Vísir - 13.06.1981, Blaðsíða 19

Vísir - 13.06.1981, Blaðsíða 19
18 VlSIR Laugardagur 13. júnl 1981 Laugardagur 13. júnl 1981 VÍSIR 19 „Veröldin imyndum okkur að til væri tímavél af einhverju tagi, vél, sem gæti flutt okkur fram og til baka i tímanum. imyndum okkur að blaðamaður Vísis setjist undir stýrið á þessari vél og bruni aftur fyrir aldamótin siðustu, t.d. til ársins 1879 og til kóngsins Kaupmannahafnar. Sá blaðamaður gæti leitað uppi Jón Sigurðsson forseta og áttviðhann Helgarviðtal. Jón hefði orðið 170 ára þ. 17. júní næstkomandi og afmæli hafa nú alltaf þótt góð til- efni til viðtala. Undirritaður blaðamaður settist upp í svona tímavél og segir ekki af ferðinni fyrr en lent var á Löngulínu í Höf n. Og viti menn, sem ég stig út úr vélinni, sé ég ekki hvar kemur maður gangandi... Hann gengur hratt, nokkuö boginn í heröum, hnén horf a inn á viö, hvortd móti ööru, en fæturnir eru Utskeifir. Hann er fint klædd- ur, klæðir sig daglega eins og yngrimennað þvileyti að hann er jafnast i ljósum buxum. Hann hefur svartan háan silkihatt á höfði, sem frú Ingibjörg hefur ekki gleymt að bursta i dag frem- ur en nokkurn dag, þvi hatturinn er ævinlega skyggður. Hann dregur hattinn niður i hnakkann. Þetta er Jón Sigurðsson á dag- legri gönguferð sinni út á Löngu- linu. Ég vind mér aö honum og segist vera lslendingur. Hann stingur hendinni undir arm mér, og segir: „Þér hafið ekkert að gjöra, gangið þér með mér.” Enginn skorast undan slikum heiðri. Hann segir mér aö hann þurfi aö kaupa regnhlif og álitur að ég sé rétti maðurinn til aö visa sér á góðan staö. Við fórum inn i verslun viö Austurgötu. Stúlkan fyrir innan búöarboröið leggur 5 eða 6 regn- hlífard borðiö. Forsetinn spyr um verðið, það er 7 eða 8 krónur og ég sé að honum likar litt regnhlif með þvf verði og fyrirlitningin fyrir 8 krónu regnhllfum skin Ur ch-dttunum kring um munninn, hann biöur um 15 krónu regnhlif, stúlkan hefur enga og á endanum verðurhann aö sætta sig viö regn- hlíf sem kostar 11 kr. Siban göngum viö heim til hans, en hann býr d horninu á Stokk- húsgötu og Austurvegg, húseig- andinn heitir Vilhjálmur Skram i ætt við Skramana fyrir noröan. Þarna hefur Jón all mikil hUsa- kynni, en illa fyrir komið aö mér þykir, þvi fyrst er langur gangur eöa rangali og liggja dyr þar Ut I, er fyrst komiö inn I „státstofuna” og þaðan inn i herbergi húsbónd- ans eða daglegu stofuna. Her- bergið er skakkt og skrifborð Jóns stendur fyrir horninu og bækur hefur hann þar I tveimur skápum, en sjálft bókasafn hans er hinum megin viö stdtstofuna. Innar af daglegu stofunni er svefnherbergi þeirra hjóna, en annað er mér ókunnugt um her- bergjaskipan. „með bros á vörum og I hýru skapi” Þau hjónin, Jón og Ingibjörg, eru samvalin i þvi að fagna gest- um, ekki aðeins mér heldur öllum hinum sem þarna eru saman- komnir eins og endranær um þetta leytidags.en kl. er að verða 7. Jón sest viö skrifborð sitt — hann er kominn Ur útifrakkanum og er nú klæddur 1 langan slopp ystan klæða, með vestið flakandi frd sér, en innanundir vestinu skin í snjóhvita ermaskyrtu. Hann stendur upp, jafnskjótt sem gestimir koma, fagnar þeim og byður til sætis i legubekk, sem stendur viö einn vegg stofunnar og á stólum kringum ávalt borö sem stendur fyrir framan legu- bekkinn. Sjálfur flytur hann skrifborðsstól sinn að öðrum borðsendanum og sest i hann. Og þarna situr hann fyrir borösend- anum hallar sér aftur i skrif- borösstólinn og teygirfrá sér fæt- urna inn undir borðið, meö flak- andi vesti og meö sloppinn hang- andi niöur beggja megin við stól- inn, með vindil I annarri hendi, en hina höndina i buxnavasanum með bros d vörum og I hýru skapi. ,,t»ú vilt gefa allt, Þór- dis” Það er ótal margt, sem mig langar til að spyrja Jóns Sigurðs- son um. Það er ekki hægt um vik, meö alla þessa gesti I kring, en Jón gefur sér þó góöan tima og byrjar að segja mér frá uppvexti sinum og námi: „Faöir minn var Sigurður Jónsson, prófasturá Rafnseyri og móðir min Þórdis Jónsdóttir kona hans. Föðurafi minn var alnafni minn og þegar ég fæddist var f aö- ir minn hans aðstoðarprestur. Faðir minn var hár maöur og þrekinn, heldur friður sýnum, bjarteygöur og vel hærður. Hann þótti góður búsýslumaður og um hann er til þessi formannsvisa: Sæmdum hresstur bókabör beint um fiskamýri Sguröur prestur sómaör súöafiski stýrir. Hann kenndi piltum I heima- skóla en var þó ekki fræðimaður heldur hneigðist hann fremur aö verklegum framkvæmdum. Móöir min var meðalkvenmaö- ur, vel vaxin og friö og gáfuleg. Augun voru smd og móleit og fjörmikil. HUnrak oft fööur minn i vörðurnar þegar tilrætt var um bókleg fræði. HUn var greiðug og ör á fé en faöir minn þótti aðsjáll. Einu sinni man ég hann segja viö móður mlna, en hún var aö vikja einhverju að þurfamanni: ,,ÞU vilt gefa allt, Þórdis.” Hjá biskupi Arið 1829, þá var ég 18 ára, haföi ég lokið skólanámi i fóður- húsum og fórsuöur til Reykjavik- ur og var Utskrifaður af dóm- kirkjuprestinum, sr. Gunnlaugi Oddssyni. Eftir þaö starfaði ég viö verslun og þá sá ég með eigin augum hve harödræg og ein- okunarkennd islenska verslunin var þá. Aö árinu liönu réðist ég sem skrifari til Steingrims biskups Jónssonar að Laugar- nesi. Þar glæddist mjög áhugi minn á íslenskum fræðum, sögu og ættfræði. Sumarið 1933 var ég i nokkrar vikur hjá Sveinbirni Egilssyni á Bessastöðum til aö taka mér fram í grisku. Meö okkur Svein- bimi tókst náin vinskapur. Að á- liðnu sumrinu sigldi ég svo til Kaupmannahafnar til að stunda málfræði við háskólann þar. Nám og próf Þegar ég sigldi til Kaupmanna- hafnar hafði ég aldrei verið i skóla og aldrei kynnst þeim skólapiltaanda, sem aðrir þekktu frá Bessastöðum. Stúdentalifið I Kaupmannahöfn var mér þvi framandi. Ég leysti af hendi fyrsta próf i árslok 1933 og var tekin i stúdentatölu. Þaö var prófaö i dönskum stil og latneskum, I því fékk ég ágætiseinkunn, i latinu, grisku, trúarbrögðum, landafræði, sögu og rUmfræði fékk ég fyrstu eink- unn og i grisku og tölvlsi aðra einkunn. Þá var eftir ein þraut, mdlfræðilegt og heimspekilegt próf. Heimspekin var mér hugleikin og ég hugsaöi mikið um hana, velti fyrir mér t.d. hvað maður ætti aö brUka yfir „objekt, indi- viduel, relativ, o.fl. og þá lika „materiale” á islensku. Ég hugs- aöi oft um þvilik orð til heim- spekilegrar ræöu, en þau eru vandfengin viðkunnaleg og þýð- ingarfull. Þó er skaöi, aö ekkert þvilikter skrásetthanda prestun- um til aö afmeyja alla fávisku þeirra i heimspekinni eða þó heldur: að gefa þeim dálitla nasasjón d henni.” ,,Þvi miður varð ég aldrei sá maður...” „Hugur minn hallaðist þó mest að fornfræðunum, en þvi miður varð ég aldrei sá maður að veröa stator og stabilitor fornfræöanna eins og Finnur MagnUsson i mörgu tilliti mátti heita. En ef kringumstæður minar hefðu leyft, hefði mér ekkert studium verið kærara en Islenskan. Stúdentalifið. Það voru vitaskuld fimin öll af islenskum mönnum i Kaup- er mannahöfn en flestir þeirra voru mér óþekktir þvi ég hafði aldrei veriö i skóla áöur. Þarna voru auðvitað Jónas Hallgrimsson, Tómas Sæmundsson, Brynjólfur Pétursson, Konráö Gislason, þeir Jónas og Konráð voru á sama gangi og ég d Garöi. Garður var höfuöstaður alls stúdentalifsins, menn bjuggu saman tveir og tveir, ég bjó fyrst með Halldóri Jónssyni sem siðar varð prófast- ur og siðan með Gisla lækni Hjálmarssyni. Eftir að ég flutti af Garði i Klausturstræti, bjó ég með Pdli Melsteð sagnfræðingi. Allt urðu þetta miklir vinir minir — sannir bræður eins og ég kall- aði þá. Svo voru krárnar, við sóttum helst Ferakut og Mjóna, en þann stað uppnefndum viö eftir eigand- anum sem hét Mini. Þar var oft mikið fjör. Svo komu menn saman á fund- um f félögunum. I bókmennta- félaginu voru fundir tvisvar d ári og stundum voru aukafundir. En þaö var ekkert StUdentafélag. (Hér fær vinur Jóns orðið, Páll Melsteð. En hann lýsir Jóni svo á þessum fyrstu árum i Höfn: „Hann var góður meðalmaður á hæð, en ddlitið álútur, friður sýnum og mesta stúlknagull. Hdrið hrafnsvart, augun dökk- bnln og óvenjulega fjörug. Hann var skýrmæltur en nokkuð fast- mæltur.”) Bókmenntafélagið —Þér genguö snemma I Bók- menntafélagiö. „Ég gekk i Bókmenntafélagið 1935 en 6. Forseti varð ég árið 1951, og varð upp frá þvi. Þess vegna var ég jU kallaöur Forseti! 1 bókmenntafélaginu voru næg verkefni handa nýrri stjórn. Mér þótti það ekki hafa fullnægt skyldu sinni sem það ætti og kenndi það stjórn þess. Mér fannst einkum þaö að stjórninni, aö ekki var rekið betur eftir þvi, sem prentað var, — að of fáir um- boösmenn voru heima á Islandi, svo ekkert varð selt, — að of litið væri lagt upp af bókunum svo félagið gat ekki selt með nógu góðu veröi og það hindraði Ut- breiðslu bókanna heima og geröi þær landflótta fyrir Andrarimum og öðrum ófreskjum. Fólkið var ekki vakiö til að athuga, að það átti þó það i félag- inu sem betra væri aö viðhalda en aö kolsteypa, þvi ég sá ekki annað fyriren visnan, ef ekki væri brátt gert viö — og það kröftuglega. Ég vilaði ekki fyrir mér að garga á fundunum vegna alls þessa óg þegar ég h't til baka, held ég þó aö ýmislegt hafi orðið til hins betra”. Og bókaútgáfa „Það sem verður aö kappkosta, er að haga útgáfum bóka svo að þær verði svofjölhæfar að efninu til sem orðið getur. Bókaútgáfa á aö viðhalda menntun og heiðri þjóðarinnar og þaö verður ekki gert meö þvi aö gefa út almúga- bækur einar eða þess konar bæk- ur, sem eru öldungis lagðar eftir þeim almúgasmekk, sem er af lakara tagi þó aö hann kunni að vera almennastur og einfaldleg- astur. Við veröum aö hafa hugfast, að góðar bækur eru nauðsynlegar og ómissandi til þess að halda bók- menntum þjóðarinnar á loft og sýna, að hún getur i bóklegum störfum fylgt með menntuðum þjóðum að þvi leyti sem efni leyfa.” — Þér hafið komist nærri settu marki i forsetatið yöar. „A ö þvi leyti aö þegar ég varð forseti, voru félagar Bókmennta- félagsins tæplega 200. Nú, 1877, eru þeir orönir 794. ,,En oft var hart i ári hjá okkur Utgefendun- um”. Helgarviðtalið er við Jón Sigurösson, sem hefði orðið 170 ára á mið- vikudaginn kemur mikið fjandans ótæti...” Drakk dús við Svia — Aður en viö förum nánar Ut i félagsmálaþátttöku yðar, langar mig aö spyrja yður um ferðalög, mér skilst að þér hafið sjaldan ferðast yöur til skemmtunar beinlfnis. „Min ferðalög eru helst að fara heimá þing og tilbaka. Þó ermér enn minnisstæö ferð min til Svi- þjóðar sem ég fór á vegum forn- fræðafélagsins, það hefur veriö um 1840. Ég var i Uppsölum i mikilli dýrö og var presenteraður og drakk dUr viö fleiri en ég nokkurn tima man I þessu lifi. Þegar Sviar eru kenndir, vilja þeir vera bræð- ur hvers manns og sleppa allri titulatur. Það er eins og þeim detti þá f yrst I huga að þeir hafi of marga meistara og doktora. Svi- ar eru annars ágætir við ferða- menn og taka Dönum mikið fram i þvi.” Þótti mikið til Skafta- fellssýslu koma „Heima ferðaöist ég mest I em- bættiserindum, ekki sist þegar kláðamálið stóð. Mikiö þótti mér til koma að fara i Skaftafellssýslu. Samt fór ég ekki yfir vötnin I þvi ferðalagi, heldur fór ég Fjallabaksveg fram og aftur. Ég komst að Kirkjubæ og austast að Hörgsdal. A Kirkju- bæ er fallegast. Siðan er eitt hið grösugasta hérað og viðlendasta að högum til, sem er á Islandi. Ég reyndi þetta sumar, aö ég gat feröast eins vel og þeir landar minir og aldrei kenndi ég mér neins meins hvernig sem við lét- um, svo ekki geta landar minir kvartað yfir að ég sé meiri papp- IrsbUkur en þeir sjálfir, þrátt fyrir öll skrifstofustörfin.” Að ganga með hendur i vösum og vindil i kjafti — A þessum embættisferöum yöar, hefur yður gefist timi til aö athuga ástandið I landbUnaðin- um. „Já, og þar var mörgu ábóta- vant. Eins og ég sagöi einu sinni við hann Torfa Bjarnason, sem þá áttienn eftirað verða skólastjóri I bUnaðarskóla: að fá góð verkfæri og kunna að beita þeim, þaö er mikilsvert. Það er svo sem auö- vitað, aö maður getur séð og heyrt margt af reynslunni en hið nýja er ótæmanlegt og mest er um vert að stóla upp á áhuga sinn og verklægni. Torfi hafði lag á þvi að hæna að sér drengi, sem nenntu að vinna, en létu ekki allt lenda í aö ganga með hendur i vösum og vindil I kjaftinum. Sumir gera ekki annað en að skrafa og skeggræða og þykjast kunna alltnærri óséð. Þvi er mið- ur, aö við höfum of mikið af slik- um gorkUlum bændastéttarinn- ar.” Hyrningarsteinn bók- málsins — Vikjum þá aftur að Bók- menntafélaginu og félagsstörfum yðar. Þaö mun vera i riti félags- ins, Skími, sem þér komið fyrst fram á ritvölhnn? „Rétt er þaö. Það var grein um islenska tungu og stafsetningu hennar. Þetta var okkur mikið á- greiningsmál. Réttritun þeirra i Fjölni var sprottin af þeirri mein- ing, að framburður einn ætti að ráða réttritun. Ef maður ætlaði aö skrifa eins og talað væri, þá er þaö fyrst, aö maöur kemst i bágindi meö rétta framburðinn. Ef heyrnargáfan ætti að greina hann, þá kæmist maður ekki betur af, þvi þá heföi hver rétt til að skrifa eins og hon- um heyröist og réttritun yrði búsna ónákvæm. Þaö yrði varla kljúfandi aö fá réttritun, sem menn gætu botnaö i, ekki að tala um aö eftir kannske 50 ár væri bókmalið orðið sjálfu sér öldungis óliktog ómögulegt að finna neina málbyggingiþvi. Hvaö bókmálið, þegar þvi er haldið við, gjörir til að geyma kjarnann úr tungumál- inu, er vaxið ipp úr allri efasemd, og þegar þess missir við, þá er i rauninni kjarnanum tapað, en einn hyrningarsteinn bókmálsins er réttritun.” „Annars fylgdu þeir Fjölnis- menn h'tt þessu systemi sinu, þaö var eins og einhver religio aftraöi þeim frá að steypa allt i form framburöarins. En ég skal ekki neita, aö gaman væri aö sjá bók, sem væri skrifuð öldungis eftir framburði og fullkomlega sjálfri sér samkvæm i að láta 2 hljóð aldrei hafa sama merki i öllu málinu. Reykjavík eða Þingvöll- ur? — Frægastur hefur auðvitaö orðið ágreiningur yðar og þeirra Fjiflnismanna vegna staðsetning- ar Alþingis. „Já, ég var alla tiö á þvi að al- þingi skyldi vera i Reykjavik, og hélt þvi fram f grein minni I kver- inu, Nýjum Félagsritum þegar I upphafi. Þó þótti mér, að ef mönnum þætti von að þingiö yrði i fyrstu betur sótt á Þingvöllum, skyldi haf a þaö þar fyrst um si nn, en byggja þar ekki hús. Ég heyröi það niöri, þegar ritið kom út fyrst, að þeim likaði ekki hér i Höfn sumum alþingisþátturinn minn, en ég lét þar við standa og beið átekta. Það hefði glatt mig, ef ég hefði fengið að sjá skýrlega hversu þeir vildu i praxi koma á gamla þinginu, en það gat ég aldrei séð, né heyrt I samræðu. Aöeins tóma undrun og enthusi- asme fyrir Þingvöllum, sem ég var alltaf hræddur um aö drægi skammtá götu i reyndinni. Ef ég hefði séð aö stofnunin sjálf heföi haft gottaf, að samkoman væri á Þingvöllum, þá veit hamingjan aö ég heföi ekki verið seinastur að fylgja þvi fram, þvi Þingvellir eru æruverðugasti staður, sem viö eigum til. En hvað dugaði það, eins og ti'munum var þá varið, þó menn kæmu saman annaðhvort ár á afviknum staö — sem menn NB með miklu meiri hátiðleik geta sótt á öðrum timum eða i öörum tilgangi — til að tala þar i landsins nafni málefni þess, þau sem mestrar umhugsunar og að- gæslu þurfa? Þeir vildu hafa þingiö i öllum sinum forna blóma frá 12tu öld eða fyrri, meö goöorðum og fimmtardómum um allt land. En skiptar skoðanir eru góðar og greinarnar i Fjölni glöddu mig, þá fengu allir kost á aö dæma og velja hvað sem best var. t*ó gekk ég i Fjölnisfé- lagið — UppUr þessum ágreiningi viö þá Fjölnisfélaga farið þér sem sagt að gefa Ut Ný Félagsrit? „Já og það er raunar saga að segja frá, hvernig kveriö varð til og munu fara sögur af þvi nógar. En svo þU hafir nokkuð aö halda þér til þá ætla ég aö segja, hvern- ig sagan er eftir minni eftirtekt, sem ég veit sannast og réttast. Fjölnir lagðist af um tima, Jón- as var heima við land- og náttúr- fræðistörf og Tómas var lika far- inn heim. Þeir Brynjólfur og Kon- ráð undu þvi illa að ritið félli nið- ur og vildu reyna aö koma 6. ár- gangi útá réttum tima, þetta var 1840 og Brynjólfur bauö mér að ganga i félag meö þeim. Ég sam- sinnti þvi', gjörði það þessvegna, að ég vildi átthvaö þarflegt rit gæti haldist viö og þyrfti ekki að faila niöur. Þaö myndi kannske heppnast að breytaFjölninokkuö, svo hann gæti orðið populer. Ég kom þvi i félagið og á fund og þegar nafnið kom til umtals vildum viö nokkrir breyta þvi, viö héldum það spillti fyrir ritinu og væri óhentugt af populere grunde, þvi Fjölnir naut litilla hylli heima. En það var vot- eraö gegn nafnbreytingu og þá tókum viö okkur til og gengum Ur félaginu og stofnuðum annað fyrir okkur og ákváðum að gefa út Ný Félagsrit. Þau komu fyrst út voriö 1841 og hafði þó ekki verið skrifaður stafur fyrir febrúar það ár, svo kverið var gjörð í hraplaöa eins og þU sérð.” „Við höföum það nú svo, að við völdum nefnd til aö standa fyrir ritinu og skiptum siðan bókunum fyrst um sinn, svo allir tækju kostnaö og ábóta jöfnum höndum eftir þvl sem seldist. Ný Félagsrit voru okkur nauö- synleg, þvi hvernig átti að kveikja meiri lyst hjá mönnum til að kaupa bækur og skipta sér af pólitik? Meö góöum ritgjöröum I segir þU h'klega og þá urðu þeir að styðja til að prakka þeim Ut, þeir sem heima voru. Djöf- ullinn var, aö maður svalt á meöan maöur var aö koma þeim Ut. Enda nefndum við félagiö okkar oft blóðtökufél- agiö til gamans en nokkuð var til I þvi samt. Það þótti gott ef helmingur áskrifanda galt að lyktum andviröi ritsins.” „Félagsritin pindu mig þvi aö á annan veginn þóttist ég sann- færður um að þau væru ómiss- andi, en á hinn bóginn báru þau sig aldrei. En nú þykist ég viss um þau hafi gert gagn og að á þeim hafi þurft að halda til að vinna þjóöfrelsi okkar. En ég samdi ritin og sá timi, sem ég varði I þau og Bókmenntafélagiö, var mérpeninga virði og voru svo mikil Utlát fyrir mig að ég þoldi ekki meiri skatt. Þess vegna varö ég aö haga mér eftir minni eigin hægð og verja þeim tima sem ég þurfti að hafa, mér svo hentug- lega sem ég gat. Þetta varð fólk nU aö vorkenna og hafði ekki á- stæöu til annars, þegar ekki var borgiö tíma manns. En þá haföi maöurlíka rétt til að verja timan- um eftir eigin höföi”. „ónýtur til útigöngu” — Hvemig var f járhögum yðar háttað? „Fyrst eftir að ég kom Ut, varð ég styrkþegi Arnasjóös og voru það árstekjur i betra lagi, svo fékk ég laun sem skjalaritari, sið- ar skjalavörður i safni forfræöa- félagsins og skrifari I stjórn Amasafns. Stööur þær, sem Dan- ir veittu mér, voru allar án skil- yröa hvað snerti þing eða afskipti af stjórnmálum. En skórinn kreppti oft að. Og landar mfnir heima sáu ekki allt- af ástæðu til að koma til hjálpar. Vom margir fráleitir þvi að hlaupa undir baggann, sögðu bara að ég væri ónýtur til úti- göngu. Einu sinni a.m.k. fór ég i nauöbjargarleit heim, það var 1855. Þaö voru gerð samskot en viðbrögöin voru nú svona og svona. Ég get sýnt þér kafla úr blaöagreinum, þar sem um þetta er fjallaö: „Bændur og konur og börn og vinnuhjú hafa verið beöin um aö skjóta saman gjafafé handa herra Jóni Sigurðssyni. Jafnvel þó nU alþýða sé, oröin vön aö heyra alla vega lagaöa lofdýrö um þessa einstöku menn (þ.e. Jón og fl.i sem allt að þvi hafa verið kallaðir fööurlandselskarar, en nU „gimsteinar” landsins, þá má þó af öllu gjöra of mikiö og virðist að það eiga hér við. Hafi herra Jón Sigurðsson gjör- samlega gleymt sjálfum sér og eiginhagsmunum, landa sinna vegna, þá er það einstakt og merkilegt þvi að flestum veitir fullþungt að uppfylla þaö krist- innar boð, sem býður, aö elska aðra jafnt sjálfum sér. AB herra Jón Sigurösson að ööru leytihafi mæðst og erfiðað i mörgu fyrir Is- land, er kunnugra en um þurfi að tala. En hvaða ávöxt þetta margra ára strit hans gefi óborn- um á landi þessu, er m jög óvist og a.m.k. öldungis óséð enn þá.” „Bester að láta sér hægt um aö láta mikið fé af hendi....” Jón les þetta upphátt og segir svo: Þannig var maður stundum atyrtur.” ,,að ég yfirgefi málefni landsmanna” — Heyrst hefur að Danir hafi

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.