Alþýðublaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 03.02.1989, Blaðsíða 6
6_,__________________________ SMÁFRÉTTIR Þrír nýskipaðir sendiherrar afhentu um helgina for- seta íslands trúnaðarbréf sín að viðstöddum Jóni Bandvini Hannibals- syni, utanríkisráðherra. Þeir eru: Sendiherra Botswana, hr. Geoffrey Gabotsewe Garebamono; sendiherra Kanada, hr. Graham Mitcheil; og sendiherra Júgóslaviu, hr. Zlatan Kikic. Sendiherrarnir þágu siðan boð forseta íslands aö Bessastöðum ásamt fleiri gestum. Sendiherra Botswana hefur aðsetur í Stokkhólmi, en sendiherrar Kanada og Júgó- slaviu i Osló. Dagsbrún: Málaferli Flug- leiða kalla á heift og hatur Vegna málaferla Flugleiöa gegn Verslunarmannafélagi Suðurnesja vill stjórn Dags- brúnar lýsa því yfir, aö hún harmar þessi vinnubrögö Flugleiöa. „Um tæplega 3ja áratuga skeið hafa t.d. Dagsbrún og verkalýösfélögin áSuðurnesj- um veitt íslenskum flugfélög- um margþættar undanþágur í verkföllum og má nefna sem dæmi, aó ef ekki heföi komið til undanþágu Dagsbrúnar viö Loftleiðir á sínum tíma í hörðu og ströngu verkfalli hefðu Loftleiðir orðiö gjald- þrota. Fjölmörg dæmi má nefna um undanþágur sem verkalýðsfélögin á Suðurnesj- um hafa veitt flugrekstri til útlanda í verkföllum. Mörg þessara dæma eru mun víð- tækari en svo að forstjóri eóa forráðamenn Flugleiða hefðu getað leyst. Milli þessara verkalýðsfélaga og Flugleiða hafa alltaf farið fram víðræð- ur og reynt hefur verið að finna lausnir meö velvild og skilningi. Ef Flugleiðir ætla nú, eftir kröfu VSI, að hefja málaferli og kröfur á Verslunarmanna- félag Suðurnesja er næsta víst að upp spretti heift og hatur milli verkalýðsfélag- anna og Flugleiða. Stjórn Dagsbrúnar væri óljúft að millilandaflug til ís- lands og frá færðist í vaxandi mæli á hendur erlendra flug- félaga — en við óttumst að þessi óábyrga afstaða Flug- leiða muni stuðla að slíkri þróun. Þessi málaferli geta að ein- hverju leyti þjónaö stjórn VSI, en þau eru óábyrg og hættu- leg Flugleiðum. Stjórn Dagsbrúnar skorar því á Flugleiir að draga til baka málsókn þessa, því hverjar sem niðurstöður dóm- stóla verða, þá verða þær öðrum fremur íslensku milli- landaflugi til skaða.“ Tillagan var samþykkt ein- róma. Banka- starfsmenn gegn breyttri lánskjara- vísitölu Eftirfarandi ályktun var samþykkt á fundi stjórnar Sambands íslenskra banka- manna 26. þessa mánaðar. „Stjórn Sambands ís- lenskra bankamanna mót- mælir þeirri ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að tvöfalda vægi launa í lánskjaravísitöl- unni. Þessi ákvörðun þjónar ekki hagsmunum launþega eins og sakir standa og er tekin án samráðs við laun- þegasamtökin í landinu. Hin nýja lánskjaravísitala hlýtur að torvelda mjög allar samningaviðræður og gerð kjarasamninga á næstunni. Kaupmáttur launa er nú í lág- marki, eftir rösklega hálfs árs lögbundna kjaraskerðingu. í komandi kjarasamningum er stefnt að því að auka kaup- máttinn verulega. Við slíkar aðstæður er hin nýja láns- kjaravísitala lántakendum því ekki í hag, þvert á móti eykur hún greiðslubyrði þeirra til langframa. Samkvæmt nýju lánskjavísitölunni hækka verðtryggð lán um 51/2% samhliða 10% launahækkun. Með henni reyna stjórnvöld að binda hendur launþega- samtakanna við gerð kjara- samninga á næstunni. Við slíkt verður ekki unað og því hljóta bankamenn að mót- mæla nýju vísitölunni harð- lega.“ Tannverndar- dagurinn 1989 Hinn árlegi tannverndar- dagur, hinn sjötti frá upphafi, er í dag, 3. febrúar. í tengsl- um við hann verður lögð áhersla á umfjöllun um mat- arvenjur íslendinga og flúor- tannkrem. Veröur upplýsing- um aðallega komið á fram- færi á eftirtalinn hátt. 1. Aðstoðarfólk tannlækna mun veita fræðslu um varnir gegn tannskemmd- um í tveimur eða fleiri stórmörkuðum. 2. Tannfræðingar munu heimsækja sjúkrastofnan- ir. 3. Áletrun mun veröa á strætisvögnum Reykjavík- ur og Kópavogs og munu viðkomandi sveitarfélög kosta birtinguna. 4. Birtar verða greinar, skrif- aðar af lækni, næringar- fræðingi og tannlæknum. Eru kennarar hvattir til að nota greinarnar við fræðslu og gerð ritgerða i skólum landsins, eins og margir kennarar gerðu á síðasta tannverndardegi þegar fjallað var um vatn. 5. Fjölmiðlar verða hvattir til að fjalla um málefni tann- verndardagsins. Auk þessa hafa ýmsir aðrir aðilar verið hvattir til að fræða um varnir gegn tann- skemmdum. Góð samvinna hefur tekist á undanförnum tannverndar- dögum við ýmsa af þeim aðil- um sem beita sér fyrir for- vörnum á ýmsum sviðum, t.d. menntamálaráðuneytið, um- ferðarráð, skáta, tannlækna, aðstoðarfólk tannlækna, tannfræðinga og heilbrigðis- málaráð Reykjavíkur, svo nokkrir séu nefndir, og hefur það auðveldað forvarnarstörf- in. Prestvígsla á sunnudag Magnús Gamalíel Gunnars- son guðfræðingur hlýtur prestvígslu á sunnudaginn af biskupi íslands, herra Pétri Sigurgeirssyni. Vígsluvottar verða; Sr. Baldur Vilhelmsson, settur prófastur ísafjarðarprófasts- dæmis, sr. Bernharður Guð- mundsson, fræðslustjóri kirkjunnar, dr. Björn Björns- son, forseti guðfræðideildar, og sr. Jakob Ágúst Hjálmars- son, sóknarprestur á ísafirði. Magnús Gamalíel Gunnars- son er þrítugur að aldri. For- eldrar hans eru Guðrún Hrönn Hilmarsdóttir og Gunnar Magnússon, Reykja- vík. Hann lauk guðfræðiprófi nú í janúarlok. Kona hans er Þóra Ólafsdóttir Hjartar fóstra og eiga þau einn son. Vígslan verðurvið guðs- þjónustu í Dómkirkjunni í Reykjavík og sem fyrr segir á sunnudaginn kemur, þ. 5. febrúar. Sr. Kristinn Ágúst Frið- finnsson annast altarisþjón- ustu. Dómkórinn og Marteinn H. Friðriksson organleikari ann- ast flutning tónlistar. Spönsk dagblöð á íslandi Morgunblað Spánar El Pais fæst nú samdægurs á ís- landi. El Pais er útbreiddasta morgunblað Spánar og í hópi þeirra virtustu og er auk þess eins spánska dagblaðiö í al- þjóðlegri dreifingu. Með því að El Pais fæst nú samdæg- urs hér á landi er einnig i fyrsta skipti hægt að kaupa spánskt dagblað á íslandi. El Pais kemur hingað með hrað- boða og fæst á blaðsölu- stöðum um kl. 14.00 á útgáfu- degi. Hér kostar blaðið 125 i lausasölu og er selt á eftir- töldum stöðum: Eymunds- son Austurstræti, Pennanum Kringlunni, Söluturninum Laugalæk 4 og í Bóksölu stúdenta. Boðfélagið annast afgreiðslu hér á landi fyrir El Pais. FELAG STARFSFOLKS í VEITINGAHÚ5UM ALLSHERJAR- ATKVÆÐAG REIÐSLA Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæða- greiðslu við kjör stjórnar og trúnaðarmannaráðs starfsárið 1989—1990. Tillögum berað skilaáskrifstOfu F.S.V. Ingólfsstræti 5 fyrir kl. 12 föstudaginn 10. feb. 1989. Kjörstjórn KRATAKOMPAN Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur Uppstillingarnefnd til stjórnarkjörs í Alþýðuflokks- félagi Reykjavíkur hefur lokið störfum. Niðurstöður hennar liggja nú frammi á skrifstofu Alþýðuflokksins Hverfisgötu 8—10. Skrifstofan er opin frá kl. 10—16 alla virka daga. Uppstillingarnefnd Félag frjálslyndra jafnaðarmanna boðartil fundarfimmtudaginn 9. febr. kl. 20.30 í sam- komusal tæknigarðs Háskóla íslands. Fundarefni: Peningastefna og fjármagnsmarkaður. Gestir fundarins, Sigurður B. Stefánsson forstöðu- maður verðbréfamarkaðar Iðnaðarbankans og Már Guðmundsson efnahagsráðunautur fjármálaráð- herra. Umræður að lokinni framsögu. Allir velkomnir. 1 . r 1 j': J J . Föstudagur 3. febrúar 1989 □ 1 .. 2 3 r 4 5 . V 6 □ 7 s *:v, 9 10 r- □ 11 1 ■■ □ 12 Lárétt: 1 fjölbýlishús, 5 þvílík, 6 nem, 7 forföður, 8 oft, 10 umdæmisstafir, 11 klæði, 12 jafningi, 13 hrelli. Lóðrétt: 1 föl, 2 hjálp, 3 klafi, 4 lumma, 5 pyntingartæki, 7 krafti, 9 mjög, 12 þyngdarein- ing. Lausn á síðustu krossgátu. Lárétt: 1 sadda, 5 mærð, 6 ári, 7 ær, 8 tónaði, 10 tt, 11 lin, 12 einn, 13 Gerða. Lóörétt: 1 særót, 2 arin, 3 dð, 4 aurinn, 5 máttug, 7 æðina, 9 alið, 12 er. • Gengií Gengisskráning nr. 23 — 2. feb. 1989 Kaup Sala Bandaríkjadollar 49,950 50,070 Sterlingspund 87,847 87,698 Kanadadollar 42,056 42,157 Dönsk króna 6,8873 6,9038 Norsk króna 7,4093 7,4271 Sænsk króna 7,8885 7,9075 Finnskt mark 11,6109 11,6388 Franskur frankl 7,8593 7,8782 Belgiskur franki 1,2781 1,2811 Svissn. franki 31,4844 31,5600 Holl. gyllini 23,7208 23,7778 Vesturþýskt mark 26,7807 26,8450 ítölsk líra 0,03656 0,03664 Austurr. sch. 3,8072 3,8163 Portug. escudo 0,3265 0,3273 Spánskur peseti 0,4244 0,4254 Japanskt yen 0,38610 0,38703 irskt pund 71,536 71,708 SDR 65,4155 65,5727 ECU - Evrópumynt 55,8466 55,9808 • Ljósvakapunktar • RUV 20.35 Spurningakeppni fram- haldsskólanna. Undanfarnar vikur hafa skólarnir keppt á Rás 2, en nú er komiö að úr- slitaviðureignum í sjónvarps- sal. • Stöí 2 00.35 Nótt óttans. Night of the Grizzly. Búgarðseigandi nokk- ur og kona hans eiga undir högg að sækja í heimabyggð sinni. Fyrrverandi lögreglu- stjóri og fangi er hann dæmdi á embættistíma sínum láta ekki sitt eftir liggja við að reyna að klekkja á þeim. Þegar óboðinn gestur knýr dyra vandast tilveran. • Rás 1 19.32 Kviksjá. Þátturum menn- inguna. Friðrik Rafnsson og Halldóra Friðjónsdóttir finna eitthvað bitastætt. • Rás 2 16.45 lllugi Jökulsson segir þjóðinni til syndanna í nokkrar mínútur, þar til þjóðin sjálf segir öðrum til syndanna i símatlma. • RÓT 17.00 í hreinskilni sagt. Pétur Guöjónsson lætur móðan mása.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.