Morgunblaðið - 12.06.2005, Blaðsíða 44
44 SUNNUDAGUR 12. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Ég vil fyrir hönd fé-
laga í Lionsklúbbnum
Fjölni minnast vinar
okkar, Torfa Ásgeirs-
sonar, sem lést fyrir
skömmu.
Torfi var alveg ein-
stakur félagi. Má segja að hann hafi
verið potturinn og pannan í öllu
starfi klúbbsins þau tuttugu ár sem
hann starfaði með okkur. Hann
TORFI
ÁSGEIRSSON
✝ Torfi Ásgeirssonfæddist í Reykja-
vík 23. september
1930. Hann lést á
líknardeild Land-
spítalans 15. maí síð-
astliðinn og var útför
hans gerð frá Dóm-
kirkjunni 23. maí.
varð á sínum starfs-
ferli formaður, ritari
og gjaldkeri og af
nefndum sem hann var
ýmist í forsvari fyrir
eða starfaði í má nefna
fjárhagsnefnd,
skemmtinefnd, veit-
inganefnd, rauðufjaðr-
arnefnd og félaga-
nefnd. Það verður
seint annað sagt en að
Torfi var röskur til at-
hafna, snöggur að
framkvæma og var
ekki að tvínóna við
hlutina í störfum sín-
um fyrir klúbbinn.
Nú er það svo að þetta gengur nú
ekki allt út á puð hjá okkur í
klúbbnum. Þess hefur líka verið
gætt að gleðjast við önnur tækifæri
og það var gaman að gleðjast með
Guðmundu og Torfa. Þegar hann
hóf upp raust sína við ýmis tæki-
færi höfðum við það stundum á til-
finningunni að við værum stödd í
einhverju af óperuhúsum Ítalíu og
svo hefur konan mín trúað mér fyr-
ir því að hann hafi verið alveg frá-
bær dansherra. Þessa eiginleika
Torfa prófaði ég að vísu ekki sjálf-
ur, en konunni minni trúi ég full-
komlega.
Já, við höfum margs að sakna eft-
ir 20 ára félagsskap í margs konar
starfi sem klúbburinn hefur tekið
sér fyrir hendur og frá skemmt-
unum og ferðalögum með Torfa og
Guðmundu sem ylja okkur um
hjartaræturnar.
Við félagarnir óskum Torfa góðr-
ar ferðar á nýjar slóðir og Guð-
mundu og fjölskyldu sendum við
okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Fyrir hönd okkar, félaganna í
Fjölni,
Ólafur Briem, formaður.
Hver minning dýrmæt
perla að liðnum lífsins
degi,
hin ljúfu og góðu kynni af
alhug þakka hér.
Þinn kærleikur í verki var
gjöf, sem gleymist eigi,
og gæfa var það öllum, er fengu að
kynnast þér.
(Ingibjörg Sigurðardóttir.)
Elsku langamma mín, nú ert þú
farin frá okkur. Núna ertu komin á
betri stað, hjá langafa og litlu
börnum þínum. Þín og afa verður
alltaf saknað hér. Þú varst alltaf
svo fín kona, og þegar maður kom í
heimsókn var manni alltaf vel tek-
ið.
Þegar ég fór að hugsa um stund-
GUÐNÝ
BJARNADÓTTIR
✝ Guðný Bjarna-dóttir fæddist á
Gerðisstekk í Norð-
firði 19. mars 1915.
Hún lést á Heilbrigð-
isstofnuninni á Sel-
fossi 25. maí síðast-
liðinn og var útför
hennar gerð frá Sel-
fosskirkju 4. júní.
irnar sem við áttum
saman, var mér hugs-
að til þess þegar þú
fórst með bænir með
systrunum á kvöldin
þegar við vorum hjá
ykkur afa.
Ég á frábærar
minningar um þig og
afa og ég mun alltaf
geyma þær í hjarta
mínu.
Við vorum öll svo
heppin að fá svona
langan tíma með ykk-
ur afa og ég er mjög
þaklát fyrir það. Þú og
langafi voruð mér alltaf góð, enda
voruð þið guðforeldrar mínir. Ef
mann vantaði einhvern tímann eitt-
hvað voruð þið alltaf tilbúin að
hjálpa manni, þið voruð alltaf til
staðar.
Elsku langamma mín, þú varst
falleg ung kona og þú varðst bara
fallegri með tímanum. Ég á eftir að
eiga alltaf góðar minningar um þig
og afa.
Ég kveð langömmu með söknuði
og kærleika. Hvíl í friði.
Kristín.
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Sverrir
Einarsson
Bryndís
Valbjarnardóttir
Oddur
Bragason
Guðmundur
Þór Gíslason
Blómastofa Friðfinns,
Suðurlandsbraut 10,
sími 553 1099, fax 568 4499.
Opið til kl. 19 öll kvöld
Kransar • Krossar • Kistuskreytingar
Hjartans þakkir sendum við öllum þeim, er
vottuðu okkur samúð og vináttu vegna and-
láts og útfarar elskulegrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
RÖGNU ÁGÚSTSDÓTTUR,
Hátúni 4,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild E14
Landspítalanum við Hringbraut.
Anna Ívarsdóttir, Olgeir Erlendsson,
Jón Ívarsson,
Hilmar Ívarsson, Edda Kristinsdóttir,
Þorsteinn Gunnarsson, Rut Andersen,
Sigríður Gunnarsdóttir, Ingibergur Jón Georgsson,
Ágúst Gunnarsson, Ingunn M. Hilmarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og vináttu vegna andláts móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTÍNAR LAUFEYJAR
GUÐJÓNSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheim-
ilisins Skjóls.
Guðjón Ragnarsson, Kolbrún Zophoníasdóttir,
Hanna G. Ragnarsdóttir, Jón Kr. Stefánsson,
Halldóra G. Ragnarsdóttir, Gunnar Loftsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Hjartans þakkir til allra þeirra fjölmörgu, sem
sýndu samúð, vináttu og hlýhug við andlát og
útför ástkærs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
MAGNÚSAR NIKULÁSSONAR
fyrrv. yfirverkstjóra,
Snorrabraut 56,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til heimaþjónustu Karitas og krabbameinsdeildar 11E
Landspítalanum við Hringbraut.
Guð blessi ykkur öll.
Elín Þorsteinsdóttir,
Guðrún Magnúsdóttir,
Kristín Magnúsdóttir, Guðni R. Ragnarsson,
Þóra Magnúsdóttir,
Magnús Magnússon, Lára Snæbjörnsdóttir,
barnabörn og langafabörn.
Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs
eiginmanns, föður, tengdaföður, afa og lang-
afa,
BJÖRNS AÐILS KRISTJÁNSSONAR
múrarameistara,
Bræðratungu 19,
Kópavogi.
Lovísa Hannesdóttir,
Unnur Sólveig Björnsdóttir,
Hannes Björnsson, Hafdís Ólafsdóttir,
Kristján Björnsson, Helga Haraldsdóttir,
Sigríður Björnsdóttir, Brynjar Guðmundsson,
Illugi Örn Björnsson, Fanný María Ágústsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elsku-
legs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HALLGRÍMS EGILS SANDHOLT
verkfræðings.
Þóra Sandholt,
Bergur Sandholt, Th. Stella Hafsteinsdóttir,
Kristín Sandholt, Ingvar Vilhelmsson,
Ingibjörg Sandholt, Ei. Ómar Sveinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Kársnesbraut 98 • Kópavogi
564 4566 • www.solsteinar.is