Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 2
FRÉTTIR 2 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fylgstu með nýjustu fréttum www.mbl.isEyjólfur Sverrisson vill ekki fara til Danmerkur / C1 KR-stúlkur knúðu fram oddaleik gegn Stúdínum / C2 4 SÍÐUR12 SÍÐUR Sérblöð í dag VIÐSKIPTABLAÐ MORGUNBLAÐSINS S É R B L A Ð Á F I M M T U D Ö G U M U M V I Ð S K I P T I , S J Á V A R Ú T V E G & A T H A F N A L Í Á FIMMTUDÖGUM FIMM pör tvíbura eru um þessar mundir á leikskólanum Eyrarskjóli á Ísafirði. Tvíburarnir spanna flesta aldurshópa leikskólans og er yngsta parið aðeins eins og hálfs árs en það elsta hverfur senn úr skólanum. Sigurlína Jónasdóttir leik- skólastjóri segir það aldrei hafa komið fyrir áður að svo margir tví- burar hafi verið í leikskólanum sam- tímis og hugsanlegt að hér sé um einsdæmi að ræða hérlendis. Hún segir krakkana mjög fjöruga og ekki hafi orðið teljandi vandræði að þekkja þá í sundur þótt líkir séu. Að hennar sögn er vorfiðringur kominn í krakkana og hlakka þeir mikið til sumarsins, sérstaklega til ferðar sem farin verður í sveitina í vor. Tvíburarnir á Eyrarskjóli voru eldsprækir í gærmorgun þegar ljós- myndara bar að garði. Í aftari röð frá vinstri eru fyrst Sigurður Aron og Sara Rut, fædd 1996, foreldrar eru Þórhildur Sigurðardóttir og Snorri Jónsson. Þá koma Margeir og Þorbergur, fæddir 1997, foreldrar þeirra Ingibjörg Einarsdóttir og Haraldur Júlíusson. Í fremri röð f.v. eru Þórir og Eggert, fæddir 1998, foreldrar eru Dagrún Dagbjarts- dóttir og Halldór Jónsson. Þá koma Jóhanna Ósk og Ína Guðrún, fæddar árið 2000. Foreldrar eru Ingibjörg Guðmundsdóttir og Gísli Úlfarsson. Loks eru það Patrekur Darri og Þorsteinn Ýmir, fæddir 1998, for- oreldrar eru Jenný Elfa Árnadóttir og Hermann Þorsteinsson. Fimm tvíburapör á leikskóla á Ísafirði Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Ísafirði. Morgunblaðið. ÍSLENSK stjórnvöld skora á Ísrael að draga herlið sitt án tafar á brott frá sjálfstjórnarsvæðum Palestínu- manna í samræmi við síðustu álykt- anir öryggisráðs Sameinuðu þjóð- anna, í harðorðri orðsendingu sem utanríkisráðuneytið sendi ísr- aelskum stjórnvöldum í gær. Í yf- irlýsingunni er lýst þungum áhyggj- um yfir því sívaxandi og óhugnan- lega ofbeldi sem Ísraelsher beitir gagnvart Palestínumönnum á her- numdu svæðunum. Í orðsending- unni segir að áframhaldandi ofbeldi sé algerlega óviðunandi, þar með taldar sjálfsmorðsárásir Palestínu- manna. Í orðsendingunni leggja ís- lensk stjórnvöld áherslu á að lausn átakanna geti aldrei falist í hern- aðaraðgerðum, heldur þurfi að leita pólitískra lausna sem feli í sér stofn- un sjálfstæðs ríkis Palestínumanna sem geri þeim fært að búa við frið og lýðræði og jafnframt verði ör- yggi Ísraels tryggt. Báðir aðilar verði að láta af ofbeldisverkum strax og setjast að samningaborði án nokkurra skilyrða. Jafnframt þurfi að taka til alvarlegrar athug- unar að senda alþjóðlegar eftirlits- sveitir til svæðisins til að hindra frekari ofbeldisverk. Vandinn fyrir botni Miðjarðar- hafs verði aldrei leystur nema með beinum viðræðum milli ísraelskra stjórnvalda og fulltrúa heimastjórn- ar Palestínumanna. Grundvöllur varanlegra friðarsamninga verði að byggjast á Óslóarsamningunum, á grundvelli Tenet-áætlunarinnar og Mitchell-skýrslunnar, sem báðir að- ilar samþykktu á síðasta ári. For- senda friðar á svæðinu sé að stofnað verði sjálfstætt ríki Palestínu og réttur Ísraelsmanna til að lifa í friði og öryggi innan alþjóðlegra viður- kenndra landamæra verði viður- kenndur. Yfirlýsing utanríkisráðuneytis til ísraelskra stjórnvalda Ísraelar dragi her- lið brott án tafar STÓRTJÓN vegna elds og reyks varð í íbúð við Ásvallagötu í Reykja- vík síðdegis í gær. Þegar Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kom á staðinn var mikill eldur í íbúðinni sem er á jarðhæð þriggja hæða steinhúss. Þéttur reykur myndaðist í íbúðinni og réðust fjórir reykkafarar þar til inngöngu. Innra gler í gluggum var farið að springa af völdum hitans en vel gekk að ráða niðurlögum eldsins. Enginn var í íbúðinni þegar eld- urinn kviknaði, en íbúar á efri hæð létu slökkviliðið vita. Óttast var að tveir drengir, sem búa þar í foreldra- húsum, væru inni en síðar kom í ljós að þeir voru nýlega farnir út. Grunur um eldsupptök beinist að sjónvarpi í einu barnaherbergi íbúðarinnar, samkvæmt upplýsingum frá slökkvi- liðinu. Eldur á Ás- vallagötu Morgunblaðið/Júlíus Slökkviliðsmenn á vettvangi við Ásvallagötu í gær. Mikið tjón varð á innanstokksmunum. HLUTABRÉF breska verslunar- fyrirtækisins Arcadia hækkuðu um 5,83% í Kauphöllinni í London í gær og var lokagengið 349 pens. Baugur á um 20% í Arcadia. Gengi hlutabréfa Arcadia var 257 pens í byrjun febrúar þegar fyrir- tækið sleit viðræðum við Baug vegna tilboðs þess síðarnefnda í Arcadia sem hljóðaði upp á 280–300 pens á hlut. Hlutabréf Arcadia hafa því hækkað um tæp 36% á tveimur mán- uðum. Hlutabréf deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækk- uðu um 3,72% á Nasdaq-hlutabréfa- markaðnum í gær og var lokagengið 5,86 dalir. Hlutabréf Arcadia hækka TÆPLEGA 400 manns fluttu til höfuðborgarsvæðisins fyrstu þrjá mánuði ársins, samkvæmt tölum Hagstofunnar um búferlaflutninga, eða nákvæmlega 399 einstaklingar umfram brottflutta. Af þeim fluttu 246 af landsbyggðinni og 153 komu frá útlöndum. Á landsbyggðinni fækkaði íbúum vegna búferlaflutn- inga um 142. Á fyrsta fjórðungi ársins voru skráðar 11.859 breytingar á lög- heimilum einstaklinga í þjóðskrá. Innan sama sveitarfélags fluttu 6.685 manns, 3.519 á milli sveitarfé- laga, 956 til landsins og 699 frá því. Fleiri flytjast til landsins en til útlanda Á þessu tímabili fluttust 257 fleiri einstaklingar til landsins en frá því. Brottfluttir Íslendingar voru 59 fleiri en aðfluttir og að- fluttir erlendir ríkisborgarar voru 316 fleiri en brottfluttir. Á sama tíma árið 2001 var heildarfjöldi að- fluttra umfram brottflutta 494, að því er fram kemur í tilkynningu Hagstofunnar. Af landsvæðum utan höfuðborg- arsvæðisins voru tvö með fleira að- komufólk en brottflutt en 17 fleiri fluttu á Vesturland en frá því og sex fleiri fluttu til Suðurnesja en frá þeim. Flestir hafa flutt búferlum til Kópavogs Flestir fluttu frá Suðurlandi, eða 50, og Norðurlandi eystra, eða 40 einstaklingar. Af einstökum sveit- arfélögum fluttust flestir til Kópa- vogs, eða 156 manns, og Hafnar- fjarðar, eða 126. Flestir fluttu hins vegar frá Vestmannaeyjum (26), Húsavík (23) og Seltjarnarnesi (22). Búferlaflutningar fyrstu þrjá mánuði ársins Nærri 400 fluttu til höfuðborg- arsvæðisins ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.