Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Blaðsíða 11

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Blaðsíða 11
Chevrolet Corsica/Beretta - sú gerð frá General Motors, sem seldist bezt, varð í 4. sæti, » Amerískir bílar í varnarstöðu á heimamarkaði Ford Taurus varð í öðru sæti. Oldsmobile Cutlass -þokkalega vel teiknaður millistærðarbíll með 16 ventla vél, en það hefur ekki dugað honum til verulegrar velgengni. Tíu á toppnum - nú og fyrir 10 árum 1989 1978 Honda Accord Chevrolet (stærsta gerðin) Ford Taurus Oldsmobile Cutlass Ford Escort Ford Fairmont ChevroLet Corsica Chevrolet Malibu Chevrolet Cavalier Chevrolet Monte Carlo Toyota Camry FordLTD FordTempo Ford Thunderbird Nissan Sentra Olds 88 Pontiac Grand Am Chevrolet Camaro Toyota Corolla Cadillac Dodge Dynasty - praktískur millistærðarbíll með framdrifi. En útlitið er orðið gamaldags og það hefur háð fleiri gerðum frá Chrysler. sýnast gamaldags, þegar straumlínan ræður útlitinu í vaxandi mæli; Chrysler New York- er og Dodge Dynasty til dæmis. Þessi sam- dráttur hjá bandarisku bílasmiðjunum er al- varlegt mál og hefur m.a. orsakað að fjöldi manns hefur misst atvinnuna. I náinni framtíð sjást þess fá merki, að amerískir bílar nái sinni fyrri stöðu á heima- markaði. Þar er þyngst á metunum, að Japan- ar eru með mörg og góð tromp á hendi. Honda Accord, sem fékk gullna stýrið í Þýzkalandi, er nýr og glæsilegri bíll frá og með árgerð 1990 og vinsælir hans gætu jafn- vel aukizt. Auk þess fellur Toyota, bæði Camry og Corolla, bandarískum neytendum vel í geð, enda hafa þeir ásamt Honda kom- ið bezt út gagnvart bilunum i könnunum bandarísku neytendasamtakanna. Þar fyrir utan gerir Toyota nú innrás á lúxusbílamark- aðinn með Lexus, sem hefur fengið afar góðar viðtökur. Frágangur þykir í hæsta gæðaflokki og boðið er uppá alla þá há- tækni, sem til er í bílum. Annað japanskt útspil í flokki lúxusbíla er Infiniti frá Nissan; bíll sem fær ekkert annað en hrós í bílapress- unni og auk hans er Maxim frá Nissan, vel búinn bíll í milliflokki. Einnig eru í boði nýjar og athyglisverðar gerðir frá Evrópu, sem virðast slá út banda- Sú var tíð að innfluttir bílar í Bandaríkjunum voru í eigu tiltölulega fárra sérvitringa og enginn virtist geta ógnað veldi „The Big Three“, hinna þriggja stóru: General Mot- ors, Ford og Chrysler. Löng- um var Chevrolet hinn raun- verulegi, bandaríski fólksvagn og fyrir 12 árum, árið 1978, var stóra gerðin af Chevro- let söluhæstur allra bíla í Bandaríkjunum. Það er raunar skemmst frá því að segja, að öll 10 efstu sætin skipuðu bílar frá General Motors og Ford og þótt ótrúlegt gæti virzt, var fiaggskip GM, sjálfur Kátiljálkurinn í 10. sæti. Nú liggur fyrir útkoman á þessum stærsta bílamarkaði heimsins fyrir árið 1989. Breyt- ingin sem orðið hefur er ótrúleg og hlýtur að vera hrollvekja fyrir bílarisana þijá í Detroit. Metsölubíllinn er ekki lengur amerískur, heldur Honda Accord frá Japan. Að vísu eru annað og þriðja sæti skipuð Ford-bílum, Taurus og Escort, en Chevrolet má muna sinn fífil fegri og nær aðeins í fjórða og fimmta sæti með Corsicu/Berettu og Cavalier. í næstu fimm sætunum eiga Japanar þrjá, en Ford og GM sinn hvorn. Sjá nánar á meðfylgjandi töflu. Fyrir 10 árum var þessi innrás frá Japan- og í minna mæli frá Evrópu- hafin, en af heildársölunni voru amerískir bílar með 77,3%. Núna er hinsvegar svo komið, að þeir halda aðeins í 67,7% af innanlandsmark- aðnum. Ford gengur bezt, líklega vegna þess að Ford-bílar hafa í útliti verið meira í sam- ræmi við ríkjandi tízku og tíðaranda en hin- Honda Accord, árgerð 1989, söluhæsti bíll í Bandaríkjunum 1989. ir frá GM og Chrysler. Sjálfur risinn, GM, hefur blundað of lengi á lárviðarkransinum, enda viðurkenna þeir sjálfir, að kannski ein eða tvær raunverulega nýjar bílvélar hafi orðið til hjá þeim síðan 1955. Svo er að sjá, að vaxtarbroddinn hjá GM sé nú helzt að finna í Evrópuhjáleigunni í Þýzkalandi, þar sem margar og markverðar nýjungar eru að eiga sér stað hjá Opel. Þótt GM sé með sumar dýrari gerðirnar þokkalega vel teiknaðar, Oldsmobile og Buick t.d., hefur útkoman orðið allt annað en góð. Ennþá verri er hún þó hjá Chrysler og fer nú að vakna grunur um, að sá snjalli Iacocca sé orðinn of gamall, eða nenni ekki að standa í þessu svo sem áður var. Hönnunin á trú- lega stóran hlut í þessu; Chryslerbílar hafa haldið áfram að vera nokkuð kantaðir og Framtíðarmúsík frá Detroit: Sportbíllinn Dodge Stealth og til vinstri: Rafbíll frá General Motors, báðir voru á sýningu framtíðarbíla. ríska keppinauta, en eru hinsvegar mun dýr- ari en sambærilegir bílar frá Japan. Af því nýjasta frá Evrópu má til dæmis nefna „Bíl ársins“, Citroen XM og nýjasta flaggskig Peugeot, hvorttveggja bílar í lúxusflokki. í þeim flokki er einnig 8 strokka gerðin af Audi 100, sem nú fæst með aldrifi. Næsta útspil Mercedes Benz er ný útfærsla á dýr- ustu línunni, svonefndum S-flokki. Hann er nú á lokastigi í umfangsmiklum reynslu- akstri og hefur víða sést í Evrópu, en í dular- klæðum. Þessir eru allir of dýrir til þess að ná fjöldasölu í Bandaríkjunum, en þeim er samt mjög umhugað um að standa sig þar. Volvo hefur átt góða hlutdeild á Bandaríkja- markaði þegar tekið er tillit til framleiðslu- getunnar, en salan féll á síðasta ári og enn- þá verri varð útkoman hjá BMW og einkum og sér í lagi hjá Porsche og Audi. Saab seld- ist einnig minna en áður, en þar er breyting í vændum með því að General Motors hefur keypt 50% í fólksbílaframleiðslu Saab. Ástæðan er m.a. sögð sú, að GM vantaði vandaðan og vel búinn bil í Evrópu; bíl sem gæti verið stöðutákn. Það hefur ekki tekizt með Opel Senator, en að öðru leyti er veru- legt fjör að færast í leikinn hjá Opel með Vectra, sem nýkominn er til íslands og selst hefur eins og heitar lummur í Evrópu. Sér- hæfðari og sportlegri er Opel Calibra, sem þykir mjög spennandi bíll og auk þess er búið að gera eina gerð af Opel Omega að hreinræktuðu hraðbrauta-tryllitæki. Saab-GM samningurinn hefur trúlega meira að segja fyrir Saab, en GM væntir einnig mikils. Samkvæmt upplýsingum úr Svíaríki munu nýjar gerðir sjá dagsins ljós í öllum verðflokkum Saab og GM er um- hugað að nýta það orð, sem Saab hefur á sér fýrir gæði og öryggi. Til að sýna að menn haldi ekki bara að sér höndum í Detroit, hefur nýlega verið haldin bílasýning þar með áherzlu á að kynna framtíðarbíla, sem þó eru raunar svo langt komnir, að til er af þeim prótótýpa, þ.e. öku- fært eintak. Þrátt fyrir bágindin hjá Chrysl- er, var það eitt af nýmælunum þaðan sem vakti hvað mesta athygli: Stealth heitir hann og sýnir, að nú hafa menn heldur betur upp- götvað straumlínuna þar á bæ. Það er ann- ars tímanna tákn, að þessi bíll, sem teiknað- ur er í Detroit, byggir á tækni frá Mitsubishi í Japan. Það er líka tímanna tákn, að ýmis- konar samvinna og samkrull hefur færst í vöxt. Ford sýndi t.d. Mercury Capri, fjögurra manna sportlegan bíl, sem teiknaður var á Italíu, smíðaður í Ástralíu, en tæknihliðin var unnin í Japan. Á sama hátt byggir ameríska útgáfan af Ford Escort mjög á verkfræðinni hjá Mazda og einstökum hlutum þaðan. Frá GM vakti mesta athygli rafbíllinn Impact, afar rennilegur smábíll, en með þann sama galla og aðrir slíkir, að rafhlöðurnar hafa of skamma endingu. I tímaritinu Newsweek, þar sem fjallað var um þetta nýlega, var þó talið víst, að fáein framúrstefnuleg tryllitæki væru ekki sú lausn, sem bjargaði amerískum bílaiðn- aði. Þar vantaði einfaldlega vel gerða, meðal- stóra fjölskyldubíla á borð við Toyota Camry cg Honda Accord. Newsweek hefur eftir markaðsrannsóknarmanni í New York, að áherzla á svokallaða framtíðarbíla, geti í rauninni grafið undan innlenda bílaiðnaðin- um. Slíkir bílar eiga langt í land með að komast á framleiðslustig, en á sýningum sem þessum, hafi Japanar tíma til að skoða þá og sundurgreina að vild og siðan fái Banda- ríkjamenn í hausinn endurbættar útgáfur af þessum sömu bílum frá Japan. GS. LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 3. FEBRÚAR 1990 1 1

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.