Lesbók Morgunblaðsins - 28.10.1951, Qupperneq 13
T LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
ari en sú upphitun, sem vjer eigum
nú að venjast. Húsmæður hafa þá
óteljandi rafmagnsáhöld, sem
samtals munu geta afkastað eins
miklu og allur þjónaf jöldinn í höll-
um manna á miðöldum.
Þegar verkamaðurinn kemur
heim frá vinnu, byrjar hann á því
að borða gervikjöt, sem konan hef-
ir steikt í radarofni. Að því loknu
sest hann í hægindastól, slökkur
ljósið og opnar sjónvarpið. Menn
þurfa að skemta sjer árið 2000 eins
og nú. En þeir gera það á annan
hátt. Þeir eru hættir að fara í bíó,
leikhús og á hljómleika. Slíkar
stofnanir eru þá liðnar undir lok.
Útvarpið hefir einnig verið lagt á
hylluna, en sjónvarpið er komið í
staðinn fyrir alt þetta. Og þá er
það orðið svo fullkomið að menn
verða að beita öllum skilningar-
vitum sínum, ekki aðeins sjón og
heyrn eins og nú, heldur geta menn
þreifað á því, sem þeim er sýnt
og fundið angan af blómum og
öðru. En þá verður líka gætt meira
siðgæðis um útsendingu skemti-
atriða heldur en nú ,er.
____•____
Um aldamótin 2000 verða til
bæði knattspyrnumenn og hnefa-
leikarar. En það gerir sjer enginn
ferð út á íþróttavelli eða í sýn-
ingarsali til þess að sjá þá keppa.
Menn horfa á kepnina heima hjá
sjer.
Almenningsvagnar verða úr sög-
unni og í þeirra stað verða komn-
ar þyrilvængjur, knúðar af kjarn-
orku og geta flogið 500 km. á
klukkustund. Og þá verður kom-
inn fram nýr leikur, ef leik skyldi
kalia. Það er hið svonefnda þyril-
vængja-póló. Þar keppa hraðfleyg-
ar flugvjelar, sem fljúga lágt og
hafa knetti fylta með helíum. í
hverri kepni verða hryllileg stór-
slys, en þau verða aðeins til að
æsa menn til þess að horfa á meira
af því tagi.
þ 497
Menn eru nú þyngri fyrir held-
ur en þeir voru um seinustu alda-
mót, en eftir 50 ár þarf þó enn
meira til þess að koma þeim úr
jafnvægi. Hið eina sem þeir verða
þá sj|erstaklega sólgnir í, er fjár-
hættuspil og veðjanir. Og til þess
að nota sjer þennan veikleika
mannanna hafa ríkisstjórnirnar
þá komið á fót stórkostlegum happ-
drættis-fyrirtækjum, og ná þannig
stórtekjum í ríkissjóðinn.
____•____
Menn verða alveg hættir að
sofa. Þá eru smiðir hættir að smíða
rúm, j því að efnaverksmiðjurnar
hafa iframleitt töflur, sem taka af
mönrium svefn. Ein tafla kemur í
staðinn fyrir 8 stunda svefn.
Menn verða einnig hættir að
drekka áfengi, vegna hinna skað-
legu eftirkasta, sem það hefir. En
í þess stað verða komin ótölu-
lega inörg lyf, sem Örfa menn og
hvíla, gera þá káta eða stilta, eða
vekja hjá þeim lifandi dagdrauma
og stelukend.
Tískan í klæðaburði er þá úr
sögupni, eða iöllu hfifdur orðin að
umskiftingi. Menn eru þá hættir
að klæða sig til skjóls. Menn nota
föt áðeins til þess að skreyta sig,
og þáð gerir hver eftir sínum eig-
in smekk. Baðföt þekkjast þá ekki,
menn og konur ganga allsnakin á
baðstöðunum, fleygja máske ein-
hverri flík yfir sig til þess etns að
hylja vörtur eða önnur líkams-
lýti. '
Mikla ánægju hafa menn af mat-
arveislum, sjerstaklega hinir góð-
lyndu feitu menn. En maturinn
verður allur annar en nú, og fram-
reiddur á annan hátt. Aðalfæðan
verður þá svif úr sjónum, gerfi-
hveifi og gervikjöt, sem er krydd-
að rrieð ilmefnum, er unnin hafa
verið úr kolum og steinolíu.
Mikill skortur verður á pappír og
hefir það áhrif á bókaútgáfu. En
það gerir máske elcki svo mikið
til, því að barnabörn eða barna-
barnaböirn vor lesa ekki annað en
þau nauðsynlega þurfa vegna at-
vinnu sinnar. Skemtilestur þekk-
ist þá varla, að.minnsta kosti ekki
í borgunum. En menn ferðast mik-
ið og ferðast langt og skemta sjer
með allskonar samkornum og leik-
um.
íslensk spá um árið 2000. T
Árið 1933 ritaði dr. Helgi Pjet-
urss 'stutta grein um þetta efni og
segir þar svo:
Um aldamótin 2000 verða hag-
ir mannkynsins orðnir gerbreytt-
ir frá því, sem nú er. Fyrst og
fremst vérður heilbrigði og far-
sæld miklú almennari og meiri en
nú gerist, sþví að mjög miklu bet-
ur verður kunnað að færa sjer í
nyt það sem miðar til eflingar lífs-
ins, hvort’sem það er ástin, ljósið
eða fýri og ilmi (Ozon) loftsins.
Hver maður mun þá eiga þess kost.
miklu fremur en nú gerist, að á- '
stunda að verða sem fullkomnast- \i
ur bæði r andlega og líkamlega.
Mjög mikil breyting verður orð-
in á atvinnuvegunum. Enginn
maður verður þá að ala aldur sinn
við að brjóta berg í þröngum
námagöngum og eiga á hættu, eins
og svo oft hefur borið við, að 5
verða þar lifandi grafinn og bíða
hinn hræðilegasta dauðdaga. Þess 'l
verður þá engin þörf, að farið sje
niður í jörðina til að sækja sól- ’
skin — því að kol má segja að sje
margra miljóna ára gamalt sól-
skin í nokkurs konar álögum, sem
það leysist úr þegar kolin brenna.
Menn munu þá kunna að nota sól-
skin samtíðarinnar. Jarðrækt mun
verða stunduð mjög mikið, en með
mjög breyttum og nýstárlegum að-
ferðum. Hraðrækt mætti nefna það,
og verða við það notaðir geislar
sem m«nn vita nú lítið unv Nýar
ávaxtategundir verða þá fram-i
i