Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.04.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2002 MORGUNBLAÐIÐ HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkis- ráðherra og starfandi forsætisráð- herra, segir í samtali við Morgun- blaðið það vera mikilvægt fyrir atvinnurekendur að stærstu samtök launþega í landinu, ASÍ, leggi rétt mat á stöðu efnahagsmála. Atvinnu- rekendur hafi hins vegar aðra stöðu en ASÍ og hafi beinan aðgang að reikningum fyrirtækja. Aðspurður segir Halldór það ekki hafa komið til tals að hagdeild Samtaka at- vinnulífsins fái aukið hlutverk í efnahagsráðgjöfinni. Stjórnvöld hafi verið í viðræðum við fulltrúa ASÍ og haft skilning á þeirra stöðu. Eins og fram hefur komið í Morg- unblaðinu fær ASÍ aukið hlutverk í efnahagsmálum við niðurlagningu Þjóðhagsstofnunar og flutning verk- efna hennar til Seðlabankans, Hag- stofunnar og fjármálaráðuneytisins. Halldór segir að aðilar vinnu- markaðarins verði að hafa fulla burði til að leggja mat á þjóðhags- stærðir. Þeir komi að atvinnu- rekstrinum í landinu og meti grund- völl hans og líkur til að standa undir bættum kjörum þjóðarinnar. Það sé forsenda annarra kjarasamninga í landinu. „Alþýðusambandið leggur á það áherslu að geta nýtt sér þær upp- lýsingar sem verða fyrir hendi í þeim líkönum sem fjármálaráðu- neytinu er ætlað að gera aðgengi- leg. ASÍ leggur einnig áherslu á að geta haldið áfram að leita til Seðla- bankans, Hagstofunnar og fjár- málaráðuneytisins, en jafnframt að geta með betri hætti lagt eigið mat á mál. Stjórnvöld telja það mjög mikilvægt að Alþýðusambandinu sé það kleift. Við ætlum okkur að vinna með þeim að því,“ segir Hall- dór. Framlög til ASÍ jafnvel aukin Aðspurður hvernig ASÍ er ná- kvæmlega ætlað aukið hlutverk seg- ir Halldór að sambandið hafi fengið ákveðin framlög á fjárlögum ríkis- ins til sinnar starfsemi. Til greina komi að auka þau framlög. „Að sjálfsögðu er það einnig mik- ilvægt að atvinnurekendur geti lagt sitt mat á efnahagsmál og þjóðhags- stærðir. Ég vonast til að þeir geti nú, sem hingað til, haldið þeirri starfsemi sinni áfram. Staða at- vinnurekenda er að því leytinu til öðruvísi að þeir hafa beinan aðgang að reikningum og stöðu fyrirtækj- anna í landinu, sem launþegar hafa ekki. Það er atvinnurekendum mjög mikilvægt að stærstu samtök laun- þeganna leggi rétt mat á stöðu mála,“ segir Halldór Ásgrímsson. Halldór Ásgrímsson um aukið ráðgjafarhlutverk ASÍ í efnahagsmálum Atvinnurekendum mikilvægt að ASÍ meti stöðu mála rétt HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hef- ur tvívegis komist að þeirri niður- stöðu að varsla amfetamíns hafi ekki verið refsiverð á meðan í gildi var reglugerð nr. 233 um ávana- og fíkni- efni sem sett var 14. júní í fyrra. Vegna mistaka var ekki merkt við á fylgiskjali að bannað væri að nota am- fetamín sem ávana- eða fíkniefni. Þessu var kippt í liðinn með breytingu á reglugerð 27. mars sl. Upphaf málsins má rekja til þess að í fyrra voru lög um ávana- og fíkniefni endurskoðuð og því þótti ástæða til að endurskoða reglugerð um þessi sömu efni. Í lögunum eru talin upp þau efni sem algerlega er óheimilt að vera með á íslensku yfirráðasvæði en undir þann flokk falla m.a. e-töflur, heróín, kókaín og kannabisefni. Amfetamín er ekki nefnt á nafn, en í lögunum seg- ir að ráðherra geti með reglugerð bannað meðferð annarra efna sem hættuleg teljast. Með endurskoðaðri reglugerð sem gefin var út 23. mars 2001 var þetta bann áréttað á fylgi- skjali með reglugerðinni. Í dálki sem er merktur B (bönnuð) er merkt með „x“ við amfetamín. Stuttu síðar átt- uðu menn sig á því að efnið er ásamt tveimur skyldum lyfjum notað til lækninga hér á landi og var því x-ið fjarlægt í reglugerð sem gefin var út 14. júní 2001. Með réttu hefði á hinn bóginn átt að hafa amfetamínið áfram b-merkt en geta þess að notkun þess væri leyfileg með undanþágu. Þessi reglugerð var breytt 27. mars sl. með því að setja aftur „x“ í dálkinn fyrir bönnuðu lyfin. Afleiðingin af þessu, að mati Héraðsdóms Reykjavíkur, er sú að í þá rúmlega átta mánuði á meðan þessi reglugerð var í gildi hafi varsla amfetamíns ekki verið refsiverð hér á landi. Í janúar, á meðan gallaða reglu- gerðin var í gildi, lagði fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hald á eitt mesta magn amfetamíns sem nokkru sinni hefur komist undir hendur lög- reglu, tæplega fimm kíló. Magnið er enn meira sé miðað við styrkleika efn- isins sem var 97–99% en þeir sem til þekkja segja að fíkniefnasalar geti drýgt slíkt efni þrefalt til fjórfalt. Á laugardag var maður leystur úr gæsluvarðhaldi eftir að Jón Finn- björnsson, héraðsdómari í Reykjavík, komst að þeirri niðurstöðu að varsla efnisins hefði ekki verið refsiverð þegar hann var handtekinn og í fyrr- dag sýknaði Pétur Guðgeirsson hér- aðsdómari mann af ákæru um vörslu á 20 grömmum af amfetamíni með sömu rökum. Vísaði Pétur til stjórn- arskrárinnar þar sem kveðið er á um að engum verði gert að sæta refsingu nema hann hafi gerst sekur um hátt- semi sem var refsiverð samkvæmt lögum á þeim tíma sem brotið var framið. Við þetta má bæta að í 2. grein hegningarlaga er kveðið á um að hafi refsilöggjöf breyst frá því að verkn- aður var framinn til þess er dómur gengur, skal dæma eftir nýrri lögun- um, bæði um hvort verknaður sé refsiverður og um þyngd refsingar. Samkvæmt þessu má ætla að dómar sem féllu eftir 14. júní séu í uppnámi, þó svo brotið hafi verið framið áður. Fyrrnefndur úrskurður héraðsdóms hefur verið kærður til Hæstaréttar og er dóms að vænta á næstu dögum. Ekki var „x“ fyrir aftan amfetamín Dóms Hæstaréttar að vænta á næstu dögum HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands dæmdi í gær fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Hjálpar- og lánasjóðs C-vaktar lögreglunnar í Reykjavík til að greiða sjóðnum 4,5 milljónir ásamt dráttarvöxtum frá árinu 1999. Þar sem málshöfðun hafði dregist úr hófi var sjóðnum gert að greiða manninum 100.000 krónur í máls- kostnað. Hjálpar- og lánasjóðurinn var stofnaður árið 1980 af lögreglumönn- um á C-vakt í þeim tilgangi að gefa fé úr sjóðnum til almennrar líknarstarf- semi og til einstaklinga en einnig til að lána sjóðsfélögum eða lögreglu- mönnum til skamms tíma. Maðurinn var einn af stofnfélögum og fram- kvæmdastjóri frá 1981 til ársins 1998 þegar hann var formlega leystur frá störfum. Sama ár lét hann af starfi sem lögreglumaður. Þá hafði fyrir nokkru komið í ljós að stærstur hluti sjóðsins hafði verið lánaðar til einka- hlutafélags sem hann átti í félagi við annan mann, samtals rúmlega 13 milljónir, stærsti hlutinn á árunum 1990–1993. Í stefnu segir að ítrekað hafi verið gengið eftir því að fá skuld- ina greidda en þrátt fyrir fögur fyr- irheit hafi hann ekki staðið við loforð um greiðslur nema að litlum hluta. Hann afhenti loks fasteign sína en eftir að sjóðurinn greiddi lögveð, vanskil og veðskuldir hafi skuldin numið um 4,5 milljónum. Maðurinn var á sínum tíma ákærður fyrir um- boðssvik en ákærunni var vísað frá héraðsdómi og sá úrskurður stað- festur í Hæstarétti. Finnur Torfi Hjörleifsson dóm- stjóri kvað upp dóminn. Lánaði sjálfum sér mestallan sjóðinn ÞAÐ er fátt jafn gleðilegt og að heyra söng lóunnar í fyrsta skipti vor hvert eða sjá þennan fallega fuglvorboða á vappi. Koma lóunn- ar til landsins er alltaf mikið gleði- efni þar sem það er ótvíræð stað- festing þess að vorið og sumarið sé á næsta leiti. Fyrst sást til lóunnar í ár þann 24. mars á Austurlandi og er hana nú að finna víðast hvar á láglendi, en þessi mynd var tekin á Álfta- nesi. Ólafur Einarsson, fuglafræð- ingur hjá Náttúrufræðistofnun Ís- lands, segir að farfuglarnir séu óvenju snemma á ferðinni í ár, yf- irleitt sjáist fyrst til lóunnar fyrstu dagana í apríl. Þá hafa skóg- arþrestir og þúfutittlingar sést fyr- ir norðan, sem er óvenju snemmt. Lóan er ein fimm fugla sem til- nefndir eru sem fulltrúar Íslands í Evrópufuglasöngkeppninni sem haldin verður í Eistlandi í vor. Fuglaverndarfélag Íslands stendur fyrir kosningunni og er lóan enn sem komið er vinsælust, að sögn Ólafs. Í símakosningu þótti söngur heiðlóunnar bera af en til 14. apríl verður hægt að kjósa fulltrúa Ís- lands á Netinu á slóðinni www.fuglavernd.is. Þar er einnig hægt að heyra söng þeirra fugla sem tilnefndir eru. Auk lóunnar eru söngfuglarnir himbrimi, músarindill, skóg- arþröstur og sólskríkja tilnefndir. Músarindill á þó greinilega meira upp á pallborðið hjá Netverjum en lóan því hann hefur fengið 39% þeirra atkvæða sem greidd hafa verið á Netinu en heiðlóan 11%. Morgunblaðið/Ómar Lóan er komin með sitt dirrindí KOSNINGAR til stjórnar Skóla- félags Menntaskólans í Reykjavík og málfundafélagsins Framtíðar- innar fara fram á morgun. Kosið verður í embætti formanns nem- endafélagsins, inspector scholae, forseta Framtíðarinnar, með- stjórnendur og til fjölmargra fleiri trúnaðarstarfa og verða kosning- arnar rafrænar að þessu sinni. Er það að öllum líkindum í fyrsta skipti sem rafrænar kosningar eru viðhafðar í framhaldsskólum, að sögn Þorvarðar Atla Þórsson- ar, gjaldkera Framtíðarinnar. Undirbúningur kosninganna er í fullum gangi. Í dag verður hald- inn kosningafundur í skólanum og er mikil stemmning í kringum kjörið en alls eru um 100 nemend- ur í framboði að sögn Þorvarðar. Það leggst vel í MR-inga að kjósa í hin grónu embætti Skólafélagsins með aðstoð tölva. ,,Þetta verður mun einfaldara en áður því nú þurfum við t.d. ekki að telja upp úr kössunum. Við vorum að prófa kosningakerfið dag og allt reynd- ist vera í lagi,“ sagði hann í sam- tali við blaðið í gær. Inspector scholae val- inn í raf- rænni kosningu Skólafélag MR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.