Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Blaðsíða 13

Lesbók Morgunblaðsins - 03.02.1990, Blaðsíða 13
LESBÚK MORGUNBLAÐS I N S FFRTMRTAfí LESBÓKAR Legið I vari Sunsail er með skipulagðar páska-, vor- og haustferðir, með sérhæfðu leiðsögufólki á sögu- og fornminjaslóðir í Grikklandi og Tyrklandi. Löndin skarta sínu feg- ursta á vorin, þegar hæðir og engi eru þakin villtum blómum og nýmáluð þorp og hafnir ekki orðin full af ferðamönnum. Á haustin er besti tíminn til að sigla — að sögn Grikkja — sjórinn enn- þá heitur og enginn að f lýta sér! Nánari upplýsingar hjá: Sun- sail, The Port House, Port Solent, Portsmouth, Hampshire P06 4TH, England. Sími: 0705 210345. Tvö af virtustu félögunum sem bjóða upp á seglskútuferðir — Island Sailing og ICA — hafa sameinað krafta sína og reynslu til að bjóða það besta í ferðalögum á seglskútum um Miðjarðarhaf. Að auki eru þeir að verða einn stærsti hluthafi í Stevens Yachts í Bandaríkjunum og eru að þróa upp siglingar í Andaman-hafi við Tæland. Með nýja félaginu — Sunsail — eru allir möguleikar opnir til að njóta sumarleyfis á siglingu um mörg heimsins höf. Sunsail býður upp á 600 lysti- snekkjur í 7 löndum og um 12 siglingarsvæði. Hægt er að fá leigða skútu á eigin vegum — skútu með skipstjóra og/eða kokki — skútu í félagi með öðrum. Einn- ig er hægt að dvelja í klúbbum og siglingaskólum við ströndina og nema margskonar vatnaíþrótt- ir. Félagið rekur siglingaskóla í Emsworth í Englandi. Boðið er upp á 3-4 daga námskeið, sem eru gagnleg áður en lagt er upp í sjálfstæðar siglingarferðir- — einnig lengri þjálfunarnámskeið._ Nýjungar á þessu ári: 1. Á Karíbahafi er siglt frá Tortola á Jómfrúreyjum og Sankti Lúsíu á Windward-eyjum. 2. Við Tæland er boðið upp á siglingar um Phangnga-flóann og frá Phuket- og Phi-eyjum. 3. Siglingaleiðir um Miðjarðarhaf hafa verið lengdar. Frá Korsíku er siglt til Elbu og til stranda Toscana-flóans. Frá Sporades er siglt til Halkidihiki- skagans og hið leyndardómsfulla. Athos-fjall heimsótt. Frá Aþenu milli hinna óviðjafnanlegu Hring- eyja í Eyjahafi. 4. Nýr Tyrklands- floti siglir til hinna óspilltu voga og hafna í Austur-Lýsíu, Finike og Kemer — og til Antalýu, sem er ein fallegasta höfn við Austur- Miðjarðarhaf. 5. Boðið upp á skipulagðar ferðir fyrir félaga- samtök, frá 4 upp í 100 manns. Byrinn nýttur! SIGLINGAR SUÐLÆGUM HÖFUM í

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.