Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 22
21. maí 2003 MIÐVIKUDAGUR Einu keyptu myndbandsspól-urnar á heimilinu fyrir utan hillumetrana af barnaefni eru þrí- leikurinn um Guðföðurinn. Ég fékk þær í afmæl- isgjöf fyrir einum fjórum árum og á þeim tíma hef ég afrekað að horfa á mynd númer eitt. Þessar myndir eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Kvik- myndaklassík sem gaman er að horfa á með reglulegu millibili. Þar sem spólurnar eru tiltækar hvenær sem mér hentar var ég ekki á þeim buxunum að horfa á þessar prýðismyndir sem sjón- varpið sýndi yfir helgina. Ætlaði mér að njóta frelsis eignarhalds- ins. Vegurinn til heljar er varðaður góðum fyrirheitum. Ég gat sleppt fyrstu myndinni, sem ég var ný- lega búinn að sjá. En áður en ég vissi af var ég búinn að horfa á númer tvö og þrjú og fara seinna sofa en mér er hollt. Afþreying mín snerist um mafíuna síðustu dagana, því á mánudagskvöldið bættist næstsíðasti þáttur af Sopranos við. Á hann var horft af fullum ásetningi. Ef Tony Soprano er kaupmaðurinn á horninu þá er Michael Corleone Wal-Mart. Cor- leone er eins og rómverskur keis- ari meðan Soprano er eins og hreppstjóri. Þeir eiga sameigin- lega vanlíðan. Vonda samvisku sem hvorki kaþólska kirkjan, sál- fræðimeðferð eða allur heimsins auður getur losað þá við. Það er alltént svolítil huggun okkur hin- um í blankheitunum. ■ Við tækið HAFLIÐI HELGASON ■ varð mafíunni að bráð síðustu daga. Vansælir keisarar og hreppstjórar 20.00 Kvöldljós 21.00 Bænastund 21.30 Joyce Meyer 22.00 Benny Hinn 22.30 Joyce Meyer Með áskrift að stafrænu sjón- varpi Breiðbandsins fæst aðgangur að rúmlega 40 erlendum sjónvarpsstöðvum, þar á meðal 6 Norðurlanda- stöðvum. Nánari upplýsingar um áskrift í síma 800 7000. 18.00 Olíssport 18.30 Western World Soccer Show 19.00 Traders (21:26) (Kaupahéðnar) Kanadískur myndaflokkur um fólkið í fjármálaheiminum. Hér er það hraði og spenna sem einkennir allt. Lífið snýst um næsta samning og öllum brögðum er beitt. 20.00 Liverpool Story - Walk on (Saga Liverpool 1960-1990) Einstök heimildar- mynd um Liverpool, sigursælasta félagið í ensku knattspyrnunni en átján sinnum hefur Rauði herinn hampað meistaratitl- inum. Hér er skoðuð saga félagsins árin 1960-1990. 21.00 What Rats Won’t Do (Lagarott- ur) Rómantísk gamanmynd. Lögfræð- ingnum Kate Beckenham gengur flest í haginn. Hún er á leið í hnapphelduna og hefur sömuleiðis fengið afar spennandi mál til að glíma við í réttarsalnum. And- stæðingur hennar þar er Jack Sullivan, margreyndur lögfræðingur sem aldrei hefur þurft að láta í minni pokann í málarekstri. Fram undan er viðureign sem umturnar lífi Kate. Aðalhlutverk: Natscha McElhone, James Frain, Charles Dance, Parker Posey, Harry Enfield. Leik- stjóri: Alistair Reid. 1998. 22.30 Olíssport 23.00 MAD TV (MAD-rásin) 23.45 Out to Get Her Erótísk kvik- mynd. 1.05 Dagskrárlok og skjáleikur 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 Disneystundin 18.54 Víkingalottó 19.00 Fréttir, íþróttir og veður 19.35 Kastljósið 19.55 Lögin í söngvakeppninni 20.00 Ed (11:22) 20.45 Sumar með Nigellu (2:8) (For- ever Summer With Nigella) Breskir mat- reiðsluþættir þar sem listakokkurinn Nig- ella Lawson töfrar fram seiðandi sumar- rétti. 21.15 Fosshjartað slær Heimildar- mynd um fallvötn og virkjanir eftir Baldur Hermannsson. e. 22.00 Tíufréttir 22.20 Undir sama þaki (5:7) (Spaced) Bresk gamanþáttaröð um ævintýri Tims og Daisy sem leigja saman herbergi und- ir því yfirskini að þau séu hjón. Aðalhlut- verk: Jessica Stevenson, Simon Pegg, Julia Deakin og Mark Heap. 22.45 Largo (11:25)(Largo Winch) Bandarískur ævintýramyndaflokkur um óskilgetinn auðkýfingsson sem fer mik- inn eftir að honum tæmist arfur.Aðal- hlutverk: Paolo Seganti, Diego Wallraff, Sydney Penny, Geordie Johnson og Serge Houde. 23.30 Út og suður (2:12) 23.55 Kastljósið 0.15 Dagskrárlok 6.58 Ísland í bítið 9.00 Bold and the Beautiful 9.20 Í fínu formi 9.35 Oprah Winfrey 10.20 Ísland í bítið 12.00 Neighbours 12.25 Í fínu formi 12.40 Reba (22:22) 13.00 Life of the Party: The Pamela (Fylgdarkonan) Aðalhlutverk: Ann- Margret, Diane Agostini, Scott Thompson Baker. 1998. 14.30 Tónlist 15.00 Spænsku mörkin 16.00 Barnatími Stöðvar 2 17.40 Neighbours 18.05 Off Centre (11:21) 18.30 Fréttir Stöðvar 2 19.00 Ísland í dag, íþróttir, veður 19.30 Friends 4 (7:24) 20.00 Að hætti Sigga Hall (12:12) (Svíþjóð - Stokkhólmur) Meistarakokkur- inn er mættur aftur. Siggi Hall gerir víð- reist og heimsækir marga spennandi staði. Ómissandi þáttur fyrir matgæðinga á öllum aldri. 20.35 Coupling (7:7) (Pörun) Nokkrum dögum eftir að Sally oprnar sig fyrir Pat- rick hefur hún grun um að hún sé ólétt. Henni finnst niðurstöður þungunarprófs ófullnægjandi og fær stelpurnar til að taka próf líka sem ljóstrar upp fleiri leyndarmálum. 21.10 Cold Feet (3:6) 22.05 Crossing Jordan (9:25) 22.50 Life of the Party: The Pamela Sjá nánar að ofan. 0.20 Cold Feet (3:6) 1.10 Friends 4 (7:24) 1.30 Ísland í dag, íþróttir, veður 1.55 Tónlistarmyndbönd frá Popp TíVí 6.20 The First Movie 8.00 Bridget Jones’s Diary 10.00 A Slight Case Of Murder 12.00 Town & Country 14.00 Bridget Jones’s Diary 16.00 A Slight Case Of Murder 18.00 The First Movie 20.00 Town & Country 22.00 Kiss of the Dragon 0.00 Pulp Fiction 2.30 Planet of the Apes 4.30 Kiss of the Dragon 7.00 70 mínútur 16.00 Pikk TV 19.00 XY TV 20.00 Trailer 21.00 South Park 6 21.30 Crank Yankers 22.03 70 mínútur 23.10 Lúkkið 23.30 Meiri músík 18.30 Innlit útlit (e) 19.30 According to Jim (e) 20.00 Guinness World Records Fólk er fífl og það sannast hvergi betur en í þessum fjölskrúðugu þáttum þar sem menn reyna að ganga fram af sjálfum sér og öðrum með skemmtilegum fífla- látum og stundum stórhættulegum. Sjáið fullorðið fólk dansa á línu, sjúga spagettí upp í nefið, jórtra, borða úr, henda sér fram af byggingum og margt fleira sem sýnir hvað iðjuleysi hefur í för með sér. 21.00 Fólk - með Sirrý Fólk er þáttur um allt sem við kemur daglegu lífi Ís- lendinga og Fólki er ekkert mannlegt óviðkomandi; þar verður meðal annars rætt um tísku, heilsu, kjaftasögur, for- dóma, mannleg samskipti auk þess sem málefni vikunnar verður að venju krufið til mergjar af sérfræðingum, leikmönn- um og áhorfendum. Skollaleikurinn með Árna Pétri verður á sínum stað og tekur á sig ýmsar myndir. 22.00 Law & Order 22.50 Jay Leno Jay Leno sýnir fram á keisarans nekt á hverju kvöldi er hann togar þjóðarleiðtoga, frægt fólk og bara hversdagslega vitleysinga sundur og saman í háði. 23.40 Boston Public (e) 0.30 Dagskrárlok James Nesbitt og Helen Bax- endale eru stjörnurnar í Cold Feet en þau leika Adam og Rachel. Nesbitt er bæði vinsæl- asti og launahæsti leikarinn í bresku sjónvarpi í dag. Hann er Norður-Íri með ódrepandi áhuga á knattspyrnu og er mikill aðdá- andi Manchester United. Ís- lenskir sjónvarpsáhorfendur þekkja Helen Baxendale þó ör- ugglega betur. Hún fór eftir- minnilega með hlutverk Emily Waltham sem giftist Ross Geller í myndaflokkum Vinum. Emily var önnur eiginkona Ross en því miður varð hjónabandið ekki mjög langlíft! Stöð 2 21.10 Sjónvarpið 20.45 Í kvöld verður sýndur annar þátturinn úr nýrri átta þátta syrpu þar sem listakokkurinn Nigella Lawson töfrar fram seið- andi sumarrétti. Nigella sló í gegn með fyrri þáttum sínum og bókum og hún slær ekkert af í þessari syrpu þar sem sumarið er allsráðandi. Uppskriftirnar eru miðaðar við að maturinn henti vel í lautarferðir, grillveislur og strandferðir og hugmyndirnar að réttunum sækir hún hingað og þangað um heiminn. Í kvöld ætl- ar Nigella að matreiða pasta með kræklingum og fleiri rétti af ítölskum ættum. Stjörnurnar í Cold Feet Sumar með Nigellu 22 ■ Ef Tony Soprano er kaupmaðurinn á horninu þá er Michael Corle- one Wal-Mart. Corleone er eins og róm- verskur keisari meðan Soprano er eins og hreppstjóri. SJÓNVARP Sjónvarpsþættirnir The Practice, sem sýndir eru á Skjá einum, verða fyrir verulegri blóð- töku á næsta tímabili þegar sex leikarar, þar á meðal aðalstjörn- urnar Dylan McDermott og Lara Flynn Boyle, hætta. Áhorf á lagadramað hefur snarminnkað og slíkt hefur að sjálfsögðu áhrif á kaup og kjör að- alleikaranna, sem geta ekki sætt sig við launalækkun og hafa því afráðið að yfirgefa framleiðand- ann David E. Kelley og Fox-sjón- varpsstöðina. Gert er ráð fyrir að McDermott verði gestaleikari í fjórum þáttum á næsta tímabili en ekkert bendir til þess að Lara Flynn Boyle, Kelli Williams, Lisa Gay Hamilton, Marla Sokoloff og Chyler Liegh láti sjá sig aftur þannig að það verður býsna tóm- legt á lögmannastofunni Donnell, Young, Dole & Frutt á næstunni. Skjólstæðingum stofunnar hlýtur þó að vera það nokkur huggun harmi gegn að hin tannhvassi sak- sóknari sem Boyle leikur skuli einnig hverfa á braut. ■ The Practice: Niðurskurður hjá lögmönnunum DYLAN MCDERMOTT Hefur leikið Bobby Donnell í The Practice í nokkur ár. Áhorfendur virðast vera að missa áhugann á þáttunum og McDermott hefur því ákveðið að snúa sér að ein- hverju öðru.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.