Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 13

Morgunblaðið - 29.01.2005, Side 13
       + , ! + , !     -   !      " ! . /    0 (            122&3 435&6  4&736  42162 22&5   84&&% 8423  #  # 9      73%171 1&:47      9 (     9/  /  # !( '  ;<- = -  !( 4%:&1 %571: 4:>2? 5:>4? %4&64 4%52:  3754  4:&45 2757   8256 833   2%5&56 %%1&%  1:4: %%173 3>3? 46>7?  !"   #$%&%"      '(     AFKOMA Landsbanka Íslands kemur allra mest á óvart af við- skiptabönkunum þremur. Eins milljarðs hagnaður var af fjórða ársfjórðungi en greiningardeildir hinna bankanna höfðu spáð veru- legu tapi af þeim fjórðungi, að- allega fyrir sakir mikils gengistaps af innlendri hlutabréfaeign bank- ans. Þetta skilar bankanum 12,7 milljarða króna hagnaði af árinu 2004 í heild sinni og er það rösk- lega fjórföldun hagnaðar hans í samanburði við árið á undan. Bankanum hafði hins vegar verið spáð 9,4 til 10 milljarða hagnaði. Hreinar rekstrartekjur Lands- bankans jukust um 14,6 milljarða (77%) á árinu í 33,6 milljarða. Þar af nam aukning hreinna vaxta- tekna 5,6 milljörðum (60% frá fyrra ári) sem kemur til af stór- auknum vaxtatekjum af útlánum. Aukning hreinna þóknunartekna nam 2,5 milljörðum (41% frá fyrra ári) og er það að stærstum hluta vegna verðbréfaviðskipta, sem og útlánastarfsemi. Þá jókst gengis- hagnaður um 7,2 milljarða og fór langleiðina í að fjórfaldast frá fyrra ári en þar er fyrst og fremst um að ræða gengishagnað af hlutabréfum í eigu bankans. Hlutfall gengishagnaðar af hreinum rekstrartekjum eykst talsvert, úr 14% í rúm 29%, sem þýðir að stærra hlutfall tekna bankans er vegna verðsveiflna á verðbréfamörkuðum. Á móti lækk- ar hlutfall hreinna vaxtatekna og hreinna þóknunartekna en vöxtur þessara liða er engu að síður afar góður. Í takt við góða afkomu var kostnaðarhlutfall bankans 43% á árinu, en bankinn miðar að því að hlutfallið sé undir 55%. Vöxtur í útlánum bankans nam 68% milli ára eða 223 milljörðum króna. Bankinn segir um þriðjung aukningarinnar vera vegna er- lendrar starfsemi og lána til er- lendra aðila, og hafi þau lán rúm- lega tvöfaldast á árinu. Í lok árs námu heildarútlán Landsbankans 560 milljónum króna, þar af voru 79% lán til fyrirtækja og 20% til einstaklinga. Innlán námu 218 milljörðum og jukust um 43%. Í takt við hraðan vöxt Lands- bankans óx efnahagur hans um 63% á árinu eða 282 milljónir króna í 730 milljónir heildareignir. Það vill svo til að aukningin í ár samsvarar heildareignastöðu sam- stæðunnar í ársbyrjun 2003 (278 milljónir) þegar bankinn var einkavæddur. Loks var arðsemi eigin fjár Landsbankans, sem er vísbending um ávöxtun fjárfesta á tímabilinu, 50,1% á árinu 2004 en árið áður var arðsemin 17,6%. Eigendur geta því vel við unað en lagt er til að greiddur verði 20% arður vegna ársins, að fjárhæð 1,6 milljarðar. Fjórfaldur hagnaður og 50% arðsemi soffia@mbl.is Landsbanki Íslands Uppgjör MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 29. JANÚAR 2005 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF Canada's fastest growing franchise is now expanding into Iceland. See us at www.fibrenew.com                           !  "# $  %#%!   & %"' (" ) (" )#" *"' (" & %"' +!% +!' ! %# ,#    -./! -.  !  "#($ 0       . & %"' 1 "' 1. " 1 2  $ 34 / " 5 6("  *7 8" 4 "" 9:/! -& -% ;%# -%"' -%.   / 2  /$ <2## "#.   " = "" %  " 3.4 .. 5-8(!#     !"  (  !%' >2  *"' 7. & %"' <8 8 !#$  % ?@>A -7    $!            5       5 5  5 5 5 5 5 5 5 5 5   5 5 5 !2 "#  2   $! 5   5  5 5  5  5    5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 B 5CD B  CD B  CD B CD B CD B  CD B 5 CD 5 B CD B 5CD 5 B  CD B 5CD B  CD B CD 5 5 B 5CD 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 1! %'    '# " < %( 7 % '# E ) -% $   $ $ $ $$ $ $ $ 5 $ $  $ $ $ $ 5 5   5 5 5 5 5 5 5 5 5  5  5 5                         5                                        =    7 FG $ $ <1$ H /#"%  %'        5    5 5  5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 5 <1$5 I  .  ./%'"' % /% $ <1$5 -2%'  %  %!## . 2  %( /!   " $ 9 'J -KL   C C <-> M N   C C @ @ ,+N    C C )N 9 !    C C ?@>N  MO 6"!     C C ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI Markaður bregst við uppgjörum ● VIÐSKIPTI með hlutabréf námu 7 milljörðum í Kauphöll Íslands í gær, þar af um 4 milljörðum með bréf Ís- landsbanka en bankinn skilaði upp- gjöri ársins 2004 í gær. Mest verð- hækkun varð á hlutabréfum í Landsbankanum, eða 6,1%, og var það einnig í kjölfar góðs uppgjör síðla dags. Sama á við um Atorku en verð hlutabréfa félagsins hækkaði um 2,6% í gær. Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,75% og er 3.654 stig. FJÓRÐI ársfjórðungur skilaði Ís- landsbanka 1,3 milljarð króna hagnaði sem þýðir að hagnaður af árinu er ríflega 11,4 milljarðar króna. Það er í nokkrum takti við það sem greiningardeildir hinna bankanna reiknuðu með í spám sínum, þó ívið hærra. Hagnaðar- aukningin nemur 96% eða 5,6 milljörðum króna. Sé hagnaðurinn sérgreindur á bankastarfsemi Ís- landsbanka og vátryggingastarf- semi Sjóvár-Almennra, var tæp- lega 7,9 milljarða króna hagnaður af bankanum, sem er 38% eða 2,1 milljarðs aukning frá árinu áður. Þá var tæplega 3,6 milljarða króna hagnaður af vátryggingafélaginu og er það aukning upp á ríflega 3,4 milljarða króna. Hreinar rekstrartekjur Íslands- banka jukust um 17,8 milljarða eða 87%. Þar af er 3,4 milljarða aukn- ing (54%) á hreinum vaxtatekjum sem rekja má til stóraukinna út- lána en hreinar vaxtatekjur voru á árinu 14,4 milljarðar króna og er það nokkuð meira en spár gerðu ráð fyrir. Hreinar þóknunartekjur jukust um 1,2 milljarða (32%), mest er sú aukning frá verðbréfa- viðskipum og ráðgjöf. Auk þess jókst gengishagnaður bankans um 4,8 milljarða en það er nærfellt þreföldun frá fyrra ári og má að mestu rekja til hagnaðar af hluta- bréfaeign. Tekjusamsetning samstæðunnar tekur nokkrum breytingum frá fyrra ári. Hlutfall hreinna vaxta- tekna minnkaði úr 54% í 38%. Hreinar þóknunartekjur fóru úr 18% í 13% hreinna rekstrartekna en eigin iðgjöld af vátrygginga- starfsemi Sjóvár-Almennra og ágóðahluti frá endurtryggjendum jókst úr 9% í 20%. Þá nam geng- ishagnaður nú 20% hreinna rekstr- artekna í stað 14% árið áður. Eigin tjón Sjóvár-Almennra rösklega fjórfaldast og færast 6,8 milljarðar til gjalda, sem hefur talsverð áhrif á afkomuna, en það er nærri 5,3 milljörðum meira en árið áður. Kostnaðarhlutfall af bankastarfseminni minnkar úr 50% í 48,6% en kostnaðarhlutfall vátryggingastarfseminnar eykst hins vegar úr 31,9% í 33,6%. Útlán Íslandsbanka jukust um ríflega 155 milljarða eða 49% og námu þau alls 470 milljörðum. Stærstur hluti útlána bankans í árslok eru skuldabréfalán og 76% útlánanna eru til fyrirtækja en 23% til einstaklinga. Innlán námu 156 milljörðum og er það 45% aukning. Heildareignir Íslandsbanka námu í árslok 675 milljörðum króna og höfðu aukist um helming frá byrjun sama árs en þess má geta að norski bankinn Kredit- tBanken bættist í samstæðuna síðla árs. Arðsemi eigin fjár bankans, sem gefur til kynna hversu mikil ávöxt- un var á eigið fé hans á árinu, var 40% sem hlýtur að teljast afar gott. Árið áður var arðsemin 30,1%. Bankaráðið leggur til að greiddur verði 35% arður vegna 2004 eða 4.550 milljónir króna. Tvöföldun hagnaðar og 40% arðsemi        + , ! + , !     -   !      @    ! #  ! /(   . /   0 (          11%31 4&&52   %2:%4   42&4% 7&%% 1416   8%%22      # 9    ! " 7%5:%: 5:141   %2422 414:5  357%   3673 452: %&72   8531   2425%: %32%1      9 (     9/  /  # !( '  ;<- = -  !( 3346 %32%3 4%>7? 2:>:? 677& 43136 44>2? 1:>4?  !"  ! #$%&%" ! 144%    $$)!*"   soffia@mbl.is Uppgjör Íslandsbanki Ekki dregið úr framleiðslu að sinni ● ÓLÍKLEGT er talið að OPEC muni draga úr olíuframleiðslu sinni á næstunni en olíumálaráðherra Sádi- Arabíu, Ali Al-Naimi, lét hafa það eftir sér á fimmtudag að samtökin mættu við því að bíða fram í mars áður en dregið yrði úr framleiðslu. Aðrir ráðherrar olíuframleiðsluland- anna hafa látið hafa eftir sér að ekki sé réttlætanlegt að draga úr framleiðslu, með það í huga að koma í veg fyrir birgðasöfnun, þeg- ar verð á hráolíu og olíuafurðum er eins hátt og raun ber vitni. Að mati Chakib Khelil, olíu- málaráðherra Alsírs, henta mark- aðsaðstæður í dag bæði neyt- endum og framleiðendum olíu: „Verð er hagstætt, birgðir eru góð- ar og spákaupmennirnir eru komnir aftur. Framboð er meira en eft- irspurn, hvað getum við beðið um annað,“ sagði hann. Hagnaður Microsoft 215 milljarðar ● HAGNAÐUR hugbúnaðarrisans Microsoft meira en tvöfaldaðist á öðrum fjórðungi þess bókhaldsárs sem nú stendur yfir. Hagnaður fyrirtækisins á öðrum ársfjórðungi nam 3,46 milljörðum Bandaríkjadala, sem samsvarar rúmlega 215 milljörðum króna en á sama tímabili árið áður var hagnaður Microsoft 1,55 milljarðar Bandaríkjadala eða 96 milljarðar króna. Helsta ástæða þessa mikla af- komubata er talin vera sú að eft- irspurn eftir einkatölvum hefur aukist auk þess sem Xbox, leikja- tölva Microsoft, hefur selst vel. Stjórnendum fyrirtækisins hefur einnig tekist að skera niður kostn- að. Tilboði í kauphöllina í London hafnað ● STJÓRN London Stock Exchange (LSE) hefur hafnað tilboði kaup- hallarinnar í Frankfurt, Deutsche Börse, í félagið. Deutsche Börse lagði fram form- legt kauptilboð í LSE, rekstarfélag kauphallarinnar í London. Tilboðið hljóðaði upp á 530 pens fyrir hvern hlut, eða 1,3 millj- arða punda fyrir félagið í heild. Þetta samsvarar ríflega 152 millj- örðum íslenskra króna. Til sam- anburðar má geta þess að tilboð Baugs í Big Food Group hljóðaði upp á 40 milljarða króna. Eitt af skilyrðum kauptilboðsins var að stjórn LSE mælti með til- boðinu við hluthafa sína en úr því varð ekki samkvæmt frétt á vef- miðli Financial Times. Stjórn LSE hafnaði tilboðinu og í yfirlýsingu frá stjórninni segir að tilboðið sé allt of lágt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.