Morgunblaðið - 21.12.2003, Blaðsíða 64
FRÉTTIR
64 SUNNUDAGUR 21. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
RAUÐARÁRSTÍG 14-16, SÍMI 551 0400 • KRINGLUNNI, SÍMI 568 0400 • www.myndlist.isPétur Gautur
Ódýrt fyrir alla!Ódýrt fyrir alla!
Ódýrt fyrir alla! LYNGHÁLSI 4 - SKÚTUVOGI 2
LÁGT OG
STÖÐUGT
VÖRUVERÐ!
HVERGI
BETRA VERÐ!
HVERGI
BETRA VERÐ!
OPIÐ
ALLA DAGA
til jóla 10-22
Þorláksm.til 23
Aðfangadag 9-14
Barnareiðhjólin vinsælu
komin aftur!
pr.stk.5995-
SMÁBARNAHJÓL
með hjálpardekkjum
12“ stráka / stelpu
8750-
FJALLAHJÓL UNGLINGA
16“, 5 gíra- rautt,svart,blátt,silfur
11.995-
FJALLAHJÓL UNGLINGA
20“, 5 gíra- rautt,svart,blátt,silfur
LÍKNAR- og hjálparsjóður Landssambands lögreglu-
manna hefur úthlutað 500 þúsund krónum til þriggja
fjölskyldna sem eiga um sárt að binda vegna ýmissa
áfalla sem dunið hafa yfir. Jóna Júlía Jónsdóttir og börn
hennar þrjú fengu 150 þúsund krónur, en heimili þeirra í
Þórufelli brann fyrir skömmu. Formaður sjóðsins, Geir
Jón Þórisson yfirlögregluþjónn, og Gissur Guðmunds-
son, rannsóknarlögreglumaður í Hafnarfirði, afhentu
fjölskyldunni gjöfina. Einnig fékk fjölskylda á Seyðisfirði
250 þúsund krónur vegna veikinda innan fjölskyldunnar.
Þá fékk fjölskylda ungs manns í Reykjavík 100 þúsund
krónur vegna slyss sem maðurinn lenti í fyrir nokkru.
Sjóðurinn var stofnaður árið 1992 og er að jafnaði út-
hlutað úr honum tvisvar á ári eða oftar ef þurfa þykir.
Fjármögnun sjóðsins fer fram með því að taka ákveðna
fjárhæð af félagsgjöldum allra lögreglumanna og
merkjasölu.Morgunblaðið/Júlíus
Úthlutað úr líknar- og hjálpar-
sjóði lögreglumanna
GUÐMUNDUR Þór Reynaldsson
eðlisfræðingur varði doktorsritgerð
sína í tilraunaeðlisfræði við raunvís-
indadeild Háskóla Íslands 29. ágúst
sl. Heiti ritgerðarinnar er Hydrogen
in Metallic Super-
lattices (Vetni í yf-
irgrindum). Fjallar
ritgerðin um hegðun
vetnis í örþunnum
málmhúðum sem
eru ræktaðar sem
málmyfirgrindur og
var rannsóknin unn-
in undir leiðsögn dr. Sveins Ólafs-
sonar. Andmælendur voru dr. Ronal
Griessen, prófessor frá de Vrije Uni-
versiteit í Amsterdam, og dr. Cyril
Chacon frá Uppsalaháskóla.
Undanfarna áratugi hefur hegðun
vetnis í málmum verið rannsökuð ýt-
arlega. Vetni hefur háa leysni í yfir 50
frumefnum og má þar nefna málma
með miðjusetna teningsgrind eins og
vanadín og níóbín. Niðurstöður mæl-
inga sýna að í málminum víxlverka
vetnisatómin og að slík víxlverkun er
langdræg og veldur fasabreytingum.
Á síðustu árum hafa rannsóknir
vetnis í málmum m.a. beinst að eig-
inleikum þess í þunnhúðum og yf-
irgrindum. Yfirgrindurnar sem hér
voru rannsakaðar samanstanda af
tveimur tegundum af örþunnum
málmhúðum sem eru ræktaðar á víxl
þar sem aðeins önnur málmhúðin
tekur vetni í sig. Með því að hafa
málmhúðirnar mjög þunnar er hægt
að mynda tvívítt umhverfi fyrir vetn-
ið. Í slíkum kerfum þarf að huga að
breytum eins og t.d. þykkt málmlag-
anna og grindarstuðli efnanna.
Ritgerðin byggist á sex vís-
indagreinum þar sem rannsökuð var
hegðun vetnis í Mo/Nb, Mo/V- og Fe/
V-yfirgrindum þar sem eftirfarandi
þættir voru rannsakaðir:
Áhrif stefnu yfirgrindarinnar á
varmafræðilega hegðun vetnis í Mo/
Nb-yfirgrind með (001) stefnu. Nið-
urstaðan var borin saman við níó-
bínþunnhúðir og sambærilega yf-
irgrind með (110) stefnu.
Vetnis-vetnis-víxlverkunin var mun
hærri í Mo/Nb-yfirgrindinni (001).
Þetta er rakið til þess að það þarf
minni orku til að þenja Mo/Nb-
yfirgrindina (001) en yfirgrind með
(110) stefnu. Áhrif mjög mikillar af-
lögunar Mo/V-yfirgrindar á eig-
inleika vetnisins með viðnámsmæl-
ingu og röntgenbognun, þar sem
þensla yfirgrindarinnar út úr planinu
var mæld. Vermis- og óreiðubreyting
fyrir bæði viðnámsmælinguna og
röntgenbognunina var ákvörðuð og
niðurstöðurnar bornar saman. Þensla
út úr plani yfirgrindarinnar var lægri
en í kerfum með minni aflögun.
Áhrif mismunandi aflögunar í Mo/
V-yfirgrind á varmafræðilega eig-
inleika vetnisins. Meginniðurstaðan
var sú að yfirgrindin með mestu af-
lögunina sýndi gjörólíka hegðun og
yfirgrindurnar með minni aflögun.
Að lokum voru áhrif mismunandi
samsætna vetnis á varmafræðilega
eiginleika þess rannsökuð fyrir Fe/V-
yfirgrind. Vermis- og óreiðubreyt-
ingin var mismunandi fyrir vetnið og
tvívetnið. Þessi mismunur var rakinn
til meiri hreyfigetu vetnisins til að
hreyfast á milli milligrindarsæta
málmsins.
Guðmundur fæddist 1968, sonur
Reynalds Jónssonar, tæknifræðings
og húsasmíðameistara, og Sesselju
Guðmundsdóttur (1940–1987). Guð-
mundur lauk stúdentspróf frá
Menntaskólanum við Sund 1989, lauk
Dipl. Phys.-prófi frá Justus Liebig
Universität í Giessen í Þýskalandi
1995 og stundaði nám í aðgerð-
argreiningu við RWTH Aachen í
Þýskalandi frá 1995–1997. Guð-
mundur er kvæntur Þórunni Erlu
Einarsdóttur, nema í Kennarahá-
skólanum, og eiga þau tvo drengi,
Einar Kára 3 ára og Guðna Þór 2
ára.
Varði doktors-
ritgerð í til-
raunaeðlisfræði
LANDSPÍTALI - HÁSKÓLASJÚKRA-
HÚS
SLYSA- OG BRÁÐADEILD, Fossvogi sími 543 2000.
BRÁÐAMÓTTAKA, Hringbraut sími 543 2050.
BRÁÐAMÓTTAKA BARNA, Barnaspítala Hringsins sími
543 1000.
BRÁÐAMÓTTAKA GEÐDEILDA, Hringbraut sími
543 4050.
NEYÐARMÓTTAKA v/nauðgunarmála, Fossvogi sími
543 2085.
EITRUNARMIÐSTÖÐ sími 543 2222.
ÁFALLAHJÁLP sími 543 2085.
LÆKNAVAKTIR
BARNALÆKNIR er til viðtals á stofu í Domus Medica á
kvöldin v.d. kl. 17–22, lau., sun. og helgid., kl. 11–15.
Upplýsingar í s. 563 1010.
LÆKNAVAKT miðsvæðis fyrir heilsugæsluumdæmin í
Reykjavík, Seltjarnarnesi, Kópavogi, Garðabæ og Hafn-
arfirði, í Smáratorgi 1, Kópavogi. Mótttaka kl. 17–23.30
v.d. og kl. 9–23.30 um helgar og frídaga. Vitjanabeiðni og
símaráðgjöf kl. 17–08 v.d. og allan sólarhringinn um
helgar og frídaga. Nánari upplýsingar í s. 1770.
TANNLÆKNAVAKT – neyðarvakt um helgar og stórhá-
tíðir. Símsvari 575 0505.
APÓTEK
LYF & HEILSA: Austurveri við Háaleitisbraut. Opið kl. 8–
24, virka daga, kl. 10-24 um helgar. Sími 581 2101.
LYFJA, Lágmúla: Opið alla daga ársins kl. 8–24. S.
533 2300.
LYFJA, Smáratorgi: Opið alla daga ársins kl. 8–24. Sími
564 5600.
NEYÐARÞJÓNUSTA
BAKVAKT Barnaverndarnefndar Reykjavíkur er starf-
rækt eftir kl. 16.15 virka daga, allan sólarhringinn aðra
daga. Sími 892 7821, símboði 845 4493.
HJÁLPARSÍMI Rauða krossins, fyrir þá sem þjást af dep-
urð og kvíða og eru með sjálfsvígshugsanir. Fullum
trúnaði heitið. Gjaldfrjálst númer: 1717, úr öllum símum.
TRÚNAÐARSÍMI RAUÐAKROSSHÚSSINS. Ráðgjafar-
og upplýsingasími ætlaður börnum, unglingum og að-
standendum þeirra. Nafnleynd. Opið allan sólarhr.
Gjaldfrjálst númer: 1717 – Netfang: husid@redcross.is
VINALÍNA Rauða krossins, s. 561 6464. Grænt númer
800 6464, er ætluð fólki 20 og eldri sem þarf einhvern til
að tala við. Svarað kl. 20–23.
BILANAVAKT BORGARSTOFNANA, sími 5 800 430 tek-
ur við tilkynningum um bilanir og liðsinnir utan skrif-
stofutíma.
NEYÐARSÍMI FORELDRA 581 1799 er opinn allan sólar-
hringinn. Vímulaus æska- Foreldrahús.
Neyðarnúmer fyrir
allt landið - 112