Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 21.05.2003, Blaðsíða 20
20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR20 JUST MARRIED 3.45, 5.50, 8 og 10.10 JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6DREAMCATCHER kl. 10 BULLETPROOF MONK kl. 8Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 kl. 6NÓI ALBINÓI THE QUIET AMERICAN Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10 b.i. 16 ára Sýnd í lúxus kl. 6 og 10 TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl tali 4, 6 kl. 10SAMSARA kl. 8 kl. 6JOHNNY ENGLISH Sýnd kl. 6, 8, 9 og 10.15 b.i. 12 ára Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20 TÓNLIST Síðustu ár hefur Atlantshafið verið hár þröskuldur í leið tónlistar- manna að koma tónlist sinni á fram- færi erlendis. Hróður íslenskrar tónlistar hefur borist víða og hafa tónlistarmenn þjóðarinnar orðið hel- stu sendiherrar Íslands síðustu ár. Af þessu tilefni hafa Flugleiðir, STEF/FÍH og Reykjavíkurborg stofnað saman sjóð þar sem árlega verða veittar 11 milljónir króna til styrktar útrás framsækinna tónlist- armanna á erlenda markaði. Sjóður- inn styrkir sveitirnar um flugfarið, fram og til baka, og hefur því hlotið nafnið „Reykjavík Loftbrú“. Vonast er til að á þriðja hundrað íslenskra tónlistarmanna geti árlega nýtt sér stuðning sjóðsins til tónleikahalds og kynningarstarfs erlendis. Styrkirnir verða veittir í gegnum Höfuðborgarstofu, sem er eins kon- ar tæki Reykjavíkurborgar til þess að þróa borgina áfram sem aðlað- andi ferðamannastað. „Það er niðurstaða okkar að styrkleikar Reykjavíkur felast í tvennu,“ segir Dagur B. Eggerts- son borgarfulltrúi. „Annars vegar í náttúrunni og nálægðinni við hana og hins vegar í framsæknu menningarlífi. Þar hefur auðvitað tónlistin verið að skila langmest- um árangri á síðastliðnum árum. Þegar við fórum að skyggnast yfir sviðið áttuðum við okkur á því að þrátt fyrir að það hafi ver- ið talað um að styðja við bakið á tónlist á undanförnum árum virðist það ekki hafa gerst. Það sem við heyrðum jafnframt var að vaxtarbroddarnir, nýju hljóm- sveitirnar, og þeir sem helst geta haldið áfram þeirri þróun sem byrjaði með Björk og Sykur- molunum eru ekki að synda í neinum seðlum. Þessar sveitir virðast það miklir listamenn að þær geta fengið tækifæri til þess að spreyta sig erlendis.“ Reglur voru samdar sem ættu að tryggja þeim styrki sem hafa raunhæfan möguleika um árangur úti. Þar má m.a. nefna sveitir sem þegar hafa verið bókaðar til tón- leikahalds úti sem tryggir blaða- skriftir og eykur áhuga á þeim. „Við lítum á þetta sem mark- aðssamstarf,“ útskýrir Dagur. „Þetta er kannski óvenjuleg leið til þess að viðhalda þessari já- kvæðu, öðruvísi og kröftugu ímynd borgarinnar. Við teljum að þessi ímynd laði hingað ferða- menn og búi til um leið skemmti- lega og kröftuga borg sem fólk vill búa í. Það að ungt fólk hafi núna tækifæri til þess að koma sér á framfæri erlendis eflir svo grasrót tónlistarmenningarinn- ar.“ Engar reglur eru um það að hljómsveitirnar verði að vera frá Reykjavík. biggi@frettabladid.is Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára Sýnd í lúxus kl. 6 DARKNESS FALLS b.i. 16 kl 8 og 10 Loftbrú tónlistar yfir Atlantshafið REYKJAVÍK LOFTBRÚ Ellefu milljónir króna verða lagðar í sjóðinn, sem á að aðstoða framsækna tónlistar- menn við þreifingar þeirra inn á erlenda markaði. Flugleiðir leggja sjóðnum til fimm og hálfa milljón króna, STEF og FÍH þrjár milljónir og Reykjavíkurborg tvær og hálfa milljón króna. Styrkirnir verða veittir í gegnum Höfuðborgar- stofu. Fréttiraf fólki Nicole Kidman segist ætla aðdraga úr kvikmyndaleik, finni hún ástina aftur. Hún sagði á blaðamannafundi í Cannes að hana langaði til þess að festa ráð sitt að nýju og njóta lífsins með fjöl- skyldu sinni. Hún sagði einnig að eng- inn gæti verið endalaust í sviðsljósinu og að á endanum brynnu allir út. Kidman er stödd í Cannes til þess að kynna nýjustu mynd sína „Dog- ville“ sem gerð er af danska leikstjór- anum Lars Von Trier, þeim sama og gerði Bjarkarmyndina „Dancer in the Dark“. Söngkonan Mariah Carey hefurákveðið að koma ekki fram á íþróttaleikvöng- um í væntanlegri tónleikaferð sinni um Banda- ríkin. Stúlkan segist frekar vilja koma fram á minni tónleika- stöðum svo sem leikhúsum og tónleikahöllum. Það var víst aðdáandi Carey sem stakk upp á þessu við hana í gegnum heimasíðu hennar. Svona vonast Carey til þess að komast í meira návígi við aðdáendur sína. Slúðurblöðin í Bretlandi birtu ádögunum viðtal við mann sem heldur því fram að Larry Wachowski, annar bræðranna sem skrifa og leikstýra Matrix-mynd- unum, sé klæðskiptingur. Sam- kvæmt viðtalinu stal Larry eigin- konu mannsins eftir sameiginlegt S&M kynlífssvall þeirra. Eigin- maðurinn er sjálfur klæðskipting- ur og heldur því nú fram að Larry sé það líka. Konan á hins vegar að vera drottnari. Þeir sem bíða spenntir eftir fram-haldsmynd „Charlie’s Angels“ fá óvæntan glaðning á Netinu. Um er að ræða teiknimyndaseríu sem seg- ir forsögu nýju myndarinnar og kemur því aðdáendum í rétta gírinn. Þættirnir eru sex talsins og er hver þeirra um tvær mínútur að lengd. Þættirnir verða fáanlegir á slóðinni www.charliesangels.com. Á blaðamannafundi í gær tilkynntu Reykjavíkurborg, Stef/FÍH og Flugleiðir um stofnun sjóðsins „Reykjavík Loftbrú“ sem hjálpar framsæknum tónlistarmönnum að koma sér á framfæri erlendis. Alhliða útgáfuþjónusta Sími 565 9320 pjaxi@pjaxi.is www.pjaxi.is Hagkvæmari prentun Lögfræðingar leikkonunnar DemiMoore hafa svarað ákærunni um kynferðislega áre- itni sem stúlkan fékk á sig í síðustu viku. Þeir segja ásakanirnar vera tóman uppspuna. Máli sínu til stuðn- ings bentu þeir á sakaskrá mannsins sem sýnir að nokkrir einstaklingar hafa fengið á hann nálgunarbann á síðustu árum. Renée Zellweger kom móður sinnií uppnám þegar hún til- kynnti í spjall- þætti David Lett- erman að hún væri að fara að heimsækja her- menn í Persafló- anum. Stúlkan var ekki búin að til- kynna móður sinni að hún væri að fara þangað og áttaði sig ekki fyrr en hún hafði sleppt orðinu að hún hefði betur þagað. Leikkonan Carrie Anne Mosssem leikur Trinity í Matrix- myndunum hefur komið sér und- an því að mæta á frumsýningu myndarinnar í Bretlandi. Moss er ekki kona einsömul og vill frekar vera heima hjá sér í ró- legheitum en að vera umvafin æstum aðdáendum og ljósmynd- urum. Hún er komin átta mánuði á leið og átti erfitt með sig á frumsýningu „The Matrix Reloa- ded“ á kvikmyndahátíðinni í Cannes. Gifssteinar fyrir milliveggi og aðra breytingarvinnu. www.gifsverk.is FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.