Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 10

Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 10
10 VÍSIR. Mánudagur 27. október 1975. tceKm í Með snældum (kassettum) og kennslubókum getur nemandinn af eigin rammleik náð góðu valdi á tungumálum með 10 — 15 mínútna daglegu námi í 3 — 6 mánuði. Hann þarf ekki aðra leiðsögn en þá sem er að finna í námsgögnunum. Nú eru á boðstólum: Enska án erfiðis: kennslubók, 3 snaeldur og íslensk þýðing. Þýska án erfiðis: kennslubók, 3 snaeldur og íslensk þýðing. Spænska án erfiðis: kennslubók, 3 snældur og íslensk þýðing. Sænska handa ykkur: kennslubók, æfingabók, 4 snældur og íslensk þýðing. French without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur. Italian without toil: kennslubók á ensku og 3 snældur. Russian Wlthout toil: kennslubók á ensku og 3 snældur. Ennfremur eru á boðstólum bréfanámskeið í ensku, þýsku,.dönsku, spænsku, frönsku og esperanto. HEIMANÁM SEM HENTAR ÖLLUM Suðurlandsbraut 32 Reykjavík simi 81255 SKARNI er lifrænn, jarðvegsbætandi áburður og hentar vel við ræktun hvers konar gróð- urs. SKAFtNI er afgreiddur alla daga frá stöð- inni. — Simi 3-40-72. Sorpeyðingarstöð Reykjavíkurborgar Ártúnshöfða FÓLKSBÍLADEKK - VÖRUBÍLADEKK — TRAKTORSDEKK Fyrirliggjandi fiestar stærðir af japönskum TOYO hjólbörðum. Einnig mikið árval af hinum vinsælu HOLLENSKU HEILSÓLUÐU HJÓLBÖRÐUM á hagstæðu verði. Sendum i póstkröfu. HJÓLBARÐASÁLAN BORGARTUNI 24 Slmi 14925. Björqvin fer til Víkinqs! Sú frétt gekk eins og eldur i sinu i Laugar- dalshöliinni i gærkvöldi, að'handknattleiks- maðurinn góðkunni, Björgvin Björgvinsson, sem nú er starfandi lögregluþjónn á Egilsstöð- um, muni koma aftur suður eftir áramót og þá leika með Vikingi en ekki sinu gamla féiagi, Fram. ,,Jú þetta er rétt,” sagði Björgvin er við náðum tali af honum i morgun. ,,Ég er búinn aö tilkynna féiagaskipti yfir i Viking, og má leika minn fyrsta leik með félaginu eftir mánuð — ef ég þá kemst i liðið. Ég hcf lengi verið að velta þvi fyrir mér hvað ég ætti að gera þegar ég færi suður aftur eftir áramót, eins og allfc útlit er l'yrir, Ég hafði af persónulegum ástæðum litinn áhuga fyrir að fara að leika aftur með Fram, en al'tur á móti mikinn áhuga á Vikingi, og þá sérstaklega að komast undir handleiðslu Karls Bcncdiktssonar, þjáifara vikingam a.” Þessi akvörðun Björgvins kemur mönnum ekki svo mjög á óvart — a.m.k. ekki þeim sem tilþekkja. Vitað var að hann var ekki ákveðinn I að fara aftur til Fram — hann hafði m.a. gefið það i skyn I viðtaii við VtSI fyrir nokkru — en að Vikingur skuii liafa orðiö fyrir vaiinu kom flatt upp á fiesta. Fram fær i staðinn Magnús Sigurðsson hinn skotharða leik- inann úr Vikingi, en hann tilkynnti félagaskipti i siðustu viku. Þarna mun ekki vera um að ræða skipti á leikmönnum, eins og allt gæti bent til, þvi að enn erum við Islendingar ekki i „atvmnu- — klp — Björgvin Björgvinsson klæðist Vikingsbúningnum i fyrsta sinn eftir mánuð. komnir svo langt mennskunni”. Celtic mistókst að verja titil sinn — tapaði fyrir Glasgow Rangers í úrslitaleiknum um deildarbikarinn ó Hampden Park Ekki tókst Celtic að verja titil sinn — skoskur deildarbikar- meistari — þegar liðið mætti erkióvinunum Rangers á Hampden Park i Glasgow á laugardaginn. Leiknum lauk með sigri Rangers 1:0, og er það i 8. skipti sem Rangers vinnur þennan titil, en Celtic hefur unnið hann 10 sinnum. Leiknum var lýst i BBC á laugardaginn og var þulurinn heldur óhress yfir frammistöðu Jóhannesar Eðvaldssonar i fyrstu, en sagði að hann hefði sótt sig mjög þegar á leikinn leið og hefði hann ásamt Kenny Dalglish veriö besti maður Celtic. Mark Rangers kom á 68. minútu, þá sendi Quentin Yong lága sendingu fyrir mark Celtic og Alex MacDonald kastaði sér fram og skallaði i mark. Eftir það var stöðug sókn á mark Rangers og skall þar hurð oft nærri hælum. A siðustu sekúndum leiksins átti t.d. Jóhannes hættulegan skalla i markið, sem markveröi Rangers, Kennedy, rétt tókst að slá yfir, en áður en hægt var að taka horn- spyrnuna var leikurinn flautaður af. Skosku blöðin hæla Jóhannesi mjög fyrir frammistöðu hans i leiknum, og er honum alls staðar gefin næst hæsta einkunn og Sunday Post segir að hann hafi verið besti maður vallarins. ,,Ég meiddist á 18. min”, sagði Jóhannes Eðvaldsson, þegar við höfðum samband við hann i morgun. ,,En mér til mikillar furðu var ég ekki tekin útaf, held- ur settur fram. Þetta var hálf- gerður klaufaskapur hjá okkur, þvi að við fengum okkar tækifæri, en nýttum þau ekki. Ég er illa bólginn á ökla, en vonast til að vera orðinn góður um næstu helgi, en þá eigum við að leika aftur við Rangers — i deildar- keppninni.” Aðeins 70 þúsund áhorfendur voru á Hampden Park eða rétt helmingur af þeim áhorfenda- fjölda, sem þar kemst fyrir. Var það gert i öryggisskyni að hleypa ekki fleirum inná völlinn af ótta við ólæti. ÍR FÉKK „FULLT HÚS" Á AKUREYRI ÍR-ingar náðu sér i „fullt hús” með þvi að sigra i báðum lcikjun- um við Akureyrarliðin KA og Þór i 2. deild islandsmótsins i hand- knattieik karla um heigina. 1 leiknum við KA höfðu heima- menn yfir lengst af, en i lokin náðu KR-ingar forustunni og sigr- uðu 21:19. Jafnt var til að byrja með i leiknum við Þór — 8:7 i hálfleik — en i siðari hálfleiknum tóku IR-ingarnir af skarið og sigruðu i leiknum með 7 marka mun — 22:15. Þá var einn leikur leikinn i 2. deild i Laugardalshöllinni i gær- kvöldi. KR sigraði nýliðana i deildinni, Leikni, með 29 mörkum gegn 16.1 hálfleik var staðan 15:9 fyrir KR. Nokkrir leikir voru leiknir i efstu-deildinni á laugardaginn og urðu úrslit þeirra þessi: Dundee-Motherwell 3:6 Hibernian-Aberdeen 3:1 St. Johnstone-Hearts 0:1 Staðan er nú þessi: Celtic 7 5 1 1 15:7 11 Motherwell 9 3 5 1 17:13 11 Rangers 8 4 2 2 9:7 10 Hibernian 8 4 2 2 12:8 10 Hearts 9 4 2 3 11:12 10 Dundee 9 3 2 4 16:22 8 Ayr 8 3 1 4 11:11 7 Dundee Utd. 8 3 1 4 10:19 7 Aberdeen 9 2 2 5 10:19 7 St. Johnstone 9 2 0 7 9:17 4 BB. NÚ TAPAÐI CHARLEROI Sigurganga Charleroi-liðsins sem Guðgeir Leifsson leikur með i Belgiu — var loks stöðvuð af Andcriecht á laugardaginn. Þá tapaði Charleroi á útiveili 2:1, eftir að Anderlecht hafði komist i 2:0 i fyrri hálfleik, en I siðari hálfleik átti Charleroi leik- inn og í það minnsta skilið jafn- tefli, miðað við tækifæri. Asgeir Sigurvinsson og félagar hans gerðu jafntefli á útivelli — 1:1 gegn Ostende, og stóð Asgeir sig vel í þeim leik eins og Guðgeir i leik Charleroi og Anderlecht. Bæði liðin fá nú fri i nokkurn t- ima vegna bikarkeppninnar, en þar eru þau bæði úr leik. Stand- ard tapaði fyrir 4. deildarliði á heimavelli — 2:1 eftir framleng- ingu — og Charleroi fyrir 3. deildarliði. Þessir leikir fóru fram fyrr i haust. — klp —

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.