Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 24

Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 24
4 Rússqolían að minnka — Þurfa íslendingar að leita nýrra olíumarkaða? VÍSIR Mánudagur 27. október 1975. Byggingameistara- kœran bíður í sakadómi Kæra verðla gsstjóra á hendur byggingarmeisturum fyrir ætlaö verölagsbrot var send frá saksóknara rikisins til sakadóms fyrir heigina. Svo sem kunnugt er hafa komið fram fullyrðingar um að álagning byggingameistara á verk hafi verið ólöglega há. Upplýsingar frá sakadómi i morgun herma að engin ákvörð un hafi verið tekin um, hvenær málið fari i rannsókn, svo að ætla má að enn verði nokkur bið á aö máliö komist á hreint. -EB. Margt bendir til þess, að islendingar þurfi áður en lagt um liður, að leita nýrra oliu- markaða. Öryggi það, sem oliukaupfrá Rúss- landi, hefur veitt, kann að minnka verulega. Sovétmenn þurfa nú sjálfir að flytja inn hrá- olíu og oliuvinnsla þeirra verður æ óhag- kvæmari. Á undanförnum árum hafa Is- lendingar keypt alla sina oliu frá Sovétrikjunum á vöru- skiptagrundvelli. Segja má, að islendingar hafi verið háðir þessum kaupum, og þau verið hagkvæm, ef litið er til þeirrar ólgu, sem rikt hefur á oliu- markaði. Siðustu mánuði hefur æ meira verið um þaö rætt að is- lendingar beindu þessum viðskiptum tilannarra þjóða,og norðmenn þá einkum nefndir. Þó er ljóst að nokkur timi getur liðið áður en norömenn geta selt islendingum alla þá olíu, sem þeir þurfa. í siðasta fréttablaði Skeljungs kemur fram, að ýmissa breytinga má vænta á næstu ár um i sambandi við oliusölu rússa. Þeir hafi til skamms tima verið i þeirri öfundsverðu aöstöðu, að hafa framleitt um- frammagn af oliu og flutt út verulegt magn. Margt bendir nú til þess, að dæmið muni snúast þeim mjög i óhag á næstu fimm til tiu árum. OHuútflutningur þeirra hefur aukist úr 96 milljón tonnum 1970 i 125 milljón tonn i ár. Af þessu magni fara um 50 milljónir tonna til Vestur-Evrópu. Stóraukin oliunotkun i Sovét- rikjunum og aukinn til- kostnaður við oliuborun á fjar- lægum og erfiðum slóðum, hefur valdið þvi, að sov.étmenn hafa byrjað innflutning á hrá- oliu frá Iraq, Libyu og viðar að. Áætlað er, að árið 1980 þurfi rússar að flytja inn 75 milljónir tonna af hráoliu, eða þriðjungi meira en nemur útflutningi þeirra til Vestur-Evrópu i ár. Þótt ýmsar breytingar kunni að verða á olíuútflutningi rússa á næstu árum er liklegt, að þeir vilji i lengstu lög halda oliu- viðskiptum sinum við Vestur-- Evrópu i skiptum fyrir ýmsan iðnaðarvarning, sem þeir hafa mikla þörf fyri'r. -ÁG Fékk gám í framsœtið — Ég fæ' aldreisvona góðan bíl aftur, sagði Gestur Finnsson og horföi hnugginn á Skodann sinn sem allt i einu haföi fcngið gám i framsætiö — i gegnum þakið. Þeir voru aðstafia gámum niðri viö höfn i morgun cn athuguðu ekki aö þegar þeir voru aö koma einum nýjum fyrir, ýttu þeir öörum útaf, hinum megin. Þaö var þó lán i óláni, að Gestur skyIdi ekki vera sestur undir stýri. — ÓT/Mynd LA. Rofmagnslaust ó Vestfjörðum — Mjólkórvirkjun þurr ,,Það kemur ekkert vatn nið- ur, það er einhver krapi sem sest á ristarnar uppi i lokahúsi, og þaö eru allir Vestfirðirnir rafmagnslausir nema þeir sem hafa diselstöövar,” sögðu starfsmenn Mjólkárvirkjunar i morgun er Visir hafði samband viö þá. „Þetta fór svona um tólfleytið i nótt, en svo var allt komið i lag kl. sjö i morgun, en nú er allt stiflað aftur. Það aðeins seytlar niður vatnið. Við erum að fara upp eftir núna að athuga þetta betur. Það sást svo illa i nótt”. Að sögn starfsmannanna voru likur á aö rennslið kæmist i lag fljótlega, veður var hið besta fyrir vestan, logn og fjallabjart, en frost bæði i gær og i dag. — EB Bóndinn á Dagverðareyri i Eyjafiröi fann á föstudag likiö af Sigurbjörgu Hjörleifsdóttur sem leitaö haföi verið síðan á þriöjudag. Sigurbjörg var 77 ára gömul. Hún var vistkona aö Skjaldarvik. -ÓT. Konan fannst látin „Ckki unnt að veita launahœkkanir' — segir formaður Vinnuveitenda- sambandsins ,, A erf iðleikatimum eins og nú, telur Vinnu- veitendasambandið ekki unnt að veita launa- hækkanir, og auka kaup- mátttekna," sagði Jón H. Bergs, formaður Vinnu- veitendasambands Is- lands í viðtali við Vísi i morgun. I ályktun sem Vinnuveitenda- sambandið sendi frá sér fyrir nokkru, segir m.a. að ef ekki takist skynsamlega til um skip- an efnahags- og kjaramála á næstu mánuðum, sé vá fyrir dyrum. Jón H. Bergs sagði, að i stefnuræðu forsætisráðherra hefði komið skýrt fram hversu alvarlegt efnahagsástandið væri. Samdráttur þjóðartekna hefði aldrei verið jafn mikill og núna. Þær myndu minnka um niu prósent á þessu ári. Viðskiptahalli við útlönd gæti orðið um tiu prósent af þjóðar- framleiðslu. „Vitað er að mörg fyrirtæki eiga við mikla rekstrarörðug- leika að striða, og staða rikis- sjóðs hefur aldrei verið verri,” sagði Jón og bætti þvi við, að ekki virtist rofa til. Visir spurði Jón hvort honum virtust aðilar beggja megin vinnumarkaðarins gera sér jafn skýra grein fyrir ástandinu, og hvort þeir mundu taka tillit til þess við fyrirhugaðar samningaviðræður. „Ýmsir virðast gera sér ljós- ari grein fyrir erfiðleikunum nú en oft áður. Kannski er það vegna þess að erfiðleikarnir eru svo gifurlegir núna. Ég held lika, að menn hafi gerf sér nokkra grein fyrir hvert stefnir með sama áframhaldi. Ég vona bara að menn láti nú skynsem- ina ráða, og loki ekki augunum fyrir þeim efnahagslegu staö- reyndum sem fyrir liggja,” sagði Jón. „Hverjum er þetta ástand að kenna?” „Óhætt er að segja, að mikill hluti islendinga lifir um efni fram, og spilar á verðbólguna. þjóðin heild eyðir meiru nú en hún aílar, og þetta hefur sér- staklega orðið eftir að við- skiptakjörin við útlönd hafa versnað svo mjög sem raun ber vitni. 1 mörg ár hefur verið gengið á gjaldeyrisforöa, og svigrúm til að halda uppi óeðli- legum kaupmætti i landinu meö erlendri skuldasöfnun, er nú á þrotum.” „Hvaða tillögur hefur Vinnu- veitendasambandið til úrlausn- ar?” „Fyrst og fremst að launa- breytingum verði stillt i hóf, og ráðist veröi gegn verðbólgunni. Reynt verði að komast fyrir sem flestar rætur verðbólgunn- ar. Verðbólgan ógnar nú rekstrargrundvelli ýmissa at- vinnufyrirtækja og stöðvanir gætu leitt til alvarlegs atvinnu- leysis — eins og margar nágrannaþjóðir okkar hafa orð- ið að reyna,” sagði Jón H. Bergs. — ÓH.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.