Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 9

Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 9
VtSIR. Mánudagur 27. október 1975. 9 Hanna háspennulínu i Guatemala. Verkfræðifyrirtækið Virkir hf. hefur gert samning við verk- fræðifyrirtæki i Zurich um þátt- töku i hönnun háspennulinu i Guatemala. Þetta verður 220 kw háspennulina, sem hanna á til út- boðs. Þór Benediktsson, verkfræð- ingur, er nú á förum til Guate- mala, þar sem hann verður um það bil einn mánuð og vinnur að fyrsta þætti verksins. Nýskipaöur sendiherra: Fyrir nokkru afhenti nýskipaður sendiherra Mexico á tslandi, Eduaedo Jiménez González, forseta tslands trúnaðarbréf að viðstödd- um ólafi Jóhannessyni, viðskiptaráðherra. Sendiherrann hefur aðsetur i Osló. Landsbókavaröar minnst Nýlega hefur verið sett upp i aðallestrarsal Landsbókasafns málverk af Jóni Jakobssyni, landsbókaverði. Jón lét af embætti haustið 1924 eftir nær 30 ára giftudrjúgt starf i Lands- bókasafni. Auk þess að vera landsbóka- vörður, sat Jón á Alþingi sem fulltrúi Skagfirðinga 1893—1899, en þingmaður húnvetninga var hann 1903 til 1907. Á þingi hélt hann vel fram málum safnsins og stuðlaði meðal annars að smiði Safnhússins, sem hófst 1906 fyrir forgöngu Hannesar Hafstein ráð- herra. Jón Jakobsson lést 18. júni 1925, og voru þvi i sumar liðin 50 ár frá andláti hans. — Málverkið er eftir Eirik Smith, listmálara. Elliði færir gjafir 1 byrjun þessa mánaðar komu félagar úr Kiwanisklúbbnum Elliða i Breiðholti i heimsókn i Hólabrekkuskóla. Færðu þeir öll- um 6 ára börnum endurskins- merki að gjöf, en lögreglukona ræddi við börnin um mikilvægi merkjanna. Þeir Kiwanisfélagar gefa öllum 6 ára börnum i Breiðholti endur- skinsmerki, svo og börnum i Heyrnleysingjaskólanum, Bjark- arási og öskjuhliðarskóla. Alls erða þetta um 600 börn. Sigurjón Fjeldsted, skólastjóri Hólabrekkuskóla, hefur beðið fyrir þakkir til Kiwanismanna, sem jafnframt hafa veitt nemendum verðlaun fyrir góðan námsárangur i móðurmálinu. Feröamálaráð þingar Ferðamálaráð hefur ákveðið, að boða til hinnar árlegu ferða- málaráðstefnu á Húsavik dagana 14. og 15. nóvember næstkom- andi. — Fyrri daginn verða flutt framsöguerindi en siðan starfa nefndir og skila álitum. — Til- kynna þarf þátttöku sem fyrst til skrifstofu ráðsins. Nýr áfangi á Kanarí blómaeyjan Tenerife Reynsla okkar af óskum íslendinga undanfarin 5 ár og sá frábæri árangur sem náöst hefur í Kanarí- eyjaferöum okkar, er þaö sem nú hvetur okkur til aö færa enn út kvíarnar. Viö höfum nú skipulagt feröir til blómaeyjunnar Tenerife, sem af mörgum er talin fegurst Kanarí- eyja, en hún er granneyja Gran Canaría, þar sem þúsundir íslendinga hafa notió hvíldar og hressing- Fyrstir með skipulagðar sólarferðir i skammdeginu í vetur veröa farnar 7 feröir til Tenerife. Hin fyrsta 14. desember en hin síöasta 4. apríl og er hún jafnframt páskaferð. Dvaliö veröur i íbúöum og á þriggja og fjögurra stjörnu hótelum og veröiö í tvær vikur er frá 47.900 krónum, sem er þaö hagstæðasta sem býöst. Sért þú aö hugsa um sólarferð í skammdeginu, þá snúöu þér til okkar. FUJCFÉIAC LOFTLEIDIR ISLAJVDS

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.