Dagblaðið - 23.01.1980, Page 1
i
I
)
6. ARG: — MIÐVIKUDAGUR 23. JAN. 1980 — 19. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AIJGI.ÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 1 l.-AÐAI.SÍMI 2702?.
i
Þungaskattur og
kílómetragjald
hækkað umfram
lagaheimildir?
— Ihtir dísilbílar orðnir dýrari í rekstrí en
samsvarandi bensínknúnir bílar
— sjá bls. 8
TVÆR 0L0GLEG-
AR LEIGUMIÐL-
ANIR STARFANDI
— óheimiR samkvæmt lögum að taka fé af fólki í húsnæðisleit
„Við höfum kært þetta fyrirtæki
oftar en einu sinni bæði fyrir lögreglu
og félagsmálaráðuneytinu, en ekkert
virðist vera að gert,” sagði Jón frá
Pálmholti, formaður Leigjendasanr-
takanna, í samtali við DB.
Eins og skýrt var frá í DB í gær er
nú starfrækt að Hverfisgötu 76 leigu-
miðlun sem ekki hefur fengið löggild-
ingu frá lögreglustjóra. Einnig hefur
þar verið starfrækt atvinnumiðlun
sem samkvæmt lögum í landinu er
óheimil.
,,Það hefur komið til okkar fjöldi
fólks og kvartað undan leigumiðlun-
inni að Hverfisgötu 76 og við höfum i
höndunum Ijósrit af kvittunum þessa
fólks. Samkvæmt lögum er bannað
að taka fé af fólki í húsnæðisleit. Við
vitum nú um tvær leigumiðlanir í
borginni sem starfa án löggildingar
og taka fé af fólki. Er það allt upp i
fimmtán þúsund krónur sem fólk er
látið greiða,” sagði Jón frá Pálm-
holti.
- ELA
Rannsóknariögreglan
kannar nú málið
„l.ögreglan mun gera sinar ráð-
stafanir þannig að engin ólögleg
leigumiðlun verði starfrækt hér,”
sagði William Möller, fulltrúi lög-
reglustjóra, í samtali við DB i morg-
un.
,,Auk þess er Rannsóknarlögregla
ríkisins að athuga hvaðajtarfsemi fer
fram á þessum stað. Við fengum
kæru frá Leigjendasamtökunum um
ólöglega leigumiðlun. Stuttu seinna
var sótt um löggildingu frá lögmanni.
Það þarf að fullnægja ýmsum skil-
yrðum til að reka leigumiðlun og
leyfið var til athugunar bæði hér og
hjá ráðuneytinu,” sagði William enn-
fremur.
,,Nú hefur leyfið hins vegar verið
afturkallað frá lögmanninum. Rann-
sóknarlögregla rikisins er komin í
málið og mun athuga það t,elur ”ELA
Hörkuárekstur í Hafnarfirdi
— þrír á slysadeild
Þrir menn voru fluttir í sjúkrahús í
nótt frá árekstursstað í Hafnarfirði.
Hlutu allir andlits- og höfuðmeiðsl en
ekki verulega alvarleg, að því er talið
er.
Áreksturinn varð á fyrsta timanum í
nótt á mótum Hjallabrautar og Reykja-
víkurvegar. Voru báðir bilarnir á
Reykjavikurvegi og óku í gagnstæðar
áttir. Sá er frá Hafnarfirði kom sveigði
á gatnamótunum inn á Hjallabraut og i
veg fyrir hinn. Áreksturinn varð geysi-
Benedikt Gröndal með forseta Islands i morgun.
DB-mynd Hörður.
Benedikt út í óvissuna
,,Ég mun byrja á að óska eftir fundi
með formönnum allra hinna flokk-
anna, einum í einu. Fyrirfram er því
ekkert ákveðið um fyrirkomulag
viðræðnanna,” sagði Benedikt
Gröndal forsætisráðherra eftir þriggja
stundarfjórðunga fund með forseta í
morgun. Hann fól Benedikt umboð til
myndunar meirihlutastjórnar.
„Forseti setti mér engin tímatak-
mörk. Hann vonast þó til þess, eins og
fleiri, að þetta gangi fljótt fyrir sig.”
Benedikt vildi ekkert láta hafa eftir
sér um þau ummæli Svavars Gests-
sonar í gær, að fullreynt væri í bili að
mynda ríkisstjórn Alþýðuflokks,
Framsóknarflokks og Alþýðubanda-
lags. -ARH.
harður og valt annar bíllinn. Báðir bíl-
arnir eru mjög illa farnir. Ökumaður
bilsins sem frá Hafnarfirði kom var
með nokkurra klukkustunda gamalt
bilpróf.
- A.Sl.
Stjómmálamerai í morgun:
Aðeins „Stef-
am'a” eftír
annars utanþingsstjóm
„Mér sýnist fullreynt að Alþýðu-
bandalagið ætlar sér ekki í rikis-
stjórn. Nú er aðeins eftir mögu-
leikinn á „Stefaníu”, stjórn Sjálf-
stæðis-, Framsóknar- og Alþýðu-
flokks. Annars sé ég ekki annað en
utanþingsstjórn,” sagði einn forystu-
manna Sjálfstæðisflokksins i
morgun. Aðrir tóku undir þá
skoðun.
Þessi sjálfstæðismaður taldi sæmi-
lega góða möguleika á myndun
„Stefaniu”. Það væri ,,á blaði”
hvað sameinaði þessa þrjá flokka. Þó
væri óvarlegt að fullyrða neitt utn
málið að svo stöddu.
Benedikt Gröndal hyggst leggja til-
lögur i efnahagsmálum fyrir fiokk-
ana alla. Gert er ráð fyrir að tillög-
urnar verði með þeim hætti að
Alþýðubandalagið hafni þeim fljót-
lega.
Verði „Stefanía” mynduð, er alls
óvist að Benedikt verði forsælisráð-
herra. Sjálfstæðis- og framsóknar-
menn hafa ýmislegt við það að
athuga.
-HH