Morgunblaðið - 29.01.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 29.01.2005, Qupperneq 48
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Risaeðlugrín © DARGAUD EINMITT ÞAÐ SEM ÉG HÉLT. VATNSLÁSINN ER STÍFLAÐUR KOMIÐ! AAAAAAA ÞETTA ER NÚ GOTT! TAKKFYRIR DÍNÓ! AAAAHHHH!! GÓÐUR BLUNDUR... ER FORRÉTTUR FYRIR HÁTTATÍMANN OF STÓR BOLTI... SKILDU TÍGRISDÝRIÐ EFTIR ÚTI Í BÍL MÁ HOBBES EKKI KOMA MEÐ? HANN ÆTLAR EKKI BORÐA NEINN! NEI, KALVIN! VIÐ VERÐUM SAMT AÐ SKRÚFA NIÐUR RÚÐUNA SVO HANN FÁI FERSKT LOFT ERTU TIL Í AÐ SPURJA HVORT ÉG MEGI HAFA LYKLANA TIL ÞESS AÐ HLUSTA Á ÚTVARPIÐ? Dagbók Í dag er laugardagur 29. janúar, 29. dagur ársins 2005 Víkverji er ein-hverra hluta vegna orðinn eitthvað voðalega viðkvæmur fyrir því hvernig hann er ávarpaður í síma. Kannski ekki að ástæðulausu heldur. Fátt fer nefnilega meira í taugarnar á Víkverja en dauðir og merkingarlausir fras- ar, gullhamrar og skjall sem fólk er farið að nota í tíma og ótíma. Á þetta sér í lagi við vissar starfs- stéttir, gjarnan þá sem vinna við það að vera hressir og skemmtilegir, vinalegir og opnir; hafa af því hag að koma sér í mjúkinn hjá sem flestum, eiga marga kunningja sem geta klór- að þeim á bakinu þegar þannig stendur á. Þetta eru sölumenn dauð- ans, gjarnan markaðs- og kynning- armenn þessa heims. x x x Sæll meistari,“ er algengasti fras-inn, skelfilega marklaus. Nema markaðsmönnunum finnist Víkverji í alvöru vera meistari. Sem væri reyndar ekkert slor því Víkverja var einhvern tímann tjáð að það væri bara til einn meistari og sá væri Þór- bergur. Nú eru þeir sem sagt orðnir tveir. Stundum er Víkverji líka sagður „höfðingi“. Sannarlega höfðinglegt ávarp það, ef einhver meining væri með því þ.e.a.s. Annað sem fer óskap- lega í taugarnar á Vík- verja þegar hann ræðir við sér yngra fólk í síma er þegar það fer að ávarpa Víkverja sem „sinn“: „Hvað segirðu, Víkverji minn“ og kalla Víkjverja svo „kallinn sinn“: „Heyrðu, kallinn minn“. Einn- ig þykir Víkverja eitthvað stuðandi þegar yngra fólk kallar hann vin eða væna: „Heyrðu, vinur“ eða „Heyrðu, væni minn“. Þetta er óbærilegur yfirlæt- isbragur. x x x Víkverji gat ekki annað en brosaðút í annað um daginn þegar hann horfði á beina útsendingu frá Golden Globe-verðlaununum. Þá sagði þul- urinn um myndina Ray, sem fjallar um sálarsöngvarann Ray Charles, að Charles hefði náð að „sjá“ loka- útgáfuna áður en hann lést á síðasta ári. Bíddu, var karlinn ekki blindur? Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is                Valsheimilið | Margir sterkustu menn Íslands mæta til leiks í dag kl. 13 í Valsheimilinu þegar keppt verður á Íslandsmótinu í bekkpressu. Meðal ann- ars verður reynt í fyrsta sinn við 300 kíló. Hver sem úrslitin verða er ljóst að kraftakarlarnir Ingvar Jóel og Auðunn Jónsson munu ekki láta deigan síga og keppa drengilega til síðasta svitadropa. Morgunblaðið/Golli Kraftajötnar etja kappi MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Þú hefur breytt eftir mér í kenningu, hegðun, ásetningi, trú, langlyndi, kærleika, þolgæði. (2.Tím. 3, 10.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.