Morgunblaðið - 17.10.2005, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. OKTÓBER 2005 F 31
stóru húsnæði að halda og áður,
eftir að börnin eru farin að heiman.
Oft vill eldra fólk líka losna við við-
hald og garðvinnu, sem fylgir ein-
býlishúsunum og nota frítímann í
annað.
Stundum á fólk heilsárs sum-
arhús upp í sveit sem er þá gjarn-
an þess annað heimili, þar sem oft
er dvalist og mun lengur en áður.
Þá þarf fólk ekki á eins stórri eign
að halda í þéttbýlinu.“
Eyjólfur segir þeim fara fjölg-
andi sem hugsa svona. „Þessi hóp-
ur fer stækkandi, en þetta er
gjarnan efnameira fólk, sem gerir
miklar kröfur og þessum íbúðum
við Sóltún er einmitt ætlað að
koma til móts við óskir þess. Þetta
fólk er kannski búið að vinna í ára-
tugi og komið yfir alla efnahags-
lega hjalla, á þannig skuldlausa eða
skuldlitla eign fyrir, sem það selur
til þess að komast í þessar íbúðir.
Við höfum reynslu af því að
byggja fyrir þennan markhóp, en
ÍAV hafa byggt á þriðja hundrað
íbúðir á þessu svæði. Íbúðirnar
standa við Sóltún, Mánatún og
Borgartún og sala á þeim hefur
gengið mjög vel.“
Núna er í smíðum mikill fjöldi
nýrra íbúða á höfuðborgarsvæðinu.
Eyjólfur Gunnarsson var að lokum
spurður, hvort ekki væri farin að
segja til sín einhver mettun á
markaðnum?
„Það er engin mettun farin að
segja til sín ennþá, hvað sem síðar
verður,“ segir Eyjólfur. „Það er
gríðarleg eftirspurn eftir íbúðum í
þessum gæðaflokki og það svo að
það er óhætt að tala um umfram-
eftirspurn.
Það eykur enn á eftirspurnina,
að á meðal kaupenda er fólk, sem
var ekki endilega í kauphugleið-
ingum einmitt núna, en þegar það
sér möguleikann á að kaupa íbúðir
í þessum gæðaflokki og á þessum
stað, bíður það ekki boðanna og
ákveður að grípa tækifærið og
kaupa. Staðsetningin og þetta háa
gæðastig dregur fólkið að.“
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteigna- og skipasali.
Hlíðasmári 1 - Kópavogi - Glæsileg skrifstofubygging
Höfum fengið í einkasölu- eða leigu þessa glæsilegu skrifstofubyggingu við Hlíðasmára í
Kópavogi. Eignin fékk verðlaun árið 2005 frá umhverfisnefnd Kópavogsbæjar fyrir hönnun.
Um er að ræða fimm hæða lyftuhús, samtals að gólffleti 3.504 fm, og skiptist þannig:
404 fm verslunar-/þjónustu-/skrifstofuhúsnæði á 1. hæð auk hlutdeildar í sameign.
648 fm verslunar-/þjónustu-/skrifstofuhúsnæði á 2. hæð auk hlutdeildar í sameign.
645 fm skrifstofuhúsnæði á 3. hæð auk hlutdeildar í sameign.
643 fm skrifstofuhúsnæði á 4. hæð auk hlutdeildar í sameign.
422 fm skrifstofuhúsnæði á 5. hæð auk hlutdeildar í sameign.
Frágangur er allur mjög vandaður og afhendist eignin fullbúin að
utan og með fullfrágenginni lóð. Að innan skilast eignin tilbúin til
notkunar með gólfefnum, milliveggjum, kælistokkum (loftræstikerfi),
raf- og tölvulögnum og lýsingu. Sameign verður fullfrágengin og
lögð slípuðu graníti.
Eignin selst eða leigist í heild sinni eða hlutum. Hentar vel fyrir hvers
kyns skrifstofur, verslanir og þjónustu.
Eignin verður tilbúin til afhendingar í febrúar 2006, fullbúin.
Aðkoma og staðsetning eignarinnar er mjög góð við fjölfarna
umferðaræð. Mikið útsýni. Fjöldi malbikaðra bílastæða.