Alþýðublaðið - 27.09.1989, Page 7
Miðvikudagur 27. sept. 1989
7
UTLOND
Verslun og
viðskipli i
Bandarikjum og
Japan umdeild
Bandaríkjamenn telja, að hallinn á utanrikisviðskíptum
þjóðarinnar, sem var 120 milljarðar dollara i fyrra (var 152
milljarðar árið áður), sé vegna viðskipta við Japan. Þeir telja
að það hvað Japanir eru ófúsir að auka neyslu heima fyrir, á
kostnað fjárfestinga erlendis, sé ein aðalástæðan fyrir þess-
ari útkomu.
Bandaríkin telja að
Japanir hafi lykla-
völdin að blómlegra
alþjóðlegu efnahags-
lífi.
Þessar ásakanir á hendur Japön-
um hafa orðið til þess að heyrst
hafa raddir frá Japan um „kyn-
þáttafordóma" vegna þessa „anti-
Japan“-áróðurs. Þessar raddir eiga
sér stoð í sögunni: Orðtök eins og
„gula hættan" og „við munum
Pearl Harbour" rista djúpt í banda-
rískri þjóðarsál. Hin miklu kaup
Japana á fasteignum og fyrirtækj-
um á Hawaii og á vesturströnd
Bandaríkjanna hafa ýtt undir
„anti-Japan"-raddir ýmissa hópa í
Bandarikjunum.
Trúlega er leit að blóraböggli í
sálfræðilegum skilningi hluti
þessa áróðurs. Sumir segja að
þetta sé ein af afleiðingum „reag-
anismans", en Reagan forseti lét í
veðri vaka að Bandaríkjamenn
væru meistarar (heims) á öllum
sviðum og kallaði þá óþjóðlega
sem ekki voru á sama máli. „Hann
kenndi okkur að láta fara vel um
okkur í þjóðarrembu okkar og for-
Kastar Bush forseti steinum úr glerhúsi?
dómum, og kom því inn hjá þjóð-
inni að allt sem aflaga færi væri
öðrum að kenna," sagði kona ein
úr þingmannastétt fyrir kosning-
arnar á árinu sem leið.
Nýir tímar____________________
Það er orðið deginum ljósara að
Japan og Bandaríkin tala ekki
sama tungumál þegar orðtök eins
og „opnir markaðir" og „frjáls
samkeppni" eru til umræðu.
Margir bandarískir frammá-
menn í iðnaði hafa bent á hvað
Bandaríkjamenn eru yfirleitt treg-
ir til að reyna að skilja menningar-
líf sem ekki er eins og þeirra eigið,
og þá um leið efnahagskerfi og
markaði annarra þjóða. Þeir segja
það vera eina af ástæðum þessara
vandamála í sambandi við Japan.
Bandarískur kaupsýslumaður,
með mikla reynslu í viðskiptum
við Japan, segir: „Þessi sannfær-
ing um eigið ágæti, sem margir
Bandaríkjamenn virðast haldnir,
rennir stoðum undir orðtakið
„Arrogance and ignorance hold
hands" („mont og fáfræði haldast
í hendur")."
(Arbeiderbladet, stytt.)
SJÓNVARP
Stöð 2 kl. 15.25
HJÓNAERJUR
(I Will, I Will... For Now)
Bandarísk bíómynd, gerd 1976, leik-
stjóri John Cameron, adalhlutverk
Elliot Gould, Diane Keaton, Paul
Sorvino, Victoria Principal.
Gamanmynd sem fjallar um fráskil-
in hjón (Gould og Keaton) sem af-
ráða að taka saman á nýjan leik.
Þetta er allra sæmilegast grínmynd,
ekkert meir, þau hjónakorn eyða
myndinni í að uppgötva hvort ann-
að á nýjan leik. Pamela í Dallas kem-
ur þarna við sögu, blessunin sem
manni skilst að liggi hreinlega fyrir
dauðanum sem stendur í Dallas, en
þetta er auðvitað áður en hún varð
Pamela í Dallas og það kemur því
þessu máli hreinlega ekkert við.
Sjónvarpið kl. 20.35
NÝTT LÍF
Islensk kvikmynd, leikstjóri Þráinn
Bertelsson, aöalhlutverk Eggert
Þorleifsson, Karl Ágúst Úlfsson.
Fyrsta mynd Þráins um þá kumpána
Þór og DaníeJ sem reyndu fyrir sér
í ýmsum störfum á ferli þeirra í
myndum Þráins. í þessari mynd fara
þeir í fisk til Vestmannaeyja og þar
lenda þeir í hinum ýmsu ævintýrum
eins og að líkum lætur. Hinar tvær
myndirnar sem á eftir fylgdu, Dala-
líf og Löggulíf, voru ekki jafn vel
heppnaðar og þessi fyrsta, einkan-
lega vegna þess að persónur þeirra
Þórs og Daníels voru kannski ekki
alveg nógu skýrar, höfðu ekki nægi-
ieg sérkenni. I Nýju lífi eru nokkrir
ágætir brandarar þó heildin geti
varla talist mjög sterk. Allmargir
Vestmannaeyingar léku í myndinni
og gerðu margir þeirra hlutverkum
sínum hin bestu skil.
Sjónvarp kl. 22.00
ÁRIÐ 2048
(Áret 2048)
Seinni hluti norskrar myndar um
gróðurhúsaáhrifin svokölluðu. Fjall-
að er um þá spurningu hvort þau
séu raunveruleg eða ekki og ef svo
er hvort hægt sé að draga úr þeim
eða koma að einhverju leyti í veg
fyrir að þróunin haldi áfram á sömu
braut og verið hefur.
Stöð 2 kl. 23.30
GÓÐA NÓTT MAMMA
('night Mother)
Bandarísk bíómynd, gerd 1986, leik-
stjóri Tom Moore, adalhlutverk
Sissy Spacek, Anne Bancroft.
Myndin segir af ungri óhamingju-
samri konu sem afræður að binda
enda á líf sitt. Áður en af því getur
orðið verður hún að segja móður
sinni frá ákvörðuninni. Myndin seg-
ir síðan frá því þegar þær mæðgur
ræða málin. Myndin er vel leikin,
eðlilega þar sem á ferð eru tvær
stórgóðar leikkonur, henni er vel
leikstýrt og fallega klippt en verður
samt aldrei meira en kvikmyndað
sviðsverk sem stendur ekki nógu
traustum fótum því upplifunina af
sviðsleiknum vantar. Auk þess dett-
ur kvikmyndin í það far að gera
endirinn augljósari en efnið gefur til
kynna og þar með dettur niður
broddurinn úr verkinu. Leikritið,
sem er eftir Marsha Norman hlaut
Pulitzer verðlaunin á sínum tíma.
0 STÖD2
17.50 Sumargiugg- inn 15.25 Hjónaerjur 17.05 Santa Barbara 17.55 Ævintýri á Ký- þeríu
1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Yngismœr (8) 18.20 Þorparar
1900 19.20 Poppkorn 20.00 Fróttir og veö- ur 20.35 Nýtt líf 22.00 Áriö 2048 — Seinni hluti 19.19 1&19 20.30 Murphy Brown Einn vinsæiasti fram- haldsþéttur i banda- risku sjónvarpi. Aðal- hlutverk: Candice Bergen o.fl. 20.55 Framtiftarsýn 21.50 Óanir um óttu- bil 22.40 David Under
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok 23.05 I Ijósaskiptun- um 2230 Gófta nótt ’mamma 01.05 Dagskrárlok