Morgunblaðið - 17.10.2005, Page 15
Mosfellsbær – Fasteignasala
Mosfellsbæjar er nú með til sölu
134,8 fm einbýlishús á einni hæð
á 1.889,9 fm eignarlóð við Varmá í
Mosfellsbæ. Húsið er timburhús,
byggt 1977 og klætt með stand-
andi viðarklæðningu, en þak er
lagt bárujárni.
Komið er inn í forstofu með
flísum á gólfi. Á vinstri hönd er
lítið gestasalerni með flísum á
gólfi. Úr forstofu er komið inn í
stofu og borðstofu með viðargólfi.
Á vinstri hönd er ágætt herbergi
fataskáp. Þar við hlið er baðher-
bergi með sturtu.
„Ekið er inn Reykjaveginn og
síðan beygt til vinstri inn Bjargs-
veg, en þar er húsið það fyrsta á
vinstri hönd eftir að ekið er yfir
Varmána,“ segir Einar Páll
Kjærnested hjá Fasteignasölu
Mosfellsbæjar. „Húsið stendur á
fallegum stað rétt við Varmá.
Lóðin er gróin háum trjágróðri
og skjólgóð og mögulegt er að
byggja við húsið.“ Ásett verð er
34,8 millj. kr.
með dúk á gólfi. Úr stofu er geng-
ið út á timburverönd og í gróinn
og fallegan garð í suðvestur.
Á hægri hönd úr stofu er komið
inn í eldhús með L-laga innrétt-
ingu og góðum borðkrók. Frá eld-
húsi liggur svefnherberg-
isgangur. Þar á hægri hönd er
stórt þvottahús með sérútgangi
út á bílaplan. Þar við hlið eru tvö
svefnherbergi með dúk á gólfi
(var áður eitt stórt svefn-
herbergi). Á vinstri hönd er gott
hjónaherbergi með dúk á gólfi og
Þetta er 134,8 ferm. einbýlishús á einni hæð á 1.889,9 ferm. eignarlóð við Varmá í Mosfellsbæ. Ásett verð er 34,8
millj. kr., en húsið er til sölu hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Árbakki
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 F 15
Karl Gunnarsson
sölumaður
Jóhannes Ásgeirsson
hdl., lögg. fasteignasali
Erlendur Tryggvason
sölumaður
Kristján P. Arnarsson
sölumaður
Kristbjörn Sigurðsson
sölumaður GOÐABORGIR - LAUS Björt og rúm-
góð 68 fm íbúð með sérinngangi af svölum.
V. 14,9 m. 4685
HRAUNBÆR Björt og rúmgóð 60 fm
íbúð á 3. hæð. V. 13,3 m. 4617
VALLARÁS - SÉRVERÖND Góð 2ja
herbergja íbúð á jarðhæð í góðri lyftublokk .
V. 13,2 m. 4633
BARÓNSTÍGUR Mjög góð 2ja herb-
ergja íbúð á 3. hæð. V.15,4 m.
FRAMNESVEGUR - LAUS Einstakl-
ingsíbúð á miðhæð, ca 28 fm, með sérinn-
gangi. V. 8,5 m. 3923
ATVINNUHÚSNÆÐI
SÖLUTURN/GRILL Einn besti söluturn
/grill/lottóstaður miðbæjarins, söluturninn
Drekinn á Njálsgötu. 4801
MOSÓ - URÐARHOLT Nýstandsett
157 fm íbúðar- og atvinnuhúsnæði á jarð-
hæð. V. 25,9 m. 4768
SÍÐUMÚLI Gott 192,4 fm skrifstofuhús-
næði á 3. hæð. 4655
LANDIÐ
SUMARHÚS MEÐ 100% LÁNUM
Sumarhús á eignarlóðum í landi Heklu-
byggðar. Húsin eru 60 fm með 30 fm svefn-
lofti. Tvö góð svefnherbergi, eldhús og stór
stofa. Húsin eru fullbúin að utan en fokheld
að innan. Lóðirnar eru í skipulagðri frí-
stundabyggð. Vegur og kalt vatn að lóðar-
mörkum. Mjög góð staðsetning og glæsi-
legt útsýni. Allar nánari upplýsingar á
www.heklubyggd.is . V. 10,9 m. 4784
MÁVABRAUT - KEFLAVÍK Raðhús á
tveimur hæðum, 132 fm, ásamt 35 fm bíl-
skúr. V. 19,9 m. 4765
HVERAGERÐI - EINBÝLI 162 fm
einnar hæðar einbýlishús með bílskúr. Fal-
leg lóð, heitur pottur. 4652
ESKIFJÖRÐUR - ZEUTENSHÚS -
LAUST Eitt af elstu og sögufrægustu hús-
um á Eskifirði, byggt 1870. Eignin er talsvert
endurnýjuð og laus nú þegar. V. 10,9 m.
4692
SUMARHÚS VIÐ HELLU Á EIGN-
ARLÓÐUM Fjögur 87 fm heilsárshús, til-
búin undir tréverk. V. 10,8 m. 4669
WWW.HEKLUBYGGD.IS Fjölbreytt
úrval 1-2 ha lóða meðfram Rangá. 4483
BÓKHLÖÐUSTÍGUR - STYKKIS-
HÓLMI Björt og rúmgóð 4ra herbergja efri
sérhæð í tvíbýlishúsi á útsýnisstað. V. 9,9
m. 3946
DJÚPIVOGUR - ORLOFSÍBÚÐ
2ja herbergja 63 fm íbúð á 1. hæð. Hent-
ug sem orlofsíbúð. V. 3,9 m. 2906
VALLARGATA - SANDGERÐI 91
fm neðri 3ja herbergja sérhæð í tvíbýlis-
húsi. V. 11,5 m. 4725
EYRARBAKKI Nýtt FULLBÚIÐ 90 fm
parhús á Eyrarbakka. Þetta er nýtt timb-
urhús með aluzink-klæðningu. V. 14,9
m. 4821
VÖRUMIÐSTÖÐ Samskipa hlaut
viðurkenninguna „Lofsvert lagna-
verk 2004“ sem Lagnafélag Íslands
afhenti fyrir skömmu í höf-
uðstöðvum Samskipa. Lagnakerfa-
miðstöð Íslands fékk viðurkenningu
fyrir sérstakt handverk í flokki
smærri lagnakerfa og Guðmundur
Jónsson vélfræðingur og Sigurður
Grétar Guðmundsson pípulagn-
ingameistari voru verðlaunaðir fyr-
ir framúrskarandi starf.
Lagnafélag Íslands veitti fyrstu
viðurkenninguna fyrir lofsverð
lagnaverk 1990. Tilgangurinn er
„að efla gæðavitund þeirra aðila
sem starfa á þessum vettvangi, efla
þróun í lagnamálum með bættum
vinnubrögðum, vali á lagnaleiðum
og lagnaefnum. Síðast en ekki síst
er viðurkenningunum ætlað að vera
hönnuðum og iðnaðarmönnum
hvatning til að afla sér aukinnar
menntunar á sviði lagnamála.“
Við mat á loftræsti- og hitakerf-
um lagði nefndin áherslu á að lýsing
lægi fyrir á samvirkni tækja og
tækjalisti væri skráður. Einnig að
stillingarskýrsla verktaka lægi fyr-
ir um stillingu tækja og almenna út-
tekt á þeim.
„Fagmannlegur frágangur“
Verðlaunabyggingin er ein
stærsta bygging landsins, um
28.000 fermetrar að flatarmáli, en
rúmmál hússins er um 270.000 m³.
Byggingin er stálgrindarhús, 72 m
breið, 250 m löng og meðalhæð
hennar er rúmir 14 m. Mikil lagna-
kerfi eru í byggingunni. Heildar
pípulengd slökkviúðakerfisins er
um 23 km. Hámarksafköst kerfisins
eru 9.000 lítrar á mínútu við 5 bar
en það vatnsmagn fyllir um 36 bað-
kör á mínútu. Hitakerfi vöru-
geymslunnar eru lokuð hringrás-
arkerfi og er húsið hitað með 94
hitablásurum.
Í skrifstofum eru ofnar og gólf-
hiti í hluta þeirra. Þá er gólfhiti við
vöruafgreiðsludyr. Heildarlengd
allra pípulagna í byggingunni að
meðtöldum snjóbræðslu- og gólf-
hitaslöngum er um 65 km.
Sex loftræstikerfi þjóna skrif-
stofuhlutanum sem er 150 m langur
og sums staðar á þremur hæðum. Í
umsögn Lagnafélags Íslands segir
að „öll samanstanda þessi kerfi
sambyggðum loftræstisamstæðum
með varmaendurvinnsluhjólum,
nema kerfið fyrir matsal og eldhús.
Eftirhitarar eru síðan fyrir einstök
svæði. Fagmannlegur frágangur
bæði lagna og loftstokka einkennir
lagnakerfin. Merkingar pípna og
búnaðar eru til fyrirmyndar.“ Þau
fyrirtæki sem eiga hlut að máli í
húsi Samskipa við Kjalarvog eru
Verkfræðistofa Guðmundar og
Kristjáns, Raftákn ehf., Ísloft ehf.,
Pípulagnaverktakar ehf., Raf-
miðlun ehf., Lagnatækni ehf., Op-
timar ehf., Arkís ehf. og Samskip
hf.
Aðrar viðurkenningar
Fyrirtækin Borgarlagnir ehf. og
Verklagnir ehf., fengu viðurkenn-
ingu fyrir „Frábært handverk
2004“ fyrir verk sín við lagningu
pípulagna í kennsluloftræstikerfi í
Lagnakerfamiðstöð Íslands.
Enn fremur fengu Guðmundur
Jónsson vélfræðingur og Sigurður
Grétar Guðmundsson pípulagn-
ingameistari viðurkenningu.
Lagnafélagið var stofnað 4. októ-
ber 1986. Guðmundur hefur starfað
með félaginu síðan og sat í stjórn í
fjögur ár, þar af sem formaður í
þrjú ár.
Sigurður Grétar fékk viðurkenn-
ingu fyrir skrif sín um lagnamál í
Fasteignablaði Morgunblaðsins. Að
frumkvæði Kristjáns Ottóssonar,
framkvæmdastjóra félagsins, byrj-
aði hann að skrifa pistlana lagna-
fréttir í blaðið í ágúst 1992. Til stóð
að hann skrifaði fimm pistla og síð-
an tækju aðrir við en hann hélt
áfram og hefur nú skrifað rúmlega
500 greinar. „Með skrifum sínum í
Morgunblaðið hefur Sigurði tekist á
stórkostlegan hátt að opna um-
ræðuna um lagnamál inni á heim-
ilunum og leitt hinn almenna borg-
ara inn í sannleikann um mikilvægi
þess að vera meðvitaður um þau
þægindi, líkamleg og andleg, sem
vatn og loft á að veita fólki bæði á
heimilinu og á vinnustaðnum,“ segir
í dómi viðurkenningarnefndar en í
henni eru Valdimar K. Jónsson véla-
verkfræðingur, formaður nefnd-
arinnar, Ólafur Bjarnason blikk-
smíðameistari og Stefán Jónsson
pípulagningarmeistari. Ritari
nefndarinnar er Kristján Ottósson.
Lagnafélag Íslands verðlaunar Vörumiðstöð
Samskipa fyrir lofsvert lagnaverk
Pípulagnir byggingar-
innar um 65 km
Morgunblaðið/ÞÖK
Vörumiðstöð Samskipa hlaut viðurkenningu fyrir lofs-
vert lagnaverk 2004. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Lagnakerfamiðstöðvar Íslands, afhenti Ólafi
Ólafssyni, stjórnarformanni Samskipa, viðurkenninguna.
Morgunblaðið/ÞÖK
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Lagnakerfamiðstöðvar
Íslands, afhendir Sigurði Grétari Guðmundssyni, pípulagn-
ingameistara, viðurkenningu fyrir skrif í Fasteignablað Morg-
unblaðsins.