Morgunblaðið - 17.10.2005, Page 18
18 F MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Garðabær - Fasteignasalan Hraun-
hamar er nú með í sölu einbýlishús
við Sunnuflöt 48. Húsið er timbur-
hús á einni hæð, 200,2 ferm. að
stærð
ásamt 63,7 ferm. bílskúr, samtals
263,9 ferm. Bílskúrinn er steyptur
en verið er að klæða hann með
timbri.
„Þetta er gott hús, sem stendur á
frábærum stað á Sunnuflöt við læk-
inn og hraunjaðarinn,“ segir Þor-
björn Helgi Þórðarson hjá Hraun-
hamri.
Tveir inngangar eru í húsið, aðal-
inngangur og annar inngangur
þvottahússmegin og er þaðan inn-
angengt í bílskúrinn.
Komið er inn í rúmgott anddyri.
Opið er inn í forstofu og þaðan inn í
stórar stofur. Inn af stofu er notaleg
arinstofa í baðstofustíl og inn af
henni er stórt svefnherbergi með
stórum gluggum, þakgluggum og
rennihurð út í suðurgarð.
Eldhúsið er fallegt með nýrri inn-
réttingu og tækjum, stórri gaselda-
vél með 6 hellum og tvöföldum ofni.
Inn af eldhúsi er stórt þvottahús
með innréttingu og dúk á gólfi. Inn
af er gott búr.
Inn af þvottahúsi er gengið inn í
milligang og þaðan inn í gang, þaðan
sem gengt er út á planið og einnig í
bílskúrinn.
Í svefnherbergisálmu eru fjögur
svefnherbergi, þar af er eitt notað
sem fataherbergi. Baðherbergi er
allt upprunalegt og er með sturtu-
horni og baðkari.
Á gólfum hússins er nýlegt merb-
auparket á stofum en í eldhúsi og
herbergjum er eikarparket.
„Mikið hefur verið endurnýjað í
húsinu en nokkru er þó ólokið,“ seg-
ir Þorbjörn Helgi Þórðarson. „Bíl-
skúrinn er fullbúinn með nýju þaki
og með geymslu inn af. Lóðin er
1.590 ferm. og býður upp á mikla
möguleika en um endalóð er að ræða
og þaðan er örstutt í Heiðmörkina.“
Ásett verð er 55 millj. kr.
Sunnuflöt 48
Húsið er timburhús á einni hæð, 200,2 ferm. að stærð ásamt steyptum 63,7 ferm. bílskúr, samtals 263,9 ferm. Ásett
verð er 55 millj. kr., en húsið er til sölu hjá Hraunhamri.
Viðarhöfða 3 · S. 577-5050
www.gluggasmidjan.is
Ál-trégluggar
Trégluggar
Álgluggar
Útihurðir
Tréhurðir
Álhurðir
Bílskúrshurðir
Iðnaðarhurðir
Hringhurðir
Rennihurðir
Loftristar
Gæðavottuð framleiðsla - yfir 50 ára reynsla
Heitir & fallegir
Ofnar
Ofnlokar
Handklæðaofnar
Sérpantanir
www.ofn.is // ofnasmidjan@ofn.is
Háteigsvegi 7
Sími: 511 1100