Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 8

Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 8
8 FIMMTuDTVGuR 18 Eins og við greindum frá í síðustu viku stóð til að Karl Th. Birgisson, ritsjóri Heimsmyndar, og SlGURÐUR Hall, rit- stjóri matreiðslu- blaðs Heimsmyndar, tækju rekstur blaðs- ins yfir. Reksturinn hafði gengið mjög illa undir stjórn Frið- RIKS FRIÐRIKSSONAR og hafði hann aug- lýst blaðið til sölu. Ekkert varð úr samn- ingunum og óvíst um afdrif blaðsins. Það kom starfmönnum Heimsmyndar því í opna skjöldu þegar þeir komust ekki einu sinni inn á skrif- stofuna til þess að sækja persónulega muni. Búið er að gera löghald á skrif- stofu Heimsmyndar sem merkir það að hún hefur verið inn- sigluð af leigusalan- um og skipt um læs- ingar. Óvíst er hvað Karl Th. tekur sér fyrir hendur en Sig- urður Hall mun mat- reiða ofan í gesti nýja skemmtistaðar- ins sem Helgi Björns, Hallur Helgason og Þórar- inn Ragnarsson ætla að opna á rústum Berlínar í Austur- stræti. Enn er búið að fresta opnun þess staðar en stefnt er á miðvikudaginn fyrir uppstigningardag... Gunnlaugur M. Sigmundsson „Átti að útvega peninga hratt" Fer með atkvæði starfsmanna. Stjórnarmenn Þrðunarfélagsins segja að þú hafirselt bréfin í Kögun til Kögunar án samráðs við stjóm- ina? „Það var búið að ákveða að selja þau. Það var þannig í Þróunarfé- laginu að stjórnin ákvað að selja eða kaupá þetta og hitt og það var okkar starfsmanna að framkvæma það. Þarna var ákveðið að selja þessi bréf og sett ákveðið gengi á þau. Þau seldust á hærra gengi og það var mitt verk að framkvæma það og gera það hratt. Ég vil ekki tjá mig um það af hverju menn vildu að þetta gerðist hratt því það er samkomulag um að ég ræði ekki málefni Þróunarfélagsins." Þeir fullyrða að þessi sala hafi komið þeim f opna skjöldu og verið án samráðs? „Það er rétt að salan til þessa ákveðna kaupenda er gerð án sam- ráðs við þá. Rétt eins og í öllum málum sem við seldum verðbréf tekur stjórnin ákvörðun um hvort á að kaupa eða selja og síðan finn- um við kaupanda. Við vorum ekki vanir því að spyrja stjórnina hvort það mætti selja einhverjum tiltekn- um aðila. í þessu tilviki átti að út- vega peninga hratt og mér fannst eðlilegra að Kögun tæki að sér að finna þessa meðeigendur sem áttu að lifa með fyrirtækinu áfram. Það er ákveðið að selja og ég fram- kvæmi það.“ Þú varst jafnframt forstjóri í Kög- un og stór hluthafi í Kögun sem er kaupandinn? „Það er Kögun sem er kaupandi á hærra verði heldur en menn ætl- uðu að selja á.“ En er ekki óeðlilegt að þá sért báðum megin borðs? Þá ert í raun bœði kaupandi og seljandi? „Ég ræði þetta við stjórn Kögun- ar og ég tek ekki þátt í afgreiðsl- unni þeim megin. Ég undirrita kaupsamninginn fyrir hönd Þróun- arfélagsins en tek ekki þátt í því hinum megin.“ Þeir segja að þessi „tránaðar- brestur“ við söluna hafi orðið til þess að ákveðið var að segja þér upp störfum eða þá segðir af þér ella? „Nei, ég sagði upp. Ég átti frum- kvæðið að því að segja upp eftir samtal okkar Þorgeirs (Eyjólfsson- ar stjórnarformanns). Þar kom fram sú ósk hans að ég hefði ekki vald til að ákveða hver yrði kaup- Afmœlisveisla 25% afsláttur af stökum jökkum og buxum í eina viku REYKJAVÍKURVEGI 62 HAFNARFIRÐI SÍMI 651680 andi öðruvísi en að ræða það við hann. Þá sagði ég að ef ágreiningur væri hlyti stjórnarformaður að ráða en ég kærði mig ekki um að vinna við þær aðstæður." Var ekki nefnt við þig að þá yrðir annars rekinn? „Nei. Hins vegar áttum við Þor- geir þrjú samtöl sem endaði með því að ég ákvað að segja upp. Ég bauðst til þess að vinna uppsagn- arfrestinn sem ekki var þegið. Það var út af mismunandi skilningi okk- ar á hvar skilin væru milli ákvarð- ana forstjóra og stjórnarformanns. Það var togstreita milli mín og Þor- geirs frá fyrsta degi og ég veit til hvers hún hefði leitt. Ég hefði aldr- ei sætt mig við það að vinna undir barnagæslu. Auðvitað snýst þetta líka um pólitík. Ég er búinn að vinna í 8 ár undir meirihluta sjálf- stæðismanna sem voru séntil- menn. Svo koma allt aðrir menn með allt aðrar hugmyndir. Ég er það reyndur að ef hugmyndir framkvæmdastjóra og stjórnar fara ekki saman þá ræður stjórn. Og þá er ekkert cinnað fyrir mig að gera en að taka pokann minn.“ Á sama tíma verður forstjórastað- an í Kögun að fullu starfi, sem áður var hlutastarf? „Það varð ekki að fullu starfi ak- kúrat á þeim tíma. Ég hætti 1. maí í Þróunarfélaginu og byrja í Kögun 1. október. Frá þeim tíma geri ég ekki annað." Af hverju verður þetta allt í einu fullt starf? „Ef ég hefði verið áfram í Þróun- arfélaginu hefði þurft að fá mann hér til að sinna þessu. Ég skoðaði minn hug frá 1. maí til 1. október en fór svo í starf hérna." Greiðslur koma frá hemum til Kögunar í gegnum Ratsjárstofnun. Það var ekki gert ráð fyrir fram- kvæmdastjóra í fullu starfi. „Það fer eftir því hvað honum er borgað, hvort það er íþynging eða ekki.“ Þú fœrð vœntanlega betri laun í fullu starfi en hlutastarfi? „Ég hef ágætis laun hérna.“ þau eru ekki borguð af hemum eins og hjá öðmm starfsmönnum heldurem tekin afhagnaði fyrirtœk- isins? „Það er samið um ákveðinn kostnaðargrundvöll og svo er það innanhússmál hér hvernig við launum starfsfólkið." Hverjir eiga Eftirlaunasjóðinn sem á 22 prósent íKögun? „Eftirlaunasjóður Kögunar er myndaður af bandarískri fyrir- mynd. Við greiðum annars vegar lögbundið inn í lífeyrissjóði á ís- landi 6 prósent auk fjögurra frá starfsmönnum. Að auki erum við með þennan bandaríska sjóð sem Kögun hefur greitt inn peninga. Það er hluti af starfssamkomulagi við þessa 18 starfsmenn að eftir ákveðinn tíma eftir heimkomu fá þeir þetta sem enn verða með okk- ur af upprunalega starfshópnum. Þeir fá þetta fært yfir á séreignalíf- eyrissjóði sína. Þetta er sameign þessara starfsmanna í dag en verð- ur séreign þeirra eftir ákveðinn tíma eftir heimkomu þeirra." Hver fer með atkvœði sjóðsins? „Flestir starfsmenn hafa gefið mér atkvæðisrétt. Ég hef ekki leit- að sérstaklega eftir því en flestir hafa beðið mig um að fara með at- kvæði sín.“ LOGSUÐUTÆKI MARGAR GERÐIR ÁRMÚL11, • PÓSTHÓLF 8000 ■ SÍMI568 72 22 - TELEX 3012 - TELEFAX 568 72 95 ÁRVÍK hf. --D argon- og propangas- mælar súr- og gasmælar, tvöfaldar slöngur, kveikjur, logsuðugleraugu, einstreymislokar, logsuðutæki í settum, súr- og gaskútar. Varahlutaþjónusta. FJOLNIR VIÐSKIPTAHUGBÚNAÐUR SVEIGJANLEIKINN ER FORSENDA ÁRANGURS STRENGUR hf. - í stöðugri sókn Stórhöföa 15, Reykjavík, sími91 -875000

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.