Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 19

Vísir - 27.10.1975, Blaðsíða 19
VISIR. Mánudagur 27. oktdber 1975. 19 Kven- frelsi öll könnumst við við skripa- myndir af hellisbúanum með kylfuna sina i hendinni, er dreg- ur konu sina á hárinu inn i helli sinn. Upphaf karlaveldisins. „Vitleysa,” segir Dr. Richard Borshay Lee við háskólann i Toronto. „betta á ekkert skylt við sannleikann.” „Helliskonan fyrir 50.000 ár- um hafði meiri áhrif á umhverfi sitt heldur en nútimakonan á okkar samfélag.” Dr. Lee, sem er mannfræð- ingur, segist byggja þessa full- yrðingu sina á rannsóknum meðal Kung búskmannanna i Botswana i Afriku. í þrjú ár bjó hann hjá þessum frumstæða hirðingjaþjóðflokki — sem er eiginlega á sama menningar- stigi og hellisbúarnir til forna — og komst að þvi að konur þeirra hafa „sterk pólitisk áhrif.” „Og það er ekkert furðulegt,” segir Dr. Lee. „1 þessum sam- félögum er bara fæðu-safnarinn — konan — langtum mikilvæg- ari en veiðimaðurinn, karlmað- urinn. Fæðan, sem hún lætur i té, er þjóðflokknum mun mikil- vægari. Og það sem meira er, i flest- um frumstæðum samfélögum eru konur á giftingaraldri nokk- urs konar verðlaun. Til þess að vinna sér konu verður ungur maður, i flestum tilfellum, að búa með fjölskyldu stúlkunnar i fimm til tiu ár, á meðan hann undirbýr sig undir að verða henni verðugur maki. I einni rannsókn sem ég geröi á 58 ungum pörum i þjóðflokkum bjuggu 24 með foreldrum stúlk- unnar, 22 með foreldrum eigin- manns og tólf þeirra hjá báðum. Engin áhersla virðist lögð á áhrif annars hvors kynsins i frumstæðum samfélögum. Alls staðar virðist rikja jafnrétti og samvinna.” Dr. Elanor Leacock forstöðu- maður mannfræðideildar skóla nokkurs i New York segir: „Ég er sammála þvi, að kon- ur i frumstæðum samfélögum hafa meiri frelsi en nútimakon- ur. Ég hef lesið i skýrslum, að trúboðar á Labrador gerðu at- hugasemdir um það frelsi, er konur indiána nutu þar.” Hqvaðamörkin brotin — Hljóðfráa farþegaþotan Concorde er sex sinnum hávær- ari en þotur þær sem nú eru notaðar, og myndi raska ró tólf sinnum fleira fólks kringum Heathrowflugvöll, að þvi er kemur fram i skýrslu er gefin var út nýlega. Þessar niðurstöður, sem gefn- ar eru út af borgarstjórn Lundúna, varpa nýju íjósi á möguleika Concorde til að fá lendingarleyfi i Bandarikjun- um. Eftir að hafa fylgst með til- raunaflugi Concorde þotunnar á Heathrowflugvelli frá 33 mis- munandi stöðum komust könn- uðir að þessum niðurstöðum. Niðurstöður þessar eru Con- corde jafnvel enn meira i óhag en skýrsla rikisstjórnarinnar i siðustu viku, sem sagði að þotan hefði i 28 af 40 flugtökum brotið hávaðatakmörk flugvallarins. Helmingi minni líkur á krabbameini hátt yfir sjávarmáli Þú getur minnkað líkurnar á aö fá krabbamein allt að 50% ef þú býrö I meira en 000 metra hæö yfir sjávarmáli. Þetta segir kanadiski lifeölisfræðingurinn, Dr. Aian Burton, sem fullyröir að hafa fundiö samhengi á miiii hæöar yfir sjávar- máli og tiöni krabbameins. Og þá krabbameins i öilum liiutum lik amans. „Ég safnaði upplýsingum frá Alþjóða heilbrigöismáiastofnun- inni um tföni krabbameins alis staöar af hnettinum” úrskýröi dr. Burton. „Ég bar þessar tölur, sem náöu yfir tiu algengar tegundir krabbameins, saman viö skrá um hæö yfir sjávarmáli. Þegar komiö er upp fyrir 600 metra, fellur tiöni allra krabbameinstilfell- anna og gildir þaö um bæði kynin. Möguleikar þinir til aö fá krabbamein, geta minnkaö um allt aö helming, ef þú býrð I 600 metra hæð eöa hærra.” „Þetta eykur einnig likurnar á þvi, aö þú getir notást viö lyf, er hefur sömu efnaáhrif á likamann og hæöin yfir sjávarmáli. Eitt slikt lyf heitir Dyamox en þaö er nú notaö gegn flökurleika I þunnu lofti. Dr. Earl F. Walborg, sem heyrði niðurstööur dr. Burtons, haföi þetta aö segja: „Þetta er fyrsta staöreyndin i öllum tilfellum krabbameins, sem komið hefur fram.” Dr. Walsborg, sem er yfirmaöur næringarfræöideildar Ander- son sjúkrahússins og Tumorstofnunarinnar I Houston hélt áfram: „Viö erum allir sem þrumu lostnir. Rökin fyrir kenningum dr. Burtons eru mjög sterk.” v Dr. Burton, sem er prófessor viö Western-Ontarioháskólann i London, sagöi blm. ástæöuna fyrir þessum brauðryöjandarann- sóknum sinum: „Allir visindamenn leita ákaft aö hinum svokallaöa „frumefna- samruna” krabbameins, sem leiöir til þess, aö heilbrigðar frumur byrjaö aö skipta sér á afbrigðilegan hátt og breytast i banvænar krabbameinsfrumur. „Égákvaöaö rannsaka mjög líklega orsök meinsins: jafnvægið á miili sýru og salts i blóöinu. Niöurstööur hafa þegar sýnt, aö vöxtur fruma er aö nokkru leyti háöur sýrumyndun. „Náttúran lét mér i té mjög hentugt tækifæri til aö sannreyna þessa kenningu. Þaö er alkunn staöreynd aö þegar maður flytur sig hátt yfir sjávarmál, veröur blóö hans saltara og sýrumyndunin minnkar.” óvæntar sannanir fyrir þcssari kenningu komu fram vlö kann- anir hans. Dr. Burton sagöi: „Ég komst aö þvi, aö þvi hærri sem maðurinn er staddur yfir sjávarmáli, þvi minni eru likurnar fyrir krabbameini. „Viö fundum lika svæöi, er liggur hátt, þar sem krabbamein er meööllu óþekkt. Hunza-héraöiö, sem er I Himalayafjöilum, Kash- mirmegin, hefur ekki haft neitt krabbameinstilfelli á meöal ibúa sinna á sl. 60 árum." „Annaö dæmi má finna I Mið-Afrlku,” sagöi hann. „Þar er viss tegund krabbameins, er ncfnist blóösjúkdómur Burkitts, mjög al- geng — nema I þéttbýlum héruöum Uganda, sem liggur i 1500 metra hæö yfir sjávarmáli. „Þriðja sönnunin kom er rannsökuð voru hvitblæöi tilfelli frá 5000 stööum I Bandarikjunum, en þær sýndu svipaöa lækkun á dauöa af völdum meinsins er komiö var i meira en 600 metra hæö. „Ef tengsl sýrumyndunar og saltmagns i blóöinu viö krabba- mein eru sönnuö á læknisfræðilegan hátt — og ég vona ab slik rannsókn veröi gerö, mun hún hafa þaö I för meö sér, aö hægt verður aö stjórna frumumyndun meö þvi aö halda þessum tveim- ur atriðum I hæfiiegu jafnvægi.” Niöurstöður'Dr. Burton voru bornar saman viö ákveöna tegund krabbameins I Texasriki af Elanor McDonald frv. prófessor I far- sóttarfræöi viö háskólann i Texas. Hér er um aö ræöa banvæna tegund krabbameins i húbinni. Krabbameinssérfræöingar álita prófessor McDonald „einhvern færastan skýrsluhöfund um krabbamein I heiminum i dag.” „Ég geröi kannanir minar og varö alveg furöu lostinn yfir niöur- stööunum. Tiöni krabbameinsins jókst um leiö og hæöin yfir sjávarmáli lækkaöi. í borginni E1 Paso sem er i 1.220 metra hæö yfir sjávarmáii, var tibnin 3 á hverja 100.000 ibúa. En þegar ég kom aö Laredo, sem er I um 140 mctra hæö, var tiðnin komin uppi8: 100.000.” Og dr. Walborg sagöi: „Hugmyndir Dr. Burtons eru mjög þýö- ingarmiklar. En reyna veröur læknisfræöilega rannsókn á kenn- ingum hans.” Þetta merki ættu allir karlmenn aö þekkja « * Hvers vegna? Jú/ því að KORATRON buxur þarf aldrei að pressa Mikið stœrðarúrval r\ HERRA "EftR-ÐURINN A-ÐALSTRÆTI 9 -SÍMI 12234 FYRIR VIÐRAÐANLEGT \ /1_[3XG\ ^ov's sarnstæðan er ætluð ungu fólki W [ [\T ) 0 öllum aldri. Novis er skemmtilega einföld og hagkvæm lousn fyrir þó, sem ieita að litríkum hillu- og skópasomstæðum, „ sem byggja mó upp í einingum, eftir hendinni. | Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ. ÚTSÖLUSTAÐIR: Reykjavík: Kristján Siggeirsson hf. J L Húsið Híbýlaprýði Dúna Siglufjörður: Akureyri: Húsavík: Selfoss: Keflavík: Bólsturgerðin Augsýn hf. Hlynur sf. Kjörhúsgögn Garðarshólmi hf. Akranes: Verzl. Bjarg Borgarnes: Verzl. Stjarnan Bolungarvík: Verzl. Virkinn, Bernódus Halldórsson FRAMLEIÐANDI: KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. HÚSGAGNAVERKSMIÐJA Hve lengi viltu biða eftir fréttunum? MHu fá |ur Ik'Íih til þin samdargurs? F.tVa \ iltu bitVa til naMa nK>rj;uns? VÍSIR fl> tur frctlir daj;sins i daj>!

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.