Morgunblaðið - 17.10.2005, Síða 30
30 F MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
M
ikil uppbygging hefur
átt sér stað á und-
anförnum árum á
svæðinu við Sóltún
nálægt mótum
Kringlumýrarbrautar og Borgar-
túns. Þar eru að verki Íslenskir að-
alverktakar (ÍAV), sem lengi hafa
verið eitt helsta bygginga- og verk-
takafyrirtæki landsins.
Þetta svæði hefur marga kosti.
Það er nærri grónum íbúðarhverf-
um og öll þjónusta þegar fyrir
hendi. Laugardalurinn, eitt helsta
tómstunda- og útivistarsvæði
Reykvíkinga, er í göngufæri. Það
er því stutt á völlinn eða í sund-
laugina og í nágrenni eru góðar
gönguleiðir við allra hæfi.
Góðir skólar eru líka í nágrenn-
inu eins og Laugarnesskólinn,
Laugalækjarskóli og Menntaskól-
inn við Sund. Þarna eru líka veit-
ingastaðir, apótek, verslanir og
banki og aðeins um 2 km niður á
Lækjartorg. Þá er Kringlan ekki
heldur langt í burtu. Það þarf því
ekki að koma á óvart, að sala á nýj-
um íbúðum á þessu svæði hefur yf-
irleitt gengið vel og íbúðirnar
reynst góðar í endursölu.
Lúxusíbúðir
Við Sóltún 14–18 eru nú hafnar
byggingaframkvæmdir við fjöl-
býlishús með alls 32 íbúðum. Húsið
er hannað af Hróbjarti Hróbjarts-
syni og Karli Magnúsi Karlssyni,
arkitektum hjá VA arkitektum.
Þetta er 4–7 hæða lyftuhús með
þremur stigahúsum. Tvær íbúðir
eru á hæð í hverjum stigagangi,
sem þýðir að mun færri íbúðir eru
á hverjum stigapalli en venjan er.
Innangengt er úr sameiginlegu
bílageymsluhúsi beint í stigagang
og lyftu.
Stigahúsin eru mismunandi há.
Það er gert til þess að aðgreina
þau hvert frá öðru og hvert hús
hefur líka sinn lit til þess að þau
verði sjálfstæðari.
Töluvert er í þetta hús lagt að
utan, en það er einangrað að utan
og klætt með álklæðningu og
gluggar eru álklæddir trégluggar.
Allt viðhald verður því í lágmarki.
Íbúðirnar eru ýmist 2 herbergja
og á bilinu 86–97 ferm. eða 3 her-
bergja og 97–147 ferm. að stærð.
Gert er ráð fyrir, að fyrstu íbúð-
irnar verði tilbúnar til afhendingar
í desember á næsta ári.
En hver eru helstu áhersluatrið-
in í hönnun þessara íbúða. „Ætl-
unin er að hafa þessar íbúðir í
hærri gæðaflokki en almennt ger-
ist á markaðnum, sérstaklega
vegna góðrar legu, en þetta er eft-
irsótt svæði,“ segja arkitektarnir.
„Þetta verða rúmgóðar íbúðir með
stórum herbergjum. Íbúðirnar ná
til tveggja og þriggja átta og
tvennar svalir fylgja flestum íbúð-
um. Íbúðirnar verða bjartar með
stórum gluggum, sem sums staðar
ná niður í gólf og einnig upp í loft,
þannig að ljós og birta nái sem
lengst inn í íbúðirnar. Lofthæð
verður meiri en almennt gerist,
sem gefur íbúðunum tígulegra og
veglegra yfirbragð.“
„Með því að láta glugga ná niður
á gólf mót suðri og vestri fá íbúð-
irnar allt annað yfirbragð og verða
miklu bjartari,“ segja arkitektarnir
ennfemur. „Svalirnar tengjast þá
íbúðunum enn betur. Leyfi er einn-
ig fyrir því að setja svalaskjól yfir
svalirnar og er það innbyggt í
hönnunina. Það er samt ákvörðun
íbúðareigenda hvers og eins. Þá er
hægt að nýta svalirnar og stof-
urnar mjög vel saman.“
Gólfhiti er í íbúðunum og mynd-
dyrasími tengdur anddyri í öllum
íbúðum. Sjónvarps- og símatenglar
eru í stofu, borðkrók og herbergj-
um.
Vegna hita í gólfum eru engir
ofnar í íbúðunum fyrir utan hand-
klæðaofn í baðherbergjum og svo í
sameign. „Þægindi íbúanna eru
höfð í fyrirrúmi,“ segja arkitekt-
arnir. „Þannig verður hljóðein-
angrun milli íbúða eins og best
verður á kosið með tvöföldu gólfi
og vönduðum innveggjum. Þetta er
gert þannig, að í gólfin er sett sér-
stök hljóðdempandi einangrun og
síðan lagður yfir 5 cm flotmúr.
Þetta þýðir að gólfin í íbúðunum
eru í rauninni tvöföld. Þetta er
ekki ný aðferð hér á landi. Hún
hefur verið notuð um árabil og
reynst mjög vel.“
Íbúðirnar eru afhentar án gól-
fefna nema á baðherbergjum og
þvottahúsgólfum, sem verða flísa-
lögð. Innréttingar verða mjög
vandaðar og hægt að velja milli
þriggja viðartegunda í innrétting-
um og innihurðum. Í eldhúsi verða
mjög vönduð tæki.
Sameign verður fullfrágengin
með flísum í anddyri og teppum á
stigagöngum. Lóð verður fullfrá-
gengin með malbikuðum og mál-
uðum bílastæðum og hellulögðum
stígum og við aðalanddyri verður
snjóbræðsla sem og í niðurkeyrslu
í bílageymsluhús.
Sala fer vel af stað
Kaupverð íbúðanna er að sjálf-
sögðu mismunandi eftir stærð og
staðsetningu, en 2 herb. íbúðirnar
kosta frá 24,2 millj. og 3 herb.
íbúðir frá 27,3 millj. kr. „Verð á
þessum íbúðum er vissulega í
hærri kantinum en þess ber að
gæta, að þetta eru lúxusíbúðir,“
segir Eyjólfur Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri sölu- og markaðs-
sviðs ÍAV. „Það er afar mikið í þær
lagt og ekki síður í húsið sjálft. Það
er vandað til alls og góður frágang-
ur í fyrirrúmi. Allt þetta kostar sitt
og kemur að sjálfsögðu fram í
verði.“
Sala á íbúðunum hófst fyrir mán-
uði. „Markaðurinn hefur tekið
þessum íbúðum afar vel og nær
helmingur þeirra er þegar seldur,“
segir Eyjólfur „Það er einkum fólk
sem á góða eign fyrir, sem kaupir
þessar íbúðir. Þetta er gjarnan
fólk, fimmtíu ára og eldra, sem er
að fara úr stórum sérbýlum í
minna. Þetta fólk þarf ekki á eins
Góð hönnun og vandaður frágangur
einkennir íbúðir ÍAV við Sóltún 14–18
Nýjar íbúðir í grónum hverfum vekja ávallt athygli
þegar þær koma á markað. Við Sóltún 14–18 í Reykja-
vík eru ÍAV að reisa fjölbýlishús með 32 íbúðum.
Magnús Sigurðsson kynnti sér þessar íbúðir.
Útlitsteikning af húsunum. Þau verða tvö með þremur stigahúsum frá fjórum upp í sjö hæðir og með 64 íbúðum alls.
Húsin eru eins en framkvæmdir eru hafnar við húsið Sóltún 14–16–18 með 32 íbúðum. Þetta er 4–7 hæða lyftuhús og
tvær íbúðir eru á hæð í hverjum stigagangi, sem þýðir að mun færri íbúðir eru á hverjum stigapalli en venjan er. Inn-
angengt er úr sameiginlegu bílageymsluhúsi beint í stigagang og lyftu.
Tölvuteikning af húsunum við Sóltún 8–18, þegar þau verða komin upp. Húsin
munu falla vel inn í umhverfi sitt. Húsin eru samt vel aðgreind hvert frá öðru.
Þau eru mismunandi há og mismunandi á litinn.
Morgunblaðið/Golli
Á byggingarstað. Frá vinstri: Karl Magnús Karlsson arkitekt, Hróbjartur Hró-
bjartsson arkitekt, Guðmundur Konráðsson byggingastjóri, Inga Brynja Magn-
úsdóttir sölufulltrúi, Hafsteinn Jónsson verkefnastjóri, Margrét Sveinbjörns-
dóttir sölufulltrúi, Eyjólfur Gunnarsson framkv.stj. sölu- og markaðssviðs,
Ragnar Thorarensen sölufulltrúi, Knútur Bjarnason sölufulltrúi og Arnar Freyr
Reynisson markaðsfulltrúi.
www.hofdi.is
Runólfur Gunnlaugsson, viðskiptafr. og löggiltur fasteigna- og skipasali.
Suðurlandsbraut 20
Sími 533 6050
Bæjarhrauni 22
Sími 565 8000
Í dag býðst þér og þinni fjölskyldu að skoða þetta glæsilega fullbúna 185
fm raðhús. Húsið er á tveimur hæðum og með innbyggðum bílskúr. Parket
og flísar eru á gólfum. Hellulögð innkeyrsla og timburverönd. Hátt til lofts,
innbyggð lýsing. Glæsilegt eldhús. Tvö baðherbergi. Verð 42,9 millj. Þór-
unn tekur vel á móti ykkur.
skráð eign er seld eign
Kristín Pétursdóttir löggiltur fasteignasali
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Skjólsalir 14 - Kópavogi
Elín og Örn bjóða ykkur að skoða
þessa fallegu, vel skipulögðu 4ra
herbergja íbúð í Hamrahverfinu,
Grafarvogi ásamt bílskúr, alls um
136 fermetrar. Parket og flísar á
gólfum. Frábært útsýni. Stutt í alla
þjónustu. Hús er nýlega viðgert og
málað að utan. Falleg sameign. Flott
íbúð með miklu útsýni á frábærum
stað! Verð 27,5 millj. Laus fljótlega.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Rauðhamrar 10 2.h.h.
Í dag býðst ykkur að skoða sérlega
glæsilega 104 fm 3ja herbergja
endaíbúð á 3. hæð á þessum eftir-
sótta stað. Grill suðursvalir. Parket á
gólfum. Sérinngangur. Laus strax.
Verð 19,9 millj.
Opið hús í dag á milli 14 og 16
Laufrimi 26 3.h.v.
Steini býður ykkur að skoða þessa
fallegu og vel skipulögðu 98 fm 4ra
herbergja íbúð. Íbúðin er á 1. hæð á
fallegu húsi á þessum eftirsótta
stað. Sérþvottahús er í íbúð. Hér er
gott að búa og stutt í alla þjónustu.
Verð 19,5 millj. Laus fljótlega.
Opið hús í dag á milli 13 og 15
Breiðvangur 7 í Hafnarf. 1.h.v.
Í dag býðst þér og þínum að skoða
þetta fallega 85 fm parhús. Húsið er
mikið endurnýjað og á einni hæð.
Suðurgarður. Bílskúrsréttur. Parket
og flísar á gólfum. Verð 24,9 millj.
Húsið er laust strax!
Opið hús í dag á milli 15 og 17
Krummahólar 53