Lesbók Morgunblaðsins - 07.06.1953, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
345
JÓn Vidalin ,
en að hún hafi látið sér vel lynda
samninginn, sem gerður hafði ver-
ið um framtíð safnsins, og að hún
hafi sýnt áhuga á að allt kæmizt
tíl skila.
Hér mun ekki verða margt sagt
frá hinum einstöku gripum safns-
ins, er hverjum bezt að sjá sjálfur,
því að „sjón er sögu ríkari.“ Þó
skal reynt að vekja athygli á
nokkrum þeirra:
Verður þá fvrst að nefna pródik-
unarstól úr eik fi'á 1594, forkunnar
\'el smíðaðan og útskorinn i renes-
ansstil, með myndum af Kristi og
guðspjallamönnunum. Síðast var
hann í Fagraneskirkju í Skagafirði,
en er upprunalega úr Dómkirkj-
unni á Hólum, hefur hann verið
seldur frá hetmi, þegar steinkirkj-
an, scm nú stcndur, var reist. —
Hann.'-er nú gljákvoðúborinn og
einlitur, dökkbrúnn, en hefur áð-
ur verið öllu glaðlegri útlits, eins
og sjá má af lýsingu hans í Fagra-
neskirkju 15. september 1764:
„Predikunarstöll úr þcirri gömlu
domkyrkju med snikk og byld-
húgger verke, gylltur og Farvad-
ur . ...“ Predikunarstóll þessi hef-
ur verið kenndur við Guðbrand
biskup Þorláksson, enda sýnir ár-
talið, að hann cr gerður á hans dög-
utn, os fangamark Iians, G. !í'„
stendur yfir œyndöuú ai l.íarkús:
guðsjallamanni. Matthías Þóröar-
son telur að Markúsarmyndin sé
í raun og veru af Guðbrandi og
að ekki sé ólíklegt, að hann hafi
sjálfur skorið stólinn út. Ekki
verður neinn dómur á það lagður,
hvort sú tilgáta sé líkleg eða ekki.
En eitt er þó víst í því sambandi:
Hafi Guðbrandur biskup skorið
predikunarstólinn, þá ber hann
ótvírætt vitni um, að sá fjölhæfi
biskup og mikli alkastamaður hafi
verið — ekki einungis vel hagur
— heldur líka vel lærður og vel
æfður meistari í tréskurði, því að
einmitt að þessu leyti sker stóllinn
sig úr flestu, ef ekki öllu, sem hér
er til af tréskurði frá sama tíma.
Þá má nefna altaristöflur tvær,
skornar úr eik, sýnir önnur þeirra
himnaför Jesú, en hin, sú stærri
— í barokstíl frá 17. öld — sýnir
Krist á konungsstóli Himnanna, og
er Jetrað á fótskör hans: „IESVS
HABET CLAVEM DAVIDIS“ —er
hún talin geta verið eftir Guðmund
Helga Vidalín
smið Guðmundsson í Bjarnarstaða-
hlíð. Ekki er vitað um hvoruga
þessa töflu í hvaða kirkjum þær
hafa verið, og er þar nokkur ljóð-
ur á, sama er að segja um ágætt
Maríulíkneski, skorið úr tré, sem
þarna er. Mun það vera allfornt, en
umgerð þess er öll ný.
Myndirnar þrettán, af Kristi og
postulunum, eru sérlega athyglis-
af Eristj eg pestul’auiiii: