Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.04.1997, Síða 65

Frjáls verslun - 01.04.1997, Síða 65
Hallur Helgason hefiir ærna ástæðu til að vera brosmildur. Loftkastalinn er orðinn næststærsta leikhús landsins, næst- ur á eftir Þjóðleikhúsinu. Leikhúsið er í gamla Héðinshúsinu við Seljaveg og nýtur sáralítílla opinberra styrkja. Það er rífandi gangur á Loftkastalanum og áætlanir aðstandenda hans engir loftkastalar. Hallur segist aldrei hafa sett upp sýn- ingu með tapi. Hann er einn þriggja eigenda Loftkastalans og leikstjóri A sama tíma að ári. Meðeigendur hans eru Baltasar Kormákur og Ingvar Þórðarson. FVmynd: Geir Olafsson sem hefur reyndar ekki enn allt verið greitt út. Helmingur þess er vegna nýs íslensks leikrits eftir Þorvald Þor- steinsson sem verður frumsýnt í haust. „Ég tel að við höfum bætt við leik- húsflóruna og höfðað til hóps sem fram til þessa hafði ekki sótt mikið í leikhúsin." Hvað vill Hallur segja um sambúð- ina og samstarfið við stóru leikhúsin, Þjóðleikhúsið og Borgarleikhúsið. „Þjóðleikhúsið hefur verið okkur velviljað og starfað með okkur í ákveðnum málum. Þeir búa við aðrar forsendur en við. Við getum ekkert verið að kvarta undan þvi að þetta sé ójafn leikur. Það eina, sem okkur finnst athugavert, er að samkeppnin er ekki jöfii þegar opinbert leikhús, eins og Borgarleikhúsið er að selja leikhúsmiðana á „tveir fýrir einn“ tilboðum eins og pizzastaður og undirbjóða á útleigumarkaðnum. Þeg- ar annar aðilinn nýtur ekki opinberra styrkja verður sá leikur aldrei jafn.“ Þó að hér hafi einkum verið tjallað um stóru leikhúsin tvö og Loftkastal- ann eru talsvert mörg önnur leikhús sem geta gert tilkall til þess að teljast atvinnuleikhús. Ekkert þeirra hefur þó haldið uppi starfsemi sem kemst neitt í hálfkvisti við þessi þrjú hvaða mælikvarði sem er notaður. Þarna mætti nefna Hermóð og Háðvöru í Hafnarfirði sem hefur notið mikilla vinsælda og fékk 18 milljóna króna styrk á síðasta ári, Möguleikhúsið, Frú Emilíu, P-.leikhópinn og fleiri sem hafa sett upp fleiri en eina sýningu en teljast varla halda uppi reglulegri starfsemi. Ljóst er að leikhúslífið á íslandi er að breytast. Samkeppni við stóru leik- húsin fer vaxandi, sýningar standa í auknum mæli allt árið frekar en hið hefðbundna leikár sem markast frá hausti til vors. Leikhúsin keppa oftast sín á milli um hylli áhorfenda en mörg dæmi eru um samvinnu ólíkra leik- húsa um einstök verkefiii. Þannig hef- ur Flugfélagið Loftur unnið verkefni í samvinnu við Þjóðleikhúsið sem að óreyndu mætti ætla að skilgreindi þá sem keppinaut. Það gefur ástæðu til að ætla að þessi ólíku rekstrarform listalífsins geti blómstrað hlið við hlið. EKKIÁ VÍSAN AÐ RÓA Af mörgu, sem hér kemur fram, má ljóst vera að það er áhættusöm at- vinnugrein að gera út leikhús. Samt eru stöðugt fleiri sem freista gæfunn- ar og einkum eru það söngleikir sem virðast draga að sér áhorfendur. Jesús Kristur Súperstar, Hárið og Stone Free drógu til sín gesti í tugum þús- unda og sjálfsagt finnst mörgum við hæfi að llokka Þrek og tár t Þjóðleik- húsinu sem söngleik. Fiðlarinn á þak- inu er nú á íjölum Þjóðleikhússins og stutt er síðan Saga úr Vesturbænum heillaði marga þar. Vinsældir söng- leikja eru ekki síst meðal ungs fólks sem sést best á því að skólasýningar framhaldsskólanna eru nær eingöngu söngleikir. Það er samt ekki á visan að róa því stundum falla söngleikir með bravúr og enginn eða fáir koma til að sjá dýrðina. Hér mætti nefna söngleiki eins og Sumar á Sýrlandi og Fögru veröld sem dæmi um söngleiki sem fengu mun færri áhorfendur en reikn- að var með. Um þessar mundir er verið að frumsýna í Reykjavík söngleikinn Evitu eftír Andrew Lloyd Webber. Það er P-leikhópurinn sem stendur að uppsetningunni. Söngleikurinn verð- 65
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.