Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 50

Frjáls verslun - 01.02.1998, Blaðsíða 50
SJAVARUTVEGUR Pétur Björnsson hefur búið í Hull í 16 ár og rekið fisksölufyrirtækið IsbergLtd. Hannhefur selt fisk fyrir rúma 50 milljarða. Núá hann fyrirtœkið Isfell. □ étur Björnsson ólst upp norð- ur á Raufarhöfn og hefur alltaf haft sterkar taugar til þess staðar. Þegar hann var ungur vildi hann hvergi annars staðar búa þó að örlögin síðan úthlutuðu honum öðru hlutskipti. Fyrsta þátttaka Péturs í at- vinnurekstri var þegar hann kornung- ur eignaðist hlutabréf í útgerðinni heima, í Jökli hf. á Raufarhöfn. Það var hlutur að andvirði 10 þúsunda gamalla króna en Pétur segist ekki vera viss hve mikils virði hann sé í dag. ÁSTÆÐURNAR FJÖLSKYLDULEGAR FREKAR EN VIÐSKIPTALEGAR ísberg Ltd. starfar enn í Hull og uppistaðan í umsvifum íyrirtækisins er sala á íslenskum ísfiski. Um tíma annaðist Isberg mikið sölu á frystum afurðum sérstaklega frystitogara og var um tíma með sölu fyrir 10 togara, þar á meðal alla frystitogara Samhei'ja á Akureyri. Breytingar hafa orðið á þessu og nú er enginn ffystitogari með við- skipti við Isberg Ltd. en Pétur segir að það þýði ekki að fyrirtækið sé hætt að selja frystar afurðir. „Undirstaðan í okkar rekstri þarna úti hefur alltaf verið sala á ísfiski. Hitt var íyrst og fremst viðbót. Við höfum fullan hug á að koma Isberg í slík við- skipti á ný.“ En höfðu þessar breytingar áhrif á þá ákvörðun Péturs að snúa heim til Islands alkominn? „Nei, það má segja að ástæðurnar fýrir því að ég ákvað að snúa heim aft- ur og flytja heimili okkar hingað á ný hafi fremur verið fjölskyldulegar en viðskiptalegar. Það hafði alltaf verið ætlun okkar að setjast að á íslandi og við litum ávallt á dvöl okkar ytra sem tímabundna. Við eigum fjögur börn, elsti sonurinn hefur lokið mennta- skólanámi, elsta dóttirin er í þann veg- inn að ljúka því og það styttist í að það þriðja hefji nám í menntaskóla. Eg og kona mín, Margrét Þorvaldsdóttir, erum bæði ættuð að norðan og erum bæði stúdentar frá Menntaskólanum á Akureyri og eldri börnin okkar hafa verið þar við nám. Þessir flutningar eru í rauninni til þess að halda fjöl- skyldunni saman og skapa henni raunverulegt heimili á Islandi. Hitt er svo annað mál að ég mun áfram eiga Isberg Ltd. í Hull og taka virkan þátt í rekstri þess með mínum manni á staðnum, Magnúsi Guð- mundssyni. Eg hef reiknað með að eyða að jafnaði einni viku í mánuði ytra en að öðru leyti verður stuðst við nútimasamskiptatækni.“ MEIRIAGIYTRA Pétur og Margrét eiga ijögur börn, Kristin 22 ára, Ósk 18 ára, Sunnu 14 ára og Bryndísi sem er 7 ára. Var ekkert meira vandamál að halda börnunum tvítyngdum en ala þau upp í erlendu málsamfélagi? „Það var föst regla að tala alltaf ís- lensku og ekkert annað inni á heimil- inu. Það var starfræktur íslenskuskóli á vegum þeirra fjölskyldna sem þarna bjuggu. Þannig tel ég að tekist hafi að varðveita móðurmál þeirra og ekki hefur orðið vart við neinn aðlögunar- vanda.“ Hvað með muninn á bresku og ís- lensku skólakerfi. Er hann mikill? „Ekki sýnist mér að það sé mikill munur. Þau byrja ári yngri í Bretlandi en hér og skólaárið nær lengra fram á sumarið og er þannig lengra. Frí á öðrum árstímum er hinsvegar með öðrum hætti og lengra þannig að fjöldi skóladaga er svipaður þegar allt kemur til alls. Daglegur skólatími er frá 09:00 á morgnana til 15:30. Mér hefur virst námsefnið vera áþekkt en aginn í bresku skólakerfi er meiri.“ Pétur og eiginkona hans, Margrét Þorvaldsdóttir. BARÁTTAN Á VEIÐARFÆRAMARKAÐNUM Að öðru leyti hefur Pétur einbeitt sér að rekstri ísfells hf. og dótturfyrir- 50
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.