætti Gísla Marteins fyrr á þessu ári. Eftir að glæstum ferli Völu á Stöð 2 lauk tók hún meðal annars við gríðarlega vinsælum þætti í Ríkissjónvarpinu sem hét Ingó og Vala og var kenndur við umsjónarmennina Ingólf Margeirsson og Völu sem tóku þar á móti fólki og spjölluðu við það á þann þægilega en persónulega hátt sem nú er nánast orðin við- tekin venja í slíkum þáttum. Endurnýjun lífdaga Vala hvarf af sjónarsviðinu, eða sjónvarps- sviðinu um tíma en þegar Skjár einn tók til starfa fyrir fjórum árum má segja að hún hafi gengið í endurnýjun lífdaganna sem sjón- varpsstjarna þegar hún hóf að sjá um þáttinn Innlit/útlit sem hefur um þriggja ára skeið verið eitt vinsælasta sjónvarpsefni landsins. Vala Matt blandar þar saman óumdeilanleg- um sjónvarpstöfrum sínum og fagmennsku á því sviði við þekkingu sína á sviði innanhúss- arkitektúrs og hönnunar en upphaflega Drottningln: Vala Matt hefur stýrt Innlit/útlit í þrjú ár og á þeim tíma hafa aðstoðarmenn hennar verið sex talsins. menntaði Valgerður sig einmitt á því sviði og það kemur því enginn að tómum kofunum hjá Valgerði þegar hönnun er annars vegar. Nú á þessu hausti er þátturinn enn kominn af stað og enn virðist enginn hörgull á lands- mönnum sem vilja opna heimili sín fyrir Val- gerði og aðstoðarmönnum hennar og leyfa okkur hinum að fylgjast með breytingum og endurbótum eða einfaldlega hleypa okkur al- múganum inn í glæsihýsi sem væru okkur annars lokuð. Hver er með þér? En það eru einmitt aðstoðarmenn Valgerð- ar sem eru tilefni þessa greinarstúfs. Nú ber- ast þau tíðindi úr sjónvarpsheimum að henni hafi bæst nýr skjaldsveinn í raðir þeirra sem fyrir voru og er þar á ferð Helgi Pétursson, einn af forsprökkum Ríó tríósins, stjórnmála- maður og fyrrum fjölmiðlamaður. Með þessu má segja að Helgi, sem hefur víða komið við í fjölmiðlum á ferli sínum, sé að loka ákveðn- um hring því á árdögum Stöðvar 2 sátu hann og Vala einmitt hlið við hlið á skjánum og stýrðu nokkurs konar magasínþætti, ekki ólíkum því íslandi í dag sem enn er á skján- um á Stöð 2. Áður hefur verið nefndur til sögu meðreið- arsveinn Völu, Ingólfur Margeirsson sem stýrði með henni vinsælum sjónvarpsþætti á RÚV. Fyrsti aðstoðarmaður Völu í Innlit/útlit var enginn annar en Þórhallur Gunnarsson sem áður hafði reynt fyrir sér á sjónvarpsskjánum við hlið Súsönnu Svavarsdóttur í þætti sem hét Titringur og var á RÚV og olli reyndar nokkrum titringi þótt sú saga verði ekki rakin hér. Á hæla Þórhalli kom svo Fjalar Sigurðsson sem hafði mest starfað í útvarpinu á undan því og má segja að hafi átt frumraun sína á skjánum við hlið Völu. Hvorugur þeirra Þór- halls né Fjalars náði virkilegu flugi við hlið drottningarinnar en það er skemmtileg til- viljun að þeir náðu báðir að nýta starfið sem stökkpall til frekari afreka á skjánum. í dag er Þórhallur annar umsjónarmanna Islands í dag og var hækkaður í tign úr Morgunsjón- varpinu en Fjalar tók sæti hans þar. Með þrjá til reiðar Næstur í röð aðstoðarmanna Valgerðar í þættinum var svo hinn orðhagi og málglaði Arthúr Björgvin Bollason sem kom í ljós að hafði einlægan áhuga á húsbúnaði og inn- réttingum. Hann varð þó ekki langlífur í starfi og varð að víkja fyrir konungi aðstoðarmann- anna, Friðriki Weisshappel. Friðrik hefur, öf- ugt við fyrirennara sína, orðið þaulsætinn í starfi enda hefur hann faglegan grunn að byggja á líkt og Vala. Friðrik virðist því vera kominn til þess að vera. Síðastliðinn vetur bættist síðan Völu enn

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.