Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.2003, Page 35
LAUGARDAGUR 27. SEPTEMBER 2003 DV HELGARBLAÐ 47
Heimsmethafar f lauslæti: Samkvæmt alþjóðlegri könnun sem Durex-smokkaframleiðandinn gerði eru (slendingar
fremstir þjóða í einnar nætur kynnum. 71% (slendinga sagðist hafa sofið hjá einhverjum sem þeir þekktu ekki neitt.
Þetta er í fyrsta sinn sem ísland er tekið með og líklega hefur hlutfall ungs fólks í könnuninni verið mjög hátt.
síst um slíka fjötra en þar höfðu aðeins þrjú
prósent aðspurðra tekið þátt í slíku.
Djarfur undirfatnaður sem nýtur mikilla
vinsælda í verslunum með hjálpartæki hefur
komið við sögu hjá 28% aðspurðra alls en
46% íslendinga. Þar hafa Finnar og Spánverj-
ar nokkra sérstöðu en 51% þátttakenda þar
höfðu reynt æsandi fatnað af þessu tagi.
Kynæsandi starf?
Það var líka spurt hvað fólki þætti æsandi
starfsgrein af þeim sem í boði eru og það
kemur ef til ekki á óvart að fyrirsætustarfið
fannst flestum vera mest hrífandi. Læknar og
hjúkrunarkonur koma mjög sterkt inn en
einnig slökkviliðsmenn, fótboltamenn og
flugfreyjur. Þarna glittir sennilega í áhuga
margra á einkennisbúningum af ýmsu tagi
en hvíti sloppurinn er áreiðanlega það sem
gerir hjúkrunarkonustarfið sjarmerandi frek-
ar en mælirinn.
Margar starfsgreinar voru nefndar og má
nefna að sú starfsgrein sem fékk fæst stig en
var þó nefnd voru lögfræðingar sem sitja eig-
inlega á botninum í þessum efnum en aðeins
4% finnst það sjarmerandi starf.
Það var einnig spurt um sexí þjóðerni og
þar sitja Brasilíumenn á toppnum en Amer-
íkanar koma næstir þeim. Meira en helming-
ur íslendinganna kaus sjálfa sig í þessum efn-
um sem er 29% meira en nágrannaþjóðirnar
gerðu.
Hver er mest sexí?
Það var spurt um hvem fólk teldi búa yfir
mestum kynþokka. Það var fótboltamaður-
inn David Beckham sem sigraði í því kjöri en
20% þátttakenda töldu hann kynþokkafyllsta
karlmanninn. Hann fékk flest stig í Víetnam,
Singapore og Taílandi en fæst í Bandaríkjun-
um en þar mun hann reyndar vera nær
óþekktur. íslendingar vom ekki sammála
þessu því þeir töldu Vin Diesel búa yfir mest-
um kynþokka allra karlmanna.
í kvennaflokki sigraði Jennifer Lopez en
16% þátttakenda hrifust mest af henni. Hún,
eins og Beckham fékk mjög mikið fylgi í lönd-
um eins og Víetnam og fleiri Asíulöndum en
mun minna í sínu heimalandi.
íslendingar gengu ekki alveg í takt við
meirihlutann í þessum efnum því þeir töldu
leikkonuna Halle Berry skara fram úr og 24%
Halle Benry: Þetta er konan sem íslendingar töldu kyn-
þokkafyllsta allra.
merktu við hana sem númer eitt. Söngkonan
Kylie Minogue kom næst á eftir Berry í kynór-
um íslensku þjóðarinnar.
Ertu þá ánægð?
Það var einnig spurt þeirrar lykilspurning-
ar hvort fólk væri ánægt eða sátt við kynlíf sitt
og að meðaltali sögðust 73% aðspurðra vera
það. Taílendingar reyndust vera ánægðastir
allra en 92% þeirra sögðust vera ánægðir.
Rússar voru einna ósáttastir við kynlífið en
aðeins 59% sögðust vera ánægðir með það.
íslendingar reyndust vera tiltölulega kátir
með ástandið en 80% þeirra sem svöruðu
sögðust vera ánægðir með kynlíf sitt. Hvern-
ig það svo rímar við 42% sem gera sér upp
fullnægingar liggur ef til vill ekki í augum
uppi. polli&dv.is^
sími 553 3366
www.oo.is