Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 6
FRÉTTIR 6 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt þrjá karlmenn til fang- elsisvistar í þrjá, sex og átta mán- uði, skilorðsbundið í þrjú ár, fyrir að hafa brotist inn í galleríið Svart- hamar-Listhús við Skólavörðustíg í Reykjavík aðfaranótt 27. apríl á síð- asta ári og stolið þaðan listaverkum að andvirði 4 milljóna króna. Sá er hlaut þyngstan dóm braust aftur inn í galleríið sömu nótt og tók þaðan 5 málverk og tvær möppur með 41 vatnslita- og blýantsteikn- ingu. Áætlað söluverðmæti þeirra verka er 1,3 milljónir, að því er fram kemur í dómi héraðsdóms. Áður hafði hann í félagi við tvo aðra tekið ófrjálsri hendi 12 málverk að and- virði 2,7 milljóna króna, þar af nokkur eftir landsþekkta listmálara. Einn hinna ákærðu krafðist þess að málinu yrði vísað frá dómi. Rann- sókninni hafi verið áfátt þar sem ekki hafi verið fengnir kunnugir menn til að verðmeta verkin heldur látið nægja að miða við það verð sem galleríið hafi sett á þau. Frávís- unarkröfunni var synjað af héraðs- dómara, Pétri Guðgeirssyni. „Fann málverkin á leið sinni til vinnu“ Málavextir eru þeir helstir að lög- reglunni var tilkynnt, árla morguns 27. apríl í fyrra, um að sést hefði til manns bera málverk út úr Svart- hamri-Listhúsi. Eftir nokkra leit sáu lögreglumenn mann á gangi á Amtmannsstíg með nokkur málverk undir hendi. Reyndist það einn hinna ákærðu og gaf hann þá skýr- ingu á málverkunum og ferðum sín- um að hann hefði „fundið málverkin á leið sinni til vinnu“. Var hann handtekinn og síðar úrskurðaður í gæsluvarðhald. Eigandi Svartham- ars saknaði fleiri málverka og aug- lýsti lögreglan þá eftir þeim í fjöl- miðlum. Skriður komst á rannsóknina um mánuði síðar, í lok maí, þegar einn hinna ákærðu hafði samband við lögreglu og kvaðst búa yfir vitneskju um málið. Við yfir- heyrslur kom í ljós að hann var við- riðinn innbrotið í Svarthamar með því að hafa ekið tveimur félögum sínum á staðinn og einnig í burtu með málverkin. Faldi hann þau dag- inn eftir í bílhræi í Lækjarbotnum og vísaði lögreglu síðar á þau á vinnustað sínum. Áður hafði sá þriðji hinna ákærðu haft samband við eiganda Svarthamars og boðið honum að fá málverkin afhent gegn 800 þúsund króna greiðslu. Fyrir dómi viðurkenndu þre- menningarnir að hafa verið undir áhrifum fíkniefna þegar innbrotin áttu sér stað. Tveir þeirra brutust inn um glugga á niðurgrafinni kaffi- stofu gallerísins með því að spenna hann upp og skera í sundur rimla- grind sem er fyrir glugganum að innanverðu. Í vitnisburði annars þeirra kemur fram að ákveðið hafi verið að sá þriðji yrði eftir í bílnum þar sem hann hafi „ekki treyst sér í þetta vegna vaxtarlags síns (hann er mjög feitur)“, eins og fram kem- ur í dóminum. Sá er dæmdur var skilorðsbundið til 3ja mánaða fangelsisvistar á að baki óverulegan sakaferil. Sá er hlaut 6 mánuði hafði ekki gerst sek- ur um refsivert athæfi síðan árið 1979 en sá er hlaut 8 mánaða dóm á talsverðan sakaferil að baki sem nær aftur til ársins 1964. Frá því ári hefur hann gengist undir 24 dóm- sáttir fyrir umferðar- og áfengis- lagabrot, fíkniefnabrot og fyrir brot gegn lögreglusamþykktum. Þá hef- ur hann hlotið átta refsidóma fyrir þjófnað, skjalafals, gripdeild, fjár- svik og fjárdrátt, tékkalagabrot og brot gegn lögum um söluskatt. Síð- ast var hann dæmdur fyrir átta ár- um í 18 mánaða fangelsi fyrir fíkni- efnabrot. Hinum ákærðu er gert að greiða alls rúmar 500 þúsund krónur í mál- svarnarlaun. Verjendur þeirra voru Sigurður Georgsson hrl., Karl Georg Sigurbjörnsson hdl., Róbert Árni Hreiðarsson hdl. og Þröstur Þórsson hdl. Lögmaður ákæranda, lögreglu- stjórans í Reykjavík, var Hjalti Pálmason. Þrír menn dæmdir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir þjófnað úr galleríinu Svarthamri Stálu listaverkum að andvirði 4 milljóna ÁKVEÐIN þáttaskil í íslenskri flug- sögu urðu í gær þegar Ottó Tynes, flugstjóri, lagði upp í sína síðustu flugferð sem atvinnuflugmaður. Förinni var heitið til Edinborgar og Kölnar á Boeing 737 fraktflugvél Bláfugls. Hann verður 65 ára á laugardag og lætur því af störfum vegna aldurs. Auk þess að standa að stofnun flugskóla og klúbba, hefur Ottó samfara flugstörfum komið að bók- legri og verklegri flugkennslu hundruða nemenda í gegnum árin. Eftir nærri tuttugu ára þjónustu hjá Flugleiðum ákvað hann að söðla um á síðasta ári og eyða síðasta starfs- ári sínu í atvinnuflugi á nýjum vett- vangi. Síðasta vor og sumar starfaði hann sem flugstjóri á Twin Otter vél hjá Flugfélagi Íslands en flutti sig um set í september og lauk ferl- inum hjá Bláfugli. Ottó er fæddur á Siglufirði en eyddi fyrstu æviárunum í Noregi ásamt fjölskyldu sinni sem bjó í ná- grenni við Álasund. Það var á dög- um síðari heimsstyrjaldarinnar þeg- ar frændur okkar Norðmenn þurftu að þola hernám af hendi Þjóðverja. Frá 1945 hefur Ottó hins vegar að mestu leyti alið manninn á Íslandi. Segja má að það hafi verið af- drifaríkur göngutúr sem þeir fé- lagar Ottó Tynes og Karl Karlsson, fyrrverandi flugstjóri, fengu sér niður á Reykjavíkurflugvöll árið 1957. Ætlunin var að fara í eitt kynnisflug og sjá hvað væri í boði. Úr varð að báðir gerðu þetta að ævi- starfi. Nú 45 árum síðar hefur Ottó lagt að baki um 20 þúsund flugtíma. Að Ástralíu undanskilinni hefur hann heimsótt allar heimsálfurnar (70–80 þjóðlönd) og flogið fleiri flug- vélategundum en margur annar. Sú mikla reynsla skýrist líklega eink- um af því að á löngum starfsferli hefur Ottó upplifað sinn skerf af uppsögnum á samdráttartímum hér á landi á árum áður. Af þeim sökum þurfti hann að leita sér að vinnu hjá erlendum flug- félögum um árabil. Þegar hann lítur um öxl telur hann sig þó lánsaman að hafa ávallt hafa haft vinnu frá því að vera fyrst ráðinn til Loftleiða árið 1965. „Strax tveimur árum síðar þurfti félagið að grípa til uppsagna. Ég var í þeim hópi sem missti vinnuna en var ráðinn til Flugfélags Íslands sama ár.Í kreppunni 1969 dundu ósköpin yfir aftur og nánast öllum aðstoðarflugmönnum Flugfélagsins var sagt upp störfum. Þá fluttist ég til Danmerkur og réð mig í vinnu hjá Sterling Airways. Þar dvaldi ég í þrjú ár eða þar til Flugfélagið bauð okkur starf á ný, skömmu fyr- ir stofnun Flugleiða. Síðan hef ég unnið heima ef frá er talið eins og hálfs árs leyfi sem ég tók seint á átt- unda áratugnum er ég flaug fyrir þýska félagið „German Cargo“.“ Það gefur auga leið að á starfsævi sem spannar nærri 40 ár hljóta miklar breytingar að hafa átt sér stað í öllu vinnuumhverfi. Ottó tek- ur vissulega undir þá fullyrðingu, þar nægi að benda á gífurlegar tækniframfarir auk þess sem öryggi í flugi hefur vaxið gífurlega. Ottó kveðst hafa verið heppinn í gegnum tíðina. Aðspurður segir hann eft- irminnileg atvik auðvitað ótalmörg en sig reki ekki minni til þess að hafa lent í verulegri hættu. „Ég man þó einu sinni eftir því að hafa þurft að drepa á einum hreyfli vegna olíuhita á DC 8 í Afríku sem er ekkert tiltökumál í sjálfu sér. Þó lenti ég í því skömmu eftir að nýju Fokker 50 vélarnar komu hingað að nefhjól kom ekki niður í aðflugi inn til Akureyrar. Páll Stefánsson var með mér í áhöfn. Við snerum til Keflavíkur og lentum þar gift- ursamlega án þess að nokkur slas- aðist auk þess sem vélin skemmdist mjög lítið.“ Ottó kveðst tvisvar hafa fengið sprengjuhótun um borð í flugvél og neitar því ekki að hafa upplifað óþægilega tilfinningu. En þegar litið er til baka eru ánægju- stundirnar auðvitað margfalt fleiri en þær slæmu enda tel ég mig hafa notið forréttinda að geta sameinað áhugamál og vinnu í gegnum tíðina og kynnst öllu því góða fólki sem raun ber vitni.“ Ottó Tynes er engan vegin sestur í helgan stein. Hann heldur einka- flugmannsréttindum sínum, sem hann nýtir sér sem meðlimur í flug- klúbbnum Þyt, auk þess sem hann hefur hug á að starfa áfram að kennslumálum í framtíðinni. Ottó Tynes lætur af störfum eftir 40 ára flugmannsferil Hef verið lán- samur í lífinu Ottó í stjórnklefanum í gær. Ljósmynd/Ingvar Tryggvason Björn Thoroddsen í síðasta fluginu. Á móts við Kjalarnes komu tvær listflugvélar til móts við þotuna og flugu samsíða henni yfir Reykjavík. BJÖRN Thorodd- sen, flugstjóri hjá Flugleiðum, flaug Boeing 757 flugvél frá Kaupmanna- höfn til Keflavíkur í gær og var þetta síðasta flug hans sem atvinnu- flugmaður, en hann mun halda upp á 65 ára afmælið sitt í dag. Við þau ald- ursmörk verður hann að láta af störfum. „Ég er ekki hætt- ur að fljúga heldur held áfram í sportfluginu,“ segir Björn, sem byrjaði sem atvinnu- flugmaður hjá Loftleiðum 1962. „Það hefur gengið vel hjá mér. Ég er ekki orðinn þreyttur á þessu og hefði alveg verið tilbú- inn að halda áfram en þetta eru reglurnar og ég er sáttur.“ Hann bætir við að nóg sé af flugvélum til að fljúga en einna helst sakni hann flugfreyjanna. Þær hafi ver- ið sérstaklega elskulegar í loka- fluginu og meðal annars kvatt sig með blómum. Björn lauk við að smíða list- flugvél 1985 og er að smíða aðra. Meðan á fluginu stóð tilkynnti Björn farþegunum að hann væri að hætta sem atvinnuflugmaður vegna aldurs og hefði fengið leyfi til aðflugs til Reykjavíkur í fylgd tveggja lítilla véla. Á móts við Kjalarnes komu Atli Thoroddsen, sonur hans, og Ingólfur Jónsson á listflugvélum til móts við Boeing- þotuna og flugu samsíða henni yfir Reykjavík en flugu síðan á undan til Keflavíkur. „Ég flaug svo vélinni minni í bæinn en Atli varð að fara með rútunni,“ segir Björn. Hann hefur undanfarin ár kom- ið fram á hátíðum víða um land á listflugvélinni sinni og vænt- anlega mun hann koma víða fram á næstu árum. Björn Thoroddsen kveður þoturnar Snýr sér alfar- ið að listfluginu Björn við listflugvélina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.