Frjáls verslun - 01.07.2000, Blaðsíða 29
Björn Skúlason, Ingimundur Kárason, Vigfús Már Vigfússon, Sigurður Ingi Viðarsson, Sigfús Sigfússon, Friðrik Bragason og
Jóhanna Birgisdóttir - vátryggingaráðgjafar.
Þrjár nýjar tryggingar
Þrjár nýjar tryggingar, ábyrgðartrygging
stjórnenda og stjórnarmanna, framleiðslu-
ábyrgðartrygging og greiösltifalIstrygging,
geta fallið undir atvinnurekstrartrygginguna.
Starfsábyrgðartryggingar Á vinnumarkaði hafa átt sér stað
breytingar sem hafa leitt til þess að ákveðnum starfsstéttum er
skylt skv. lögum að hafa starfsábyrgðartryggingar auk þess sem
þróunin á hlutabréfamarkaði hefur kallað á ábyrgðartryggingar
fyrir stjórnendur og stjórnarmenn fyrirtækja. Þróunin í Evrópu
hefur sýnt að stjórnendur og stjórnarmenn hlutafélaga eru í
auknum mæli dregnir til ábyrgðar, t.d. af hluthöfum, vegna mis-
taka í rekstri og því hefur þessum tryggingum fjölgað mjög.
Framleiðsluábyrgðartrygging Framleiðendur í matvælaiðn-
aði, til dæmis sjávarútvegi, eru í auknum mæli farnir að sjá sjálfir
um sölu og markaðssetningu á vörum sínum út fyrir landsteinana.
Það er því aukin þörf fyrir framleiðslufyrirtæki í útflutningi að
kaupa framleiðsluábyrgðartryggingu fyrir vöru sína.
Greiðslufallstrygging Greiðslufallstrygging tryggir framleið-
andann gegn því að kaupandi greiði ekki fyrir vöruna sem hann
hefur pantað og fengið. í samstarfi við tryggingafélagið Hermés
býður TM íslenskum fyrirtækjum upp á greiðslufallstryggingu en
Hermés er stærsta fyrirtæki á þessu sviði í heiminum.
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF
-þegar mest á reynir!
Aðalstræti 6-8 • 101 Reykjavík • Sími 515 2000 • www.tmhf.is
liMMli'lfflWlll'l’l
29