Dagblaðið - 23.01.1980, Qupperneq 6
I
6
.
Hundruð þúsunda fbúa f Afganistan hafa flúið til nágrannarfkisins Pakistan.
Myndin sýnir flutningabifreiðir hlaðnar fólki á leið þangað.
□lefu féllu í
San Salvador
Að minnsta kosti ellefu féllu og
þrjátiu særðust i óeirðum i Mið-
Ameríkuríkinu E1 Salvador i gær-
kvöldi. Varð þetta þegar hópi vinstri
manna á mótmælagöngu lenti saman
við öryggislögreglu landsins.
Sjónarvottar segja að upphaf
óeirðanna hafi verið i höfuðborginni
San Salvador við þjóðarhöllina. Þar
var hópur námsmanna að skrifa ýmis
slagorð á veggi er skotbardagar hóf-
ust. Að sögn talsmanna öryggislög-
reglunnar hóf einn úr þeirra liópi
skothríð þegar hann taldi að einn
námsmannanna væri að koma fyrir
sprengju.
Átta lik fallinna fundust í anddyri
höfuðdómkirkju borgarinnar. Þau
voru borin þangað af námsmönnun-
um. Aðgerðir þeirra voru ætlaðar til
að lýsa andstöðu við herstjórnina I
landinu.
Ástandið i E1 Salvador hefur verið
mjög ótryggt um langt skeið. Þykir
líklegast að þar verði næsta uppreisn
i svipuðum dúr og í nágrannarikinu
Niearagua.
Washington:
Þingið stöðvar
hunguraðstoð
Deila í fulltrúadeild bandariska
þingsins hefur nú um nokkuð skeið
komið í veg fyrir að nokkrar fátækustu
þjóðir hetnis fái fjárhagslega aðstoð frá
Alþjóðabankanum. Nemur þessi upp-
hæð að sögn talsmanna bankans 400
milljónum dollara.
Ríkin sem ættu að fá þessa peninga
cru Pakistan, Kenya, og Bangladesh.
Að sögn sérfræðinga i Washington
hefur nú verið settur sérstakur kraftur I
að tryggja aðstoð við tvö fyrstnefndu
löndin vegna ihlutunar Sovétríkjanna í
Afganistan. Bandaríkjastjórn mun
hafa hug á að koma sér upp herstöðv-
unt í báðunt þessum ríkjunt, til að
styrkja stöðu sína í Suðvestur-Asíu.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 23. JANÚAR 1980.
GULUÐ HRAPAR
í670 DOLLARA
Gullverð hrapaði í verði á alþjóð-
legum mörkuðum í gærkvöldi. í
Hong Kong datt verðið niður um 164
dollara og var 670 dollarar er gull-
markaðnum var lokað. Fylgdi hrapið
I Hong Kong í kjölfar ört lækkandi
gullverðs á mörkuðum í London og
New York.
Hæst komst verðið í gær I Hong
Kong í 834 dollara hver únsa. í New
York var verðið á gulli orðið 678.5
dollarar hver únsa er markaðnum var
lokað og hafði þá lækkað um 144
dollara frá því að lokað var á
mánudag. í London var verðið orðið
690 dollarar er lokað var, en var síð-
degis 737.5 dollarar hver únsa.
Sérfræðingar voru ekki á eitt sáttir
I gær, hve neðarlega gullverðið færi.
Einn gullkaupmaðurinn sagði að
vegna ótta út af ástandinu i Íran og
Afganistan hefði gullverðið rokið
óeðlilega hátt upp og hefði það
aðeins verið byggt á lofti. En þrátt
fyrir verðfallið töldu margir gull-
kaupmenn gullið enn öruggara en
hina ýmsu gjaldmiðla. Slík væri
óvissan i heimsmálum.
Verðfallið nú kemur i kjölfar stöð-
ugra hækkana undanfarnar þrjár
vikur og komst verðið hæst í 875
dollara hver únsa í New York á
mánudag. Orðrómur gekk i gær um
að bandarísk bankayfirvöld myndu
grípa inn í og „kæla markaðinn”. í
kjölfar lækkunar gullverðs styrktist
staða dollarans gagnvart öðrum
gjaldmiðlum.
Verð á silfri, kopar, áli og nikkel
féll einnig I gær í kjölfar gullverðs-
lækkunarinnar.
Hagnaður Norðmanna af olíunni i Norðursjónum hefur aukizt mikið jafnhliða sihækkuðu verði á henni. Samkvæmt fregnum
frá Noregi hefur rikisstjórnin þar hækkað öll framleiðslugjöld vegna þessa. Myndin er frá vinnslusvæði Philipsfyrirtækisins.
Bftillinn les
skáldsögur
Fyrrum bítillinn McCartney, sem
situr nú i gæzluvarðhaldi i Tókíó
vegna ákæru fyrir að hafa smyglað
220 grömmum af hassi inn til Japan,
eyðir stundunum við að lesa visinda-
skáldsögur að sögn eiginkonu hans,
Lindu.
Hún fékk leyfi til að heimsækja
eiginmann sinn í gær og dveljast hjá
honum i þrjátíu mínútur. „Ég lét
hann hafa heilmikið af bókum, aðal-
lega vísindaskáldsögum,” sagði hún
við fréttamenn I gærkvöldi. „Hann
getur þá dreift huganum en þeir hafa
ekki leyft honum að hafa gítarinn
sinn eða segulbandið í fangaklefan-
um.”
McCartney var handtekinn á
Tókíóflugvelli síðastliðinn miðviku-
dag og fannst hass i fórum hans.
Erindið til Japan var að halda ellefu
hljómleika með hljómsveit hans,
Wings. Öllum slíkum ráðagerðum
hefur nú verið kastað fyrir róða.
Búið var að selja fyrirfram unt það
bil eitt hundrað þúsund miða á
hljómleikana.
220 grömmin af hassi ætla aö veröa
afdrifarík fyrir Paul McCartney, sem
enn situr í fangelsi í Tókíó.
Ástralía
fylgjandi
banni á
ólympíufara
Malcolm Fraser forsætisráðherra
Ástralíu lýsti í gær yfir stuðningi við til-
lögur Jimmy Carters Bandaríkjaforseta
um að ríki heims sniðgangi ólympíu-
leikana í Moskvu á sumri komanda
vegna íhlutunar Sovétrikjanna i Afgan-
istan. Aðrir vestrænir þjóðarleiðtogar
hafa látið málið kyrrt liggja að undan-
tekinni Margréti Thatcher, forsætis-
ráðherra Bretlands.
Fregnir frá Peking hernta að ráða-
menn þar séu að hugleiða að hætta við
að senda sína iþróttamenn. Ólympiu-
leikarnir i Moskvu verða hinir fyrstu
sem Kínverjar sækja eftir að Mao og
fylgismenn hans komust til valda í
Kína. Áður voru það iþróttamenn frá
Taiwan, sem kepptu fyrir hönd Kina á
leikunum.