Vísir - 06.10.1970, Page 3
VlSIR . Þriðjudagur 6. október 1970.
í MORGUN UTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason.
SADAT er eftir-
maður Nassers
er vinstra megin i stjórnmálum — en ekki hændur að Rússum
• Stjórn arabíska sósíal-
istaflokksins tilnefndi
í gærkvöldi Anwar Sadat
til að taka við forsetatign
eftir Nasser. Er talið, að
með því sé kosning hans
tryggð. Forseti verður kjör
inn í þjóðaratkvæði hinn
15. október, og er talið víst,
að Sadat fái mikinn meiri-
hluta eftir samþykki mið-
stjómar flokksins.
Félagar í sósfalistaflokknum eru
átta milljónir. Þingiö á á morgun
að greiöa atkvæði um framboð
Sadats í almennu kosningunum.
Þarf Sadat tvo þriðju atkvæöa á
þingi, en þingmenn eru 360. Ekki
er að vænta íleiri frambjóðenda i
forsetakosningunum. Aðeins einn
flokkur er levfður í Egyptalandi.
Sadat, sem er mikiM „andstæð-
ingur heimsvaldastefnu“ hefur því
tryggt sér forsetatign, aðeins fjór-
um dögum etftir útför Nassers. Það
var forseti þjóðþingsins Labib
Shukair, sem bar fram tillöguna
Láta ekki undan
mannræningjum
• Kanadísk yfirvöld segjast alls
ekki munu láta undan ræningjun-
ud, sem f gær rændu brezkum
verzlimarfulltrúa í MontreaL Ræn-
ingjamir krefjast hás lausnargjalds
og þess, að pólitískum föngum
verði sleppt.
• Mikil leit er gerö að ræningj-
unum, og strangt eftirlit á landa-
mærum Kanada og Bandaríkjanna.
Lindsay lofar
fangelsisumbótum
SÍÐUSTU 42 fangamir, sem gert
höfðu uppreisn í New York, gáfust
upp í morgun. Hafði þeim þá verið
heitið, að þeir mundu ekki verða að
þola illt af hendi fangavarða fyrir
tiltækið.
Meðal þessara f jörutíu og tveggja
voru níu félagar £ félagsskap svörtu
hlébarðanna. Þetta var í hinu nærri
100 ára Queens County-fangelsi, en
húsin eru komin að hruni. Hinir
30 fangar í uppreisninni í því fang-
elsi gáfust upp í gær.
Einnig gáfust fangamir upp fyrir
dögun í gær í þremur öðrum fang-
elsum, þar sem uppreisn var gerð.
John Lindsay borgarstjóri hefur
lýst yfir fylgi við margs konar um-
bætur í fangelsismálum. en kröfur
fanganna um þær voru helzta or-
sök uppreisnarinnar. Segist Linds-
ay munu hefjast handa, jafnskjótt
og kyrrð er komin á.
um kjör Sadats. Kvað hann Egypta
þurfa að forðast tómarúm í stjórn-
málum og nauðsynlegt væri því að
útnefna forsetann strax. Hann skor
aði á þjóðina, „að varðveita sósíal-
istíska einingu". Þetta væru erfiðir
tímar. Öll þjóðin syrgði lát Nass-
ers og snúast yrði gegn ísraels-
mönnum út á við og afturhalds-
mönnum.
Miðstjórn sósíalistaflokksins seg-
ir f yfirlýsingu, að „afturha'Idsöfl-
in í Egyptalandl séu fáhðuð". ísra-
elsmenn og heimsvaldasinnar, sem
styðja þá, geti ekki fært sér í nyt
ástandið til að sundra þjóðinni.
Þessir aðilar, einkum Bandarikin,
vilja notfæra sér glundroðann eft-
ir fráfall Nassers. — Sadat kallaði
Bandarfkin fyrir nokkrum mánuð-
um „óvin númer eitt".
Sadat er annars talinn vinstra
megin við miöju stjómmálanna. Þó
hefur hann aldrei verið sérstaklega
hændur að Rússum. Sadat barðist
með Nasser til valda f Egyptalandi
í byltingunni gegn Farúk konungi,
en þó bar lítið á Sadat, þar til
Nasser skipaði hann varaforseta
sinn í fyrra.
Kjósendur mega aðeins skrifa
„já“ eða ,,nei“á atkvæðaseöla sína
í forsetakosningum. Nasser fékk ár-
ið 1968 99,99 af hundraði at'kvæða,
þegar kosið var um umbótaáætlun,
er hann lagði fram.
Manson réðist á dómarann
— vopnaður hvössum blýanti — og „fjölskyldan'
söng um morð
CHARLES MANSON réðst í gær
á dómarann Charles Older og hót-
aði að drepa hann. Tveir veröir
stöðvuðu Manson rétt framan viö
sæti dómara og yfirbuguöu hann
eftir hörð átök. — Manson og fé-
Manson.
lagar hans eru fyrir rétti i Los
Angeles, og eni þau sökuö um
morðið á Sharon Tate, eins og kunn
ugt er.
Older dómari hafði hótað að láta
fjarlægja Manson úr réttarsalnum,
því að hann tefði málið. Manson
hrópaði, að hann mundi fjarlægja
dómarann úr salnum, ef hann þegði
ekki, og með það hljóp hann til
sætis dómara. Hafði Manson hvass-
an blýant f hendi.
Verjendur Mansons segja, að
hann hafi oftsinnis hótað að stinga
lðgfræðing sinn Irving Kanarek
með þessum hvassa blýanti, þegar
lögfræðingurinn vildi ekki hlýða
Manson í einu og öllu.
Áður en þetta atvik varð f gær,
hafði Manson sagt við dómarann:
„Þegar þú dæmir mig sekan, þá
máttu vita, hvað ég ætla að gera.“
„Hvað ætlar þú að gera?“ spurði
dómarinn. Manson strauk aöeins
skegg sitt og 'sagði: „Þú veizt það.“
Manson hrópaði til dómarans,
meðan hann slóst við veröina: „Ég
skal skera af þér höfuðið í nafni
réttlætisins."
Líka var farið út með stúlkurnar
þrjár, sem eru ákærðar með Man-
son fyrir morðin. Sungu þær þá
vísu, þar sem orðiö „drep“ var í
hverri línu.
15 ÁR FYRIR
FLUGVÉLARRÁN
• 56 ára Bandaríkjamaður, Ray-
mond Anthony, var f gær
dæmdur til 15 ára fangelsis fyrir
flugvélarrán. Hann hafði rænt far-
þegaflugvél frá flugfélaginu East
Airlines í júnf i fyrra og neytt
flugmann tii að fljúga til Kúbu.
Við réttarhöldin lýsti dómarinn
undrun sinni yfir þvf, að enginn af
áhöfninni hafði reynt að yfirbuga
Anthany, en hann var undir áhrif-
um áfengis og hafði aðeins vasahnff
að vopni.
I>ómarinn kvað Anthony vera á-
fengissjúkling og væri lff hans mis-
heppnað. Castro lét senda ræningj-
ann burt skömmu eftir að hann
kom til Kúbu. Hann var handtek-
inn, þegar hann reyndi aö laumast
inn í Bandarikin frá Kanada.
Fjölbreytt úrval af ódýrum skólaskrifborðum, skattholum,
og mörgu fleiru.
kommóðum, snyrtiborðum, svefnbekkjum
Verðið einkar hagstætt. Greiðsluskilmálar mjög þægi legir aðeins 1.000.— krónur út og 750.— á mánuði.
Gjörið svo vel og lítið inn í stærstu húsgagnaverzlun landsins og skoðið stærsta húsgagnaúrval sem völ
er á, á einum stað.
Húsgagnaverzlun Guðm. Guðmundssonar
Skeifunni 15 — Sími 82898