Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1998, Blaðsíða 2
FELLA- OG
HÓLAKIRKJA
TÓNLEIKA-
ÞRENNA
TRÍÓS
REYKJAVÍKUR
TRÍÓ Reykjavíkur heldur þrenna tón-
leika í Fella- og Hólakirkju í vetur.
Fyrstu tónleikamir í þessari tónleikaröð
verða sunnudaginn 20. september kl. 17.
Flutt verður Tríó op. 1 nr. 1 eftir Beet-
hoven og Tríó Dumky eftir Dvorák.
Aðrir tónleikar vetrarins verða 8. nóv-
ember en þá leika með tríóinu flautuleik-
aramir Guðrún Birgisdóttir og Martial
Nardeau. Þriðju og síðustu tónleikar
Tríós Reykjavíkur verða 7. mars. Þá
verður þeim til fulltingis Alin Dubik
mezzósópransöngkona.
Aðgangur að tónleikunum kostar 1.000
kr. og veittur verður afsláttur til nem-
enda og eldri borgara.
ÍSLAND í SKÁLDSKAP
03 VERULEIKA
BÓKASTEFNAN í
Gautaborg verður að
þessu sinni haldin dagana
22. - 25. október og á
sama tíma Norræna
safnastefnan. Að sögn
verður bókastefnan hin
umfangsmesta til þessa,
300 dagskrár og 500 þátt-
takendur í dagskránum.
Aðalþemu ársis em Börn
og unglingar og Menning-
ararfurinn. Meðal þess
sem verður í sviðsljósi á
safnastefnunni er hið nýja
Heimsmenningarsafn í
Gautaborg.
50 islendingar
fró upphafi
í kynningu frá bóka-
stefnunni segir að frá
byrjun hennar hafi 50 Is-
lendingar verið þátttak-
endur í dagskránum og frá
Ámi
Bergmann
Ólafur
Gunnarsson
Matthías
Johannessen
Hallgrímur
Helgason
upphafi hafi tengslin við
ísland verið í höndum
Önnu Einarsdóttur hjá
Máli og menningu.
Fjórir íslenskir rithöf-
undar verða meðal þátt-
takenda að þessu sinni.
Matthías Johannessen og
Arni Bergmann ræða
saman um „Island í skáld-
skap og veruleika" og
Ólafur Gunnarsson og
Hallgrímur Helgason,
sem báðir hafa samið
Reykjavíkurskáldsögur,
fjalla um borgina sem
spegilmynd „framfara og
neyslu".
Meðal þekktra rithöf-
unda sem koma til stefn-
unnar má nefna reyfara-
drottninguna Mary Higg-
ins Clark og bandaríska
skáldið Louis Simpson,
fulltrúa frásöguljóðsins.
TATE YFIR THAMES
FRAMKVÆMDUM við nýlistasafn Tate-safnsins í London miðar
örugglega áfram. Á myndinni horfa framkvæmdastjóri
nýlistasafnsins, Art Lars Nittve, og framkvæmdastjóri Tate-
safnsins, Nicholas Serota, út um glerþak safnahússins og norður
yfír Thames, þar sem Pálskirkjuna ber hæst. Nýlistasafnið
verður í endurbyggðu rafstöðvarhúsi og tekur tii starfa í
maímánuði árið 2000. Smíðuð verður göngubrú yfir Thames; sú
fyrsta í 100 ár.
NORRÆN TÓNLIST Á VARSJÁRHAUSTI
TVÖ ÍSLENSK VERK FRUMFLUTT
VARSJÁRHAUSTIÐ,
„Warszawska ,Jesien“, er
með þekktustu nútímatón-
listarhátíðum í heiminum
og hefur verið haldin á
hverju ári síðan 1958. Að
þessu sinni verður norræn
tónlist í brennidepli. Á
morgun, sunnudag, heldur
CAPUT, ásamt Sigrúnu
Eðvaldsdóttur, tónleika á
hátíðinni.
Á efnisskránni eru
Fiðlukonsert Hauks Tómassonar, saminn íyr-
ir Sigrúnu og CAPUT og frumfluttur var á
Listahátíð síðast liðið vor;
La Metrique du Cri, eftir
Atla Ingólfsson; frumflutn-
ingur á lagi Atla Heimis
Sveinssonar: Islenskt
Rapp; Chant Chains, eftir
fínnska tónskáldið Veli-
Matti Puumala og
Marchenbilder, eftir
danska tónskáldið Hans
Abrahamsen. Stjómandi er
Guðmundur Óli Gunnars-
son.
Þá mun Sænska Útvarpshljómsveitin frum-
flytja hljómsveitarverk eftir Hauk Tómasson.
SJONLEIKUR
í TJARNARBÍÓI
SJÓNLEIKUR er nýstofnað leikfélag
sem ætlar að sýna leikritið Svartklæddu
konuna, breskt leikverk, eftir Stephen
Mallatratt. Leikritið er byggt á hroll-
vekju Susan Hill. í West End hefur sýn-
ingin gengið samfellt í tíu ár.
Leikgerðin fer á fjalimar í Tjarnarbíói
í byrjun október. Að uppsetningu verks-
ins stendur hópur atvinnuleikhúsfólks
undir nafninu Sjónleikur. í aðalhlutverk-
um eru Arnar Jónsson, sem leikur eldri
manninn og Vilhjálmur Hjálmarsson,
sem leikur þann yngri. Leikstjóri er Guð-
jón Sigvaldason og aðstoðarleikstjóri
Bryndís Petra Bragadóttir.
Atli Heimir
Sveinsson
Haukur
Tómasson
MENNING/
LISTIR
NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Ásmundarsafn - Sigtúni
Yfirlitss. á verkum Ásmundar Sveinssonar.
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1
Greipar Ægis: Sandskúlptúrar. Til áramóta.
Gallerí Art Hún, Stangarhyl 7
Toshiko Takaezu. Leirlistaverk. Til 4. okt.
Gallerí 20 fermetrar, Vesturgata lOa
Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.
Gallerí Fold, Rauðarárstíg
Gunnar Bjamason. Til 4. október.
Gallerí Fold, Kringlan
Samsýningin Hvalir.
Gallerí Kambur, Holta- og Landsveit
Ólafur Elíasson. Til. 4. okt.
Gallerí Listakot
Samsýning 13 listakvenna. Til 26. sept.
Galleríkeðjan Sýnirími
Sýnibox v. Vatnsstíg: Almee Simons.
Gallerí Barmur: Gunnar Magnús Andrésson.
Gallerí Hlust, simi: 551 4348: Story, cftir Ja-
net Passehl. Út sept.
Sjónþing Kiástins G. Harðarsonar. Tii 30.
sept.
Gerðuberg: Sjónþing Kristins G. Harðarson-
ar. Til 24. okt.
Hafnarborg
Apótekið: Ljósmyndasýning Bernts Schlus-
selburg. Sverrissalur: Margrét Guðmunds-
dóttir, olíumyndir. Aðalsalur: Anna Sigríður
Siguijónsdótir, skúlptúrar. Til 5. okt.
Hallgrimskirkja
Ti-yggvi Ólafsson. Til septemberloka.
Kjarvalsstaðir
-30 / 60+, samsýning tveggja kynslóða.
Listasafn ASÍ
Gryfjan: Jun Kawaguehi. Ásmundarsalur:
Þóra Sigurðardóttir. Til 4. okt.
Listasafn Einars Jdnssonar, Skólavörðuholti
Opið laugardaga og sunnudag 14-17.
Höggmyndagarðurinn opinn alla daga.
Listasafn Kdpavogs, Gerðarsafn
Sigrún Eldjám. Bridget Woods. Margrét
Sveinsdóttir. Til 27. sept.
Listasafn íslands
íslensk abstraktlist 1950-60. Til 25. okt.
Listaskálinn, Hveragerði
Ljósmyndasýning Mats Wibe Lund. Til 20.
sept.
Listhús Ófeigs, Skdlavörðustíg 5
Sveinbjörg Hallgrímsdóttir. Til 19. sept.
Mokkakaffi, Skólavörðustíg
Orri Jónsson sýnir ljósmyndir. Til 10. okt.
Norræna húsið, Hringbraut
Roj Friberg. Til 27. sept.
Andy Homer. Ljósmyndir írá Álandseyjum.
Til 30. sept.
Nýlistasafnið
Sýning í umsjá Harm Lux. Sýnendur eru frá
Sviss, Ungverjalandi og Islandi. Safnasýning.
Til 27. sept.
Safn Ásgríms Jdnss., Bergstaðastræti 74
Sumarsýning á verkum Ásgríms.
Sjdmipjasafn íslands, Hafnarfirði
Sumarsýning á ljósmyndum Helga Arasonar.
Stofnun Áma Magndssonar, Ámagarði v.
Suðurgötu
Handritasýning. Til 14. maí.
SPRON, Wjjddd
Harpa Bjömsdóttir sýnir til 24. okt.
TÓNLIST
Laugardagur
Listasafn Kdpavogs: Boris Guslitser. Kl.
20.30.
Kirkjuhvolur við Vídalínskirkju: Finnur
Bjamason barítónsöngvarinn Gei+its Schuil
píanóleikari. Kl. 17.
Sunnudagur
Fella- og Hólakirkja: Tríó Reykjavíkur. Kl.
•17.
Norræna húsið: Wout Oosterkamp, bass-
bariton og Jan Willem Nelleke, píanóleikari.
Kl. 17.
Listasafn Kópavogs: íslenska tríóið: Sigur-
björn Bemharðsson, fiðla, Sigurður Gunnars-
son, selló og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
Kl. 20.30.
Fimmludagur
Kaffiieikhúsið: Ingveldur Ýr, mezzósópran og
Gerrit Schuil, píanóleikari. Kl. 21.
LEIKLiST
Þjdðleikhúsið
Bróðir minn ljónshjarta, frums. lau. 19. sept.
Sun. 20. sep.
Borgarleikhúsið
Grease, lau. 19„ sun. 20., fös. 25. sept.
Sex í sveit, lau. 19., fim. 24. sept.
Iðnd
Rommí, lau. 19., sun. 20., mið. 23., fim. 24. sept.
Dimmalimm, frums. 20. sept.
íslenska óperan
Ávaxlakarfan, sun. 20. sept.
Helli8búinn lau. 19., fim. 24., fös. 25. sept.
Loftkastalinn
Bugsy Malone, sun. 20. sept.
Hafnarfjarðarleikhúsið
Við feðgamir, lau. 19. sept.
Síðasti bærinn í dalnum, sun. 20. sept.
Kaffileikhúsið
Svikamylla, fos. 25. sept.
Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eft-
ir að birtar verði f þessum dálki verða að hafa
borist bréflega eða á netfangi fyrir kl. 16 á
miðvikudögum merktar: Morgunblaðið,
Menning/listir, Kringlunni 1,103 Rvík. Mynd-
sendir: 5691222. Netfang: menning@mbl.Ls.
2 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 19. SEPTEMBER 1998