Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1975, Blaðsíða 79
við fyrri reynslu. Frekari rannsóknum verður haldið áfram,
en ofangreindar niðurstöður lofa góðu um notagildi
svampanna.
Við hérlendar aðstæður eru sauðfjársæðingar mjög mikil-
vægur þáttur í kynbótastarfinu, og með þeim er unnt að
flytja eiginleika úrvalsgripa á milfi fjárskiptasvæða og lands-
hluta. Samstilling gangmála gæti haft sérstakt gildi í sam-
bandi við sæðingarnar. Með því móti væri hægt að velja
bestu ærnar úr hverri einstakri hjörð og láta síðan sæða þær
á fyrirfram ákveðnum dögum eftir áætfunum sæðingastöðv-
anna. Að geta valið ær í sæðingarnar myndi að vonum
stuðla mjög að eflingu kynbótastarfsins, og þyrfti slíkt úr-
val hefst að vera í nánum tengslum við skýrsluhald sauð-
fjárræktarfélaganna, og hvað skipulagi sæðinganna viðvík-
ur yrði samstilling trúlega til mikils hagræðis. Á svipaðan
hátt gæti samstilling gangmála ánna verið mjög gagnleg,
þar sem fjárræktarfélagshrútar eru fluttir á milli bæja á
fengitímanum.
Athuganir á Hvanneyri benda einnig tii þess, að samstill-
ing gangmála gæti orðið til veruiegs hagræðis í sambandi
við notkun frjósemishormóna (PMS), en þeir hafa dálítið
verið notaðir hérlendis um árabil, eins og getið var um hér
að framan. Taka mætti frá ófrjósömustu ærnar (sjaldan eða
aldrei tvílembdar), samstilla gangmál þeirra með svömp-
um og innsprauta þær með PMS um leið og svamparnir
væru teknir úr þeim. Síðan yrði þeim haidið tveim dögum
síðar.
Varla hefðu bændur hag af samstillingu ánna almennt.
Fengitíminn er tiltölulega þröngt afmarkaður hér á landi
og ekki er ástæða til að minnka dreifingu sauðburðartíma
á vorin vegna vinnuálags. Slíkt gæti þó ef til vili verið hag-
kvæmt, þar sem stundaður er sauðfjárbúskapur í smáum
stíl, annað hvort sem aukabúgrein eða í hjáverkum, en það
fer að nokkru eftir verði svampanna.
Þess skal getið, að svamparnir hafa til þessa aðeins verið
notaðir í tilraunaskyni hér á landi, en verið er að kanna
möguleika á að flytja þá inn. Þótt tilraunirnar með notkun
83