Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 13

Helgarpósturinn - 18.05.1995, Blaðsíða 13
FiMmuDTrcuR^rsrMKrrffgs1 13 m . ‘ 'C/■f'' '•/■ /vé'i /' fs*> K4* : V. ■ ... ... .. ,,v- ( X '■ , i!:VV'í' :. •"V' ' ' . ■■ ", * /'?% ' • . ■ . ' V; ■. - : : . : ' ■■■ ■.'.■ • : ' . ' '' >' * ( - x > SBilij gjíxv-. ^ .X '■ ® ' \p' ,>, y'S' ■'■ ■■ ■ ■ ",*• 'f ' i' -yyr' ', „ > v ' ' ''V '■» ■■■■v:", '■ víj f | f 'fíÍ-TÍ !• v \ ■ ■■■ : - ■■ , '■■. ■■■• ::v ■■■■■■'.:.■. ■■■::■.:■ S6n» SFÆ®*5"- Hippar, jólasveinar og hermenn tóku forskot á sæluna í Ingólfscafé á Eu einhvers konar grímubúningaball í tilefni þess tímaritsins Afrodite alias Venus er að líta dagsins Ijós. En um helgina mun Ingólfcafé opna í anda þess sem var hand- an járntjaldsins áður en það féll, eða í austur-þýskum stíl. Húsið mun rúma 550 manns eftir breytingarnar sem merkir að hann er orðinn jafnstór og Kaffi Reykjavík. Magnús, ritstjóri Afrodite, í valdsmannsbúningi, Örn og Vaddi söngspíra og blaðamaður. Siggi Sveins á X-inu, Orri og Steinar Sól gæða sér á sumardrykknum gin og tónik. Þingmaður Framsóknar- flokksins á Vestfjörðum, Gunnlaugur M. Sig- MUNDSSON, hefur verið til umfjöll- unar í tengslum við það að Kög- un, sem verða átti almennings- hlutafélag, er nú að mestu komið i hans eigu. Gunnlaugur á frama sinn ekki síst Steingrími Hermannssyni að þakka en hann gerði Gunnlaug að forstjóra Framkvæmdastofn- unar og gegndi hann því síðasta árið áður en stofnunin var lögð niður. Þá var gerður starfsloka- samningur við Gunnlaug og fékk hann biðlaun í heilt ár, eða jafn- langan tíma og hann hafði gegnt stöðunni og full lífeyrisréttindi, sem þótti mjög góður starfsloka- samningur. Hjá ríkinu gildir sú regla að starfsmenn hafa rétt á biðlaunum í hálft ár nema þeir hafi unnið í 20 ár á viðkomandi stað og ná þá fyrst réttindin til heils árs. Það fékkst staðfest í for- sætisráðuneytinu að Gunnlaugur þáði biðlaun í heilt ár eftir þessa árs veru. í kjölfarið varð hann svo forstjóri Þróunarfélags íslands sem einnig heyrði undir Stein- grím Hermannsson í forsætis- ráðuneytinu en Steingrímur beitti sér mjög fyrir stofnun þess... Isíðasta mánudagspósti var greint frá harkalegum aðferð- um fíkniefnalögreglunnar við líkamsleit á saklausum mennt- skælingi sem löggan hélt vera harðsvíraðan glæpamann af ein- hverjum orsökum. Kapparnir í fíknó virðast álíta að íslenskir krimmar séu alvopnaðir og stór- hættulegir upp til hópa, rétt eins og í Ameríkunni, og beita Holl- ívúddaðferðinni óspart á hvern þann sem þeim þykir grunsam- legur af einhverjum orsökum. Pítsusendill nokkur sem átti leið um Grafarvoginn um miðnætti á föstudaginn, fjórum dögum eftir hina misheppnuðu leit á mennt- skælingnum, sá altént til þeirra þuklandi ungan mann með út- glennta fætur og hendurnar flatar á þaki bílsins — alveg eins og í bíó. Að sögn pítsusendilsins voru það auðsýnilega engin blíðuhót sem löggurnar voru að sýna hin- um grunaða, enda væri það nú al- deilis voðalegt ef slíkt spyrðist út... Í i SPORT3AKKAR ___FRÁ KR. 3.900.- HERRA3AKKAR .... FRÁ KR. 6.990.- DAKKAFÖT.......FRÁ KR. 9.990.- SKYRTUR........ FRÁ KR. 1.490.- BÓMULLARPEYSUR FRÁ KR. 2.490.- SUMARBOLIR.....FRÁ KR. 890.- fSp iH • <; ■" 'Ví ' SSSSIISH! ~ ■ Laugavegi 51 - Sími 551 8840 ölmiðlar ÞREMUR SÓLAR- HRINGUM OF SEINN MEÐ FRÉTTIRNAR Síðasta laugardag kom út sunnudagsblað Moggans. (því var frétt um undir- búning íslenska hand- boltalandsliðsins fyrir leikinn gegn Sviss á laug- ardeginum og greintfrá ágætri frammistöðu Björgvins Halldórs- sonar á æfingu fyrir Evr- óvisjón-söngvakeppnina, sem haldin var á laugar- dagskvöldið. Þetta sunnudagsblað vissi því af þeim atburðum sem var fyrirséð að myndu gerast á laugardeginum en gat ekki greint frekar frá þeim vegna tækni- legra ástæðna. Tæpum mánuði fyrr gengu Islendingar til kosninga á laugardegi og sunnudagsblað Moggans missti heldur ekki af þeim atburði. I blaðinu var sagt að kjörsókn hefði verið þokkaleg um miðbik laugardagsins og veðrið víðast hvar gott. Engum sögum fór hins vegar af úrslitum kosninganna. Nú eru mörg ár liðin síð- an Mogginn byggði dreif- ingarkerfi sitt í kringum það að tvö blöð kæmu út á laugardögum, ekkert blað á sunnu- og mánu- dögum og síðan eitt blað á öðrum dögum. Það er sjálfsagt erfitt fyrir starfs- menn blaðsins að víkja frá þessari stefnu í ein- stökum tilfellum. Mér finnst hins vegar eilítið einkennilegt af blaði að senda frá sér sérútgáfu á mánudagsmorgni af tíð- indalitlum leiðtogafundi í Höfða en láta það ekki eftir sér að birta kosn- ingaúrslit í sunnudags- blaðinu sínu en bíða þess í stað allt fram á þriðju- dagsmorgun. Ég myndi meira að segja velta því fyrir mér hvort heims- meistarakeppni í hand- bolta hér heima væri ekki nægilegt tilefni til að koma út sunnudagsblaði með fréttum gærdagsins. Evróvisjón gæfi ég frí. Það þekkist víða um heim að helgarútgáfur blaða koma út fyrr - og jafnvel hálfum sólarhring fyrr- en venjuleg blöð. Þetta eru hins vegar undan- tekningalaust blöð sem koma út á mánudögum, eins og aðra daga, en láta ekki lesendur sína bíða í rétt tæpa þrjá sól- arhringa eftir fréttum af því sem gerist eftir klukk- an tvö á laugardögum. GUNNAR SMARI EGILSSON

x

Helgarpósturinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/286

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.