Lesbók Morgunblaðsins - 19.09.1998, Qupperneq 11
/
/t
úí;;
SUÐURIANDS-VIDEO
GAMLA Landsbankahúsið við Austurveginn er enn notað, en það er eitt af elztu húsunum
á Selfossi og var flutt þangað 1919 frá Búðardal.
MYNDIN af Agli Gr. Thorarensen framan við verzlunarhús KÁ er vel við hæfi, en því miður alltof
smá. í baksýn er Kaffi Krús með litskrúðugri veggmynd.
Ljósmyndir :Lesbók/Gísli
VERZLUNARHÚS KÁ með merkinu góða sem nú hefur fengið tignarsess á forhiiðinni.
landi, hefur í seinni tíð verið hafið til vegs og
virðingar að nýju og skreytir nú nýja húsið.
Enginn veit lengur með vissu hver teiknaði
merkið, en það gæti þó hafa verið Tryggvi
Magnússon.
Austan við eldra kaupfélagshúsið, þar sem
nú er ráðhús bæjarins, Héraðsskjalasafn, svo
og Bæjar og héraðsbókasafn, hefur risið annað
hús, sem einnig hefur tekizt vel og styður þann
prýðilega miðbæjarkjarna sem þarna er orðinn
að veruleika. Þetta hús er nefnt Miðgarður og
er höfundur þess Guðmundur Karl Guðjónsson
tæknifræðingur og forstöðumaður Verkfræði-
stofu Suðurlands. Hann hefur tekið þann kost
að láta það ríma í útliti við eldra kaupfélagshús-
ið. Það er án ýmissa þeirra einkenna sem bund-
in eru við tízku allra síðustu ára í byggingarlist,
en ekki verra fyrir það. Þar fyrir sunnan sést í
Sigtún, íbúðarhús kaupfélagstjórans, sem Sig-
mundur Halldórsson arkitekt teiknaði 1934.
Það hefur til að bera afbragðs góð stærðarhlut-
föll og tímalausa fegurð. Meira en mannhæðar-
há víggirðing kringum húsið að sunnan og vest-
an er hinsvegar sízt til prýði og hávaxin tré
skyggja að mínu mati of mikið á það. Húsið
naut sín betur fyrr á árum eins og sést af mynd
sem hér fylgir.
Þeir sem aka um Austurveg á austur- eða
vesturleið sjá hinsvegar ekki Fjölbrautaskól-
ann, sem dr. Maggi Jónsson arkitekt hefur
teiknað og hefur ekki sízt vakið athygli fyrir
glugga sem að líkindum er sá stærsti á landi
hér. Þarna er glæsilegt dæmi um nútímalegan
arkitektúr og er í rauninni miður að þetta hús,
ein af lykilbyggingum í bænum, skuli ekki sjást
frá alfaraleiðinni. Ekki ber heldur mikið á
Listasafni Árnesinga, en safnið á góð listaverk
og af því sem safninu hefur áskotnast munar
ugglaust mest um listaverkagjöf Bjarnveigar
Bjamadóttur, en hún átti álitlegt safn mynda
AUSTURVEGUR, aðalgata bæjarins. Þar sem rykmökkurinn reis áður undan umferð þungra bíla
þegar þornaði er nú komin falleg umferðargata, prýdd stæðilegum trjám.
ir ekki aðeins stóra og glæsilega verzlun kaup-
félagsins, heldur einnig nokkrar verzlanir sem
kaupmenn standa að, svo og fleiri fyrirtæki.
Fyrir nokkrum áratugum hefði það verið
óhugsandi.
Það er vel við hæfi að höfuðmynd brautryðj-
andans, Egils Gr. Thorarensen, hefur verið
komið fyrir á háum stalli framan við bygging-
una, en þeir sem að því stóðu hafa ekki vitað að
mannamyndir utan dyra verða alltaf að vera í
yfirstærð. Að reisa Agli einskonar títuprjóns-
haus var sízt við hæfi.
Verzlunarmiðstöðin er vel teiknað og glæsi-
legt hús á nótum módernismans en stendur
engu að síður vel sem meginstoð á móti eldra
kaupfélagshúsinu, þar sem meira var tekið
mið af klassískri hefð. Skemmtilegt er að sjá,
að gamalt firmamerki Kaupfélags Ái'nesinga
sem mér hefur lengi fundizt að sé eitt bezta
firmamerki sem enn hefur verið teiknað á ís-
eftir Ásgn'm Jónsson, sem hún gaf Árnesingum
og varðveittar eru í safninu.
Fleiri kunnir arkitektar hafa lagt sitt af
mörkum til uppbyggingar á Selfossi. Fremst-
an meðal jafningja má þar telja Guðjón Samú-
elsson, húsameistara ríkisins, sem á heiðurinn
af hinni upprunalegu byggingu Mjólkurbús
Flóamanna, svo og Landsbankahúsinu með
samskonar nýklassískum einkennum og aðal-
bækistöð bankans við Austurstræti í Reykja-
vík. Mjólkurbúið var endurbyggt á árunum
1953-59 eftir teikningum Skarphéðins Jó-
hannssonar, sem fórnaði burstunum frá fyrra
mjólkurbúinu og hannaði hús í takt við tím-
ann.
Gunnlaugur Halldórsson arkitekt teiknaði á
sínum tíma Selfossbíó ásamt gildaskála; hús
sem brotið var niður 1986 og síðan teiknaði Sig-
urður Thoroddsen arkitekt stóra hótelbygg-
ingu á sama stað. Lítið eitt vestar, á stað sem
blasir við af Ölfusárbrú, stendur Selfosskirkja,
eitt stærsta og bezta verk Bjarna Pálssonar,
tæknifræðings frá Hlíð í Gnúpverjahreppi.
Bjarni var snjall stærðfræðingur eins og þeir
Hlíðarmenn, en auk þess var hann gæddur list-
rænni tilflnningu og hann gegndi lykilhlutverki
sem skólastjóri Iðnskólans á Selfossi og bygg-
ingarfulltrúi bæjarins um árabil. Sjálfur teikn-
aði hann þar fjölmörg hús.
Á Selfossi gat hæglega farið eins og víða
annarsstaðar, að myndast hefði tiltölulega mjó
umferðargata í miðju bæjarins. En það voru
framsýnir menn sem skipulögðu breiðgötu
þarna, svo nú má líta svo á að hún sé hluti af
torginu í miðju bæjarins og þar að auki nægi-
lega breið til þess að hávaxin tré skipta henni
nú í tvennt.
Tryggvagarður og skrúðgarðurinn við
Sunnuhvol eru nú ekki lengur einu skógarlund-
irnir á Selfossi, heldur gnæfir trjágróðurinn yf-
ir bæinn hvar sem farið er. íþróttavöllurinn
sem var á berangri fyrir 40 árum hefur nú skjól
af skógi og í næsta nágrenni við hann er fallegt
og hlýlegt tjaldstæði þar sem Þjórsárhraun
gægist uppúr sverðinum og einnig þar er skóg-
ur. Þetta skiptir verulegu máli þarna, því ekki
er beint hægt að tala um veðursæld á Selfossi
og sérstaklega þótti norðanáttin nöpur á meðan
fátt var um skjólmyndun.
Það sem eftir stendur þegar þetta dæmi er
gert upp, er að Selfoss er nú orðinn bær með
eftirtektarverðan menningarsvip og þar að
auki mun meiri borgarbrag en venjulega verð-
ur í fjögur þúsund manna bæjum. Selfoss nýtur
þeirrar sérstöðu að vera verzlunar- og sam-
göngumiðstöð fyrir stórt svæði. Þar eru sem
fyrr, margir á ferðinni, og einungis það að um
2000 sumarbústaðir eru í Árnessýslu, hefur
haft í för með sér geysilega aukningu fyrir
verzlun og veitingasölu á Selfossi.
Nú verða ferðamenn að leita sér að einhverju
í gogginn annarsstaðar en í Tryggvaskála þar
sem fyrr á árum var boðið uppá rammíslenzka
ketsúpu og annað eftir því. Nú leita menn að
hamborgurum og öðru venjulegu túristafæði og
finna það til dæmis í grillskálanum Fossnesti,
en vilji menn hafa það veglegra er hvað sem er
í boði á Inghóli eða Hótel Selfoss. I golfskálan-
um við Svarfhólsvöll eru ágætar veitingar og
völlurinn, sem hefur verið í uppbyggingu, er nú
nánast tilbúinn í endanlegri mynd.
Uppáhaldsveitingahús mitt á Selfossi er
hinsvegar Kaffi Krús í gömlu bárujárnsklæddu
timburhúsi við Austui-veginn, næsta hús við
nýju verzlunarmiðstöðina. Þar fæst afburða
gott kaffi og tertubúskapur nær óvíða öðrum
eins hátindum. Þetta er ekki ósvipað og Kaffi
Lefolii á Eyrarbakka; ber með sér andrúm lið-
ins tíma og svo hengja staðarmálarar upp
myndir í Kaffi Krús, ýmist til hrellingar eða
gleði eins og gengur.
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/LISTIR 19. SEPTEMBER 1998 1 1