Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 29

Morgunblaðið - 28.10.2005, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 28. OKTÓBER 2005 29 MENNING TVÖ ungmenni á framhalds- skólaaldri í Reykjavík samtímans, Grímur og Brynhildur, ákveða að mótmæla óréttlæti sem þau finna fyrir í sínu nánasta umhverfi – í landsmálum og heimsmálum – með róttækum hætti. Þannig standa leik- ar í Frelsi, nýju leikverki samsettu úr 66 stuttum atriðum eftir Hrund Ólafsdóttur, sem frumsýnt verður á Smíðaverkstæði Þjóðleikhússins í kvöld. Þetta er fyrsta leikverk Hrundar í fullri lengd, en hún hefur áður skrifað einleiki og stutta leik- þætti fyrir áhugaleikfélög, og tekið þátt í starfi þeirra bæði sem leikari og leikstjóri. Ætlað að vera róttækt Að sögn Hrundar vaknaði hug- myndin að Frelsi fyrir meira en tíu árum, en vinnsla verksins hófst fyrir þremur árum, í Höfundasmiðju Þjóðleikhússins. „Hugmyndin yf- irgaf mig ekki, frekar en góðar hug- myndir gera,“ segir hún. „Ég hafði mjög skýra sýn um hvernig ég vildi hafa leikritið og það hefur nokkurn veginn haldist. Hugmyndin kviknaði út frá fréttum sem bárust af ungu fólki á Norðurlöndunum, sem fékk aðgang að skotvopnum og myrti sak- lausa borgara, til að vekja athygli á sjálfu sér og ákveðnum málefnum. Þetta hafði þá þegar færst í vöxt, sem gefur vísbendingu um að vopna- eign ungmenna hafi enn aukist.“ Með leikritinu segist Hrund vilja vekja Íslendinga, sem oft telja sig af- ar verndaða, til umhugsunar um hvort slíkir atburðir geti gerst á Ís- landi, og þá hvenær. Hún segir leik- ritinu ætlað að vera róttækt. „Ég skrifaði það til að varpa fram spurn- ingum, sem ég vona að áhorfendur fari út með. Leikritið fjallar um hvernig við viljum lifa í okkar sam- félagi, og dregin upp mynd af að- stæðum sem eru óviðunandi – að- stæðum sem margir krakkar búa við í dag. Í því felst ádeila á hvernig landinu er stjórnað, og hvernig hald- ið er á heimsmálunum. Það hlýtur að teljast róttækni, er það ekki?“ segir Hrund og segir það haldast í hendur við hugmyndir sínar um hlutverk leikhússins. Sjálf hefur hún séð ófá- ar leiksýningar, sem leiklista- gagnrýnandi Morgunblaðsins. „Ég vil að leikhúsið fái fólk til að hugsa hlutina upp á nýtt, þótt leikhúsið geti líka verið ágætt til að skemmta og ég skemmti mér oft konunglega þar án þess að það sé nokkur pólitík á bak við það eða breytt heimssýn sem ég fæ. En það þarf að gera það líka og ég gleðst yfir því tækifæri að fá að sýna þetta í leikhúsinu.“ Verður að vinna verkið til enda Það gefur auga leið að það er ungt fólk í aðalhlutverkum í kvöld; Ólafur Steinn Ingunnarson, sem útskrif- aðist úr leiklistardeild LHÍ í vor þreytir nú frumraun sína á fjölum Þjóðleikhússins í hlutverki Gríms, og Arnbjörg Hlíf Valsdóttir fer með hlutverk Brynhildar. „Það er óskap- lega gaman að fá þessa nýju krafta inn í sýninguna, og hópurinn allur hefur unnið mjög vel saman,“ segir Hrund um hópinn sem að sýning- unni stendur. Leikstjórinn stígur einnig sín fyrstu skref í því embætti í Þjóðleik- húsinu; Jón Páll Eyjólfsson, sem áð- ur hefur starfað þar sem leikari. Að sögn Hrundar óskaði hún sér- staklega eftir að fá Jón Pál til að leikstýra verkinu, en hann vakti mikla athygli á síðasta leikári fyrir sýninguna Þú veist hvernig þetta er, sem hann leikstýrði og samdi ásamt leikhóp Stúdentaleikhússins. Sú sýn- ing var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins og sýnd á Stóra sviði Þjóðleikhússins. „Það er lúxus, sem ég trúi varla enn – að hafa fengið óskaleikstjór- ann minn,“ segir Hrund. „Mér fannst Jón Páll vera rétti maðurinn til að koma með rétta andann í verk- ið eftir að ég sá sýninguna hans. Ég sá þar mann með mjög sterka póli- tíska vitund, sem mér fannst hann koma mjög fallega til skila.“ Hún segir samstarf þeirra hafa gengið vel, en hún óskaði eftir því að fá að vinna náið með leikstjóranum að verkinu eftir að hún skilaði því. „Nútímaleikritun er ekki lifandi nema höfundur taki þátt í að vinna verkið til loka. Annars er það bara dautt – ég myndi aldrei skila verki og segja „breytið engu“. Mér líður best þegar það eru setningar í verk- inu sem ég veit ekki hvort komu frá mér, leikhópnum eða leikstjór- anum.“ Hún segir það dásamlega tilfinn- ingu að sjá verk sitt á sviði í Þjóð- leikhúsinu. „Það er draumi líkast, bæði að Þjóðleikhúsið hafi keypt eft- ir mig verk og svo að ég hafi fengið leikstjórann sem ég vildi til að leik- stýra því. Það er góð og jafnframt dálítið óraunveruleg tilfinning.“ Leiklist | Frelsi eftir Hrund Ólafsdótt- ur frumsýnt á Smíðaverkstæðinu Róttækum spurningum varpað fram Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is „Hugmyndin kviknaði út frá fréttum sem bárust af ungu fólki á Norð- urlöndunum, sem fékk aðgang að skotvopnum og myrti saklausa borgara.“ eftir Hrund Ólafsdóttur. Leikarar: Ólafur Steinn Ing- unnarson, Ísgerður Elfa Gunn- arsdóttir, Arnbjörg Hlíf Vals- dóttir, Gísli Pétur Hinriksson, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Sigurður Skúlason og Anna Kristín Arngrímsdóttir. Tónlist: Hallur Ingólfsson. Lýsing: Sólveig Eiríksdóttir. Leikmynd og búningar: Ólafur Jónasson. Aðstoðarmaður leikstjóra: Eline McKay. Leikstjórn: Jón Páll Eyjólfsson. Frelsi Fáðu úrslitin send í símann þinn Ráðstefnan hefst kl. 13 og eru allir velkomnir! Enginn aðgangseyrir. 13.00–13.15 Opnunarávarp Hr. Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands. 13.20–13.30 Kynning á sameiginlegri yfirlýsingu um vatn Fundarstjóri Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor í grasafræði. 13.35–13.50 Vatnið í náttúru Íslands – Náttúran í vötnum Íslands Hilmar J. Malmquist, líffræðingur og forstöðumaður Náttúrufræðistofu Kópavogs. 13.55–14.10 Vatn og samfélag Páll H. Hannesson, alþjóðafulltrúi BSRB. 14.15–14.30 Vatn í þróunarhjálp Anna M.Þ. Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi Hjálparstarfs kirkjunnar. 14.35–14.50 Er vatn sem hver önnur auðlind? Ingibjörg E. Björnsdóttir, umhverfisfræðingur. 14.55–15.10 „Kalt vatn fyrir mig“. Pétur Gunnarsson, rithöfundur. Kaffihlé 15.10–15.35 15.40–15.55 Afstaða til vatns í alþjóðasamningum, lögum og reglum – Breytt viðhorf í tímans rás Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar. 16.00–16.20 Réttindi til vatns Nigel Dower, heimspekingur og fyrrum prófessor við Háskólann í Aberdeen og kennari í þróunarsiðfræði við félagsvísinda- og lagadeild Háskólans á Akureyri. Erindið verður flutt á ensku. 16.20–16.55 Pallborðsumræður – fulltrúar stjórnmálaflokkanna Framtíðarsýn stjórnmálaflokkanna á vatn. 17.00 Ráðstefnu slitið. Ráðstefna á Grand Hótel 29. október M F Í K Fulltrúar stjórnmálaflokkanna í pallborðsumræðum: Fyrir VG: Kolbrún Halldórsdóttir Fyrir Samfylkingu: Mörður Árnason Fyrir Framsóknarflokk: Hjálmar Árnason Fyrir Sjálfstæðisflokk: Guðlaugur Þór Þórðarson Fyrir Frjálslynda flokkinn: Magnús Þór Hafsteinsson Kynntu þér yfirlýsingu ráðstefnunnar á www.bsrb.is/vatnfyriralla H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 4 4 4 8 Laugavegi 63 (Vitastígsmegin),sími 551 2040. Silkitré og silkiblóm Rýmum fyrir jólavörunni 20% -30% afsláttur af öllum vörum Innitré, útitré, haustgreinar, erikur, pottablóm gjafavara, leirker og fl eira

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.