Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 58

Frjáls verslun - 01.10.2000, Síða 58
LEIÐTOGAR___________________ Lelðtogar í lífi og starfi Sýnin gefur starfi leiðtogans til- gang. Reynsla og hæfileikar skipta miklu máli og einnigget- an til pess að laða aðra til fylgis við sýnina. Trúnaðarvinir eru leiðtogum mikilvægir og iðulega eru makar í pví hlutverki. Til- finningagreind verður sífellt mik- ilvægari en í henni felst m.a. skapstilling, atorka og praut- seigja. Leiðtogar hafa taumhald á skyndihvötum, eru leiknir í mannlegum samskiptum og búa yfir hœfni til að ráða í tilfinning- / ar annarra. Asdís Halla Braga- dóttir, bæjarstjóri í Garðabæ, hefur sermenntað sig í hlutverki og störfum leiðtoga. Hún fjallar um líffimm forystumanna í bók- / inni „1 hlutverki leiðtogans“ sem kemur út fyrir pessi jól. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir r Atökin við pabba þroskuðu mig mikið og hjálpuðu mér síðar á ævinni við að takast óhrædd á við fólk í heitum rökræðum. Þó að við pabbi deildum þá ýtti hann mjög undir metnað minn og hvatti mig til dáða. Frá því að ég var smástelpa ól hann mig upp í því að ég ætti að afreka eitthvað í lífinu. Pabbi sannfærði mig um að ég hefði ýmislegt til brunns að bera og því fékk ég gott sjálfs- traust f veganesti." „Hjörleifur hefur sjálfur aldrei verið virkur í pólitík þó að ég hafi stundum reynt að draga hann inn í starfið. Engu að síður veitir hann mér ómetanlegan stuðning og ég fæ iðulega að viðra hugmyndir mínar við hann. Við setj- umst oft niður á kvöldin þegar kyrrð er komin á og ræðum þau mál sem eru efst á baugi." „Sú staðreynd að ég átti aldrei val angraði mig. Staðan var sú að annaðhvort tæki ég að mérforystuhlutverkið og þannig gæti Reykja- víkurlistinn orðið að veruleika eða óg gerði það ekki og hann yrði þar af leiðandi aldrei til. Mér fannst ég vera með fjöregg samein- aðs framboðs í höndunum. Ég stóð frammi fyrir þeim örlögum að verða að ganga þessa braut." „Af ótta við kjósendur gefa stjórnmálamenn oft í skyn að þeir hafi svör við öllu og mikil reiði getur vaknað þegar í Ijós kemur að þeir hafa þau ekki. Ég hugsa að visst sjálfstraust þurfi til að viðurkenna að maður hefur ekki svör við öllu. Hins vegar finnst mér mikilvægt að fólk treysti dómgreind minni þó að ég hafi ekki öll svör á reiðum höndum." 33 Hörður Sigurgestsson r Asíðari hluta námstíma míns fór ég að spyrja sjálfan mig: „Af hverju á ég ekki að vera í forystu alveg eins og þeir?" Hjá mér vaknaði spurningin um það af hverju ég gæti ekki, eins og hver annar, staðið uppi í stafni og stýrt dýrum knerri." „Konan mín hefur alltaf reynst mér mikil- vægur ráðgjafi. Hún er í hæfilegri fjarlægð frá hinum daglega rekstri en þekkir samfé- lagið mjög vel. Áslaug veit um allar þýðingar- mestu ákvarðanir sem ég stend frammi fyrir og þá sérstaklega ef um er að ræða ákvarð- anir sem snúa að fólki." „Eimskip er stórt fyrirtæki og það þarf feiki- lega hæfileikaríkt fólk til að stýra ólíkum ein- ingum þess. í kringum mig vil ég hafa fólk sem vinnur sjálfstætt og er tilbúið til að setja fram eigin viðhorf en ekki bara hlusta og með- taka. Ég met mikils að menn séu hreinskiptn- ir og séu ekki að fara (kringum hlutina." „Helstu veikleikar mínir sem leiðtoga eru að ég hef stífan stjórnunarstíl og sumir gagn- rýna mig fyrir að blanda ekki nægilega mikið geði við starfsfólk fyrirtækisins. Svona stórt fyrirtæki býður hins vegar ekki upp á að ég geti átt mjög náin samskipti við aðra en framkvæmdastjóra þess. Mér er vel Ijóst að ég er frekur og ráðríkur. Svo get ég líka verið of hvatvís og vil rjúka strax í hlutina." 33 58
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.