Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 83

Frjáls verslun - 01.10.2000, Side 83
FYRIRTÆKI Hvernig var boltinn sendur. ti’ b Lfjll.: p C'CuTl 000752 btab Samp.ll O.tecsN'e * 00076? tt bP«Mll0lackle 000779 <t,b.r«illOjeceive 000792 tt.bZid.n0.p.giound.tpl3 000804 !tb.U!.IIO,p.gtaund.ipir. 000004 itbUt llOtecetve l’t n,f .■ f I -.(11 Libaouf Kanmb Baiino 000s:i lt b Petitll0 p gtound mfi 000827 btab Bebeio II0 mlercef 000827 brabBebelo.llO.p.gtoui 000836 btab.Bai.II0 teceive ICaflos 000836 biabBaillOieceive 000865 brabBaillOp.gtound.if 000878 btab.Cahill0.teceive 000879 biabCalullOdnbble.be. M.VlLf:..be.ebl><.l4t' nrvr.i,.S Ronaldo Gurvaich iBebelo Desailly Leóriardo' I'■ - ■ i. iRivaldo .gtoond pass c.shpass te8a Einhvern vegin svona mun forritið líta út þegar það verður markaðssett. Forritið byggir á miklum fjölda uþþlýsinga. Atburðir endurtaka sig í knattsþyrnunni eins og annars- staðar. í knattspyrnu Þróunarverkefni fyrir Liverpool Fyrirtækin PatternVision og SportScope voru stofnuð snemma á þessu ári. SportScope er dótturfyrirtæki Pattern Vision og er stoihað sérstaklega til að þróa íþróttaútgáfu hugbúnaðarins á sterkum vísindalegum grunni og koma honum á markað. Vísindalegur grundvöllur þróunarinnar er mjög mikilvægur enda unninn í nánu sam- starfi við virtar háskólastoínanir víða um heim. Sérstakt sam- starf er við Rannsóknarstofu um mannlegt atferli við Háskóla Islands sem Magnús S. Magnússon, höfundur Theme, veitir forstöðu og við langtíma samstarfsmenn þeirrar stofnunar við m.a. Parísarháskóla, Chicagoháskóla, Barcelonaháskóla og við Keioháskóla í Tokyo. Einnig má nefna Aberdeenháskóla, þar sem Guðberg stundar doktorsnám í sálfræði. SportScope hefur gert sérstakan samstarfssamning við John Moores háskóla í Liverpool sem er „Mekka knattspyrnu- rannsókna“, að sögn Guðbergs. Sá háskóli er leiðandi í íþrótta- rannsóknum í heiminum og mun hann sjá um prófanir á hug- búnaðinum, m.a. í verkefnum fyrir enska landsliðið. Þá hefur SportScope unnið greiningarverkefni með gögn frá franska knattspyrnuliðinu Paris Saint-Germaine, Liverpool og enska knattspyrnusambandinu. „Fjölmargir aðilar haía sýnt þessu áhuga. Þau viðbrögð sem við höfum fengið eru öll á einn veg; að jretta sé yfirburðatól. Þau tól sem fyrir eru á markaðinum eru þess eðlis að þau bjóða einungis mjög einfaldar töifræðiupplýsingar. SportScope hefur nákvæma greiningu á samhæfingu leikmanna fram yfir þau,“ segir Guðberg. Fjármálaforrit á döfinni En hvernig virkar þessi hugbúnaður? Fyrir utan að veita hefðbundnar tölfræðiupplýsingar um atferli íþróttamanna finnur Theme endurtekin mynstur í atferli sem eru svo llókin að mannshugurinn getur ekki greint þau. Hug- búnaðurinn finnur fyrst einföldustu mynstrin sem saman- standa af einföldum atvikum og síðan smám saman flóknari mynstur. Niðurstöðurnar geta svo þjálfarar og leikmenn nýtt til að bæta úr veikleikum sínum og finna veika hlekki hjá and- stæðingunum. Það er því stór markaður fyrir þennan hugbún- að í Evrópu og Bandaríkjunum. Hlutaijáraukning er í bígerð, bæði hjá PatternVision og SportScope, og kveðst Guðberg bjartsýnn á að hún gangi vel. Viðskiptaaðili í Bretlandi hefur sýnt áhuga á að koma inn í fyr- irtækið og eru óformlegar viðræður þegar hafnar. Þá hefur PatternVision hafið undirbúning að stofnun annars dótturfyrir- tækis um að þróa og markaðssetja sérstaka útgáfu af Theme hugbúnaðinum tíl greiningar á íjármálahreyfingum. Vonast er til að hún skapi nýja möguleika í rannsóknum á íjármálamark- aði líkt og SportTheme gerir í íþróttum.B!] 83

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.