Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 12
HÚSNÆÐISMÁL „Það eru allar líkur á að fasteinaverð hækki eitthvað ef ríkisstjórnin stendur við kosn- ingaloforðin um 90% lán fyrir alla,“ segir Franz Jezorski fast- eignasali á fasteignasölunni Hóli um áhrif lánshækkunar vegna íbúðarkaupa. Hann segir að fram að þessu hafi íbúðir á verðbilinu 10-12 milljónir verið liðlegastar í sölu enda séu þær á því verði sem hentar þeim sem fái 90% lán. „Ég held að það skipti miklu máli að þessi lán verði fyrir alla eins og lofað var en ekki eyrnamerkt ein- hverju ákveðnum hópum. Áhrifin verða mjög jákvæð fyrir fast- eignamarkaðinn og eiga eftir að hafa gríðarlegar breytingar í för með sér,“ segir Franz. Hann segir að með þessari breytingu ef af henni verði muni fólk eiga mun auðveldara með að kaupa sér íbúð, einkum eigi það við þá búa enn í for- eldrahúsum og þá sem séu á leigumarkaði . „Áhrifa munu þá gæta allt frá minnstu eigun- um til þeirra dýrustu. Ég hef trú á því að margir sem standa höllum fæti með sína eignir geti losað um fé með því að selja og kaupa aftur með 90% láni. Þannig ætti þetta að verða öllum fjölskyldum til hagsbóta. Aðspurður um hvort áhugi á húsnæðiskaupum sé meiri nú í kjölfar kosningaloforða, en oft áður segir Franz að fólk vilji trúa að staðið verði við þau og það skipti miklu máli að það sama gangi yfir alla. Gylfi Arnbjörnsson fram- kvæmdastjóri ASÍ telur 90% lán ekki vera það sem fólk þurfi. Hann segir hættu á að hærri hús- næðislán kunni að valda vaxta- hækkun. „Við höfum ekki talið þessar aðgerðir vera brýnar í hús- næðismálum. Það er ljóst að stækkandi hópur fólks hefur ekki ráð á að taka þessi lán og greiða af 21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR „Ég held að það skipti miklu máli að þessi lán verði fyrir alla eins og lofað var en ekki eyrnamerkt einhverjum ákveðnum hópum.“ GRILLPINNAR LÚÐA – LAX – KEILA Frábær grillstemning Bollur 199 kr. kg (hám. 3 kg per mann) ÞÝSKALAND, AP Þýska verkalýðsfé- lagið IG Metall hefur hótað verkföllum í byrjun júní eftir að viðræður um styttri vinnuviku 300 þúsund félagsmanna brotn- uðu niður. Starfsmenn í fyrrverandi Austur-Þýskalandi sömdu um að vinna lengur en kollegar þeirra vestanmegin til að vega upp á móti hærri framleiðni en síðan eru liðin mörg ár og þrátt fyrir að framleiðni vestur Þjóðverja sé ennþá talsvert meiri eru þeir ekki tilbúnir að vinna rúmlega þrem stundum lengur per viku. Samningaviðræður við stór- fyrirtæki eins og Daimler- Chrysler og Volkswagen gengu ekki og því kallar verkalýðsfé- lagið á að verkföll hefjist. ■ TÍÐ VERKFÖLL Nú hóta Þjóðverjar verkföllum Þjóðverjar austan megin ósáttir: Vinna lengur en aðrir LÁN TIL HÚSNÆÐISKAUPA HEDUR AÐEINS VERIÐ FYRIR LÍTIN HÓP FASTEIGNAKAUPENDA. Áhrif breytinga verða mjög jákvæð fyrir fasteignamarkaðinn og eiga eftir að hafa gríðarlegar breytingar í för með sér, að sögn fasteignasala. Auðveldara að kaupa húsnæði Franz Jezorski fasteignasali telur í alla staði jákvætt að Framsóknar- flokkurinn standi við kosningaloforðin um 90% húsnæðislán fyrir alla. Ari Edwald og Gylfi Arnbjörnsson eru á því að vextir hækki. VIÐSKIPTI Tekin var í notkun ný gerð þjónustuskjástanda eða raf- rænna bankaútibúa í bænum Grindsted á Jótlandi í gær. Raf- rænu bankaútibúin byggja á ís- lensku hugviti og tæknilausnum frá íslensk-bandarísku fyrirtæki, Allbank International á Íslandi. Albanki fyrirtækisins er gagn- virkur þjónustuskjástandur sem hægt er að nota bæði til upplýs- ingaleitar og rafrænna viðskipta við banka, tryggingafélög, ferða- skrifstofur og önnur gagnvirk þjónustufyrirtæki. „Hægt er að tala saman augliti til auglitis þrátt fyrir að menn séu staddir fjarri,“ segir Einar S. Ein- arsson, starfandi stjórnarformað- ur Allbank Ísland. Albankinn er meðal annars búinn gagnvirkum myndsímum sem gera þjónustu- fyrirtækjum kleift að auka raf- ræn viðskipti og bæta þjónustu, án þess að kostum fjarþjónustu sé á nokkurn hátt fórnað. „Þetta er fyrsta skrefið í stórri markaðssókn þar sem heimurinn er allur eitt markaðssvæði,“ segir Einar að lokum. ■ ALBANKI Fyrstu rafrænu bankaútibú- in var opnuð við hátíðlega athöfn í bænum Grindsted á Jótlandi í gær. Íslenskt hugvit notað í dönskum bönkum: Albanki tekinn í notkun

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.