Alþýðublaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 09.12.1986, Blaðsíða 3
s>» ÆVISÖGUR í ÖNDVEGI A imsjómu bomin best Emil Bjömsson skrifar um eigiö líf og aldarfar v Málsniilingurinn séra Emil Björnsson, fyrrum fréttastjóri sjónvarps, lýsir eigin lífl og aldarfari. Persónulegur stíll hans, alvara, sKop og skáldleg efnistök gera frásögnina einstæða og atburði Ijóslifandi. Svona skrifar sá einn sem er af kynþætti aust- firsku skáldanna. Segja má að þessi þroskasaga sé oft líkari skáldsögu en æviminningum, þótt heimildarsaga sé. Það gerir einmitt gæfumuninn að skáldleg sýn ræður búningnum svo hann verður aldrei hversdagslegur. Þó er það hversdagslífið sjálft og baráttan fyrir því sem er efni bókarinnar. Framan af er frásögnin eins konar fagnaðarljóð ungs hjarðsveins með tregablöndnum undirtóni, sem naumast lætur nokkurn ósnortinn. Er á líður harðnar tónn hörpunnar og þá fer bókarheitið, Á misjöfnu þrífast börnin best, að skiljast betur. . HRAFN A HALIjORMSSTAB HALLDÓRE SKiURÐSSOX rekur minningar sinar Minningar Huldu A. Stefánsdóttur Bilin á að brúa MalldórE. Sigurðsson rekur minningar sínar Hrafh á Hallormsstað og lífið kríngum hann 2. bindi — Æska í öðru bindi endurminninga sinna riQar Hulda upp æskuárin á Akureyri og unaðsstundir í Höfn. Fólk og atvik verða Ijóslifandi. Hulda riQar upp kynni af æskuvini sínum, Davíð Stefánssyni, og bregður upp myndum af samverustundum þeirra uns leiðir skiljast. í bókinni eru rúmlega 80 gamlar Ijósmyndir sem varpa lífi og lit á horfinn tíma og umhverfi þeirra ævi- og menningarsögu sem þar er sögð. „Hulda Á Stefánsdóttir er ein þeirra kuenna sem sett hafa suip á öldina og þjóðin öli þekkir og ann." — siðara bindi Litríkurstjórnmálaferill, átökinnan fiokksog utan, samherjar og andstæðingar, minnis- verðir atburðir og uppákomur, hnyttni og gamansemi. Allir þessir þættir koma við þessa sérstæðu sögu. í fýrra kom út fyrra bindi endurminninga Halldórs E. Sigurðssonar fyrrum ráðherra, sem skipaði sér þegar í röð mest seldu bóka. Hér er komið síðara bindið þar sem Halldór heldur áfram að rekja minningar sínar og lýsir þátttöku í stjórnmálum undanfarna áratugi. Við sögu koma fjölmargirsamferða- menn sem mótað hafa íslandssöguna um skeið. Skráð af Ármanni Halldórssyni Hrafn á Hallormsstað hefur margt lifað og reynt, slarksamar ferðir á Lagarfijóti ísilögðu og á Fagradal í vetrarveðrum á bernsku- dögum bílaaldar. Frá mörgum samferða- mönnum segir hann í þessari bók og má þar t.d. nefna Gunnar Gunnarsson skáld á Skriðu- klaustri, en kynni þeirra urðu mjög náin. Hrafn hefur séð austfirskar byggðir taka miklum stakkaskiptum síðastliðna hálfa öld. Sjálfur hefur hann stundað búskap, vegavinnu, skógrækt, vörubílaakstur og sitthvað fieira. Lýsingar Hrafns á aldarfari og lífsháttum á Héraði og niðri á Fjörum eru þess eðlis að bókin mun verða talin merk heimild um það efni er stundir líða. BÓKAÚTGAFAN ÖRN & ÖRLYGUR Síðumúla 11, sími 84866

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.