Tíminn - 11.03.1973, Qupperneq 26
26
TÍMINN
Sunnudagur 11. marz 1973
Umsjón: Alfreð Þorsteinsso
Kay Clemence kcmur næstur á
eftir Gordon Banks, sem bezti
markvörður Knglands. Hann hef-
ur prýðilegar staðsetningar. gott
viðbragð og tækni, ekki sízl i loft-
inu. Samkvæmt liefð leika mark-
vcrðir I.iverpool, sem cins konar
fimmti varnarleikmaðurinn bak
við varnarveggin, svo að þeir
gæta svæðisins bak við hann,
takist einhverjum framherja I liði
andslæðingsins að slcppa fram
hjá rangstöðugildrunni.
CLEMENCE OG GILZEAN
1 SVIÐSLJÓSINU hjá okkur I
dag, eru tveir knattspyrnu-
menn, sem eiga ólikan knatt-
spyrnuferil. Þessir leikmenn
eru Ray Clemence, markvörð-
ur hjá Liverpool, sem var
keyptur frá Scunthorpe á aö-
eins 20 þiis. pund áriö 1967, og
Alan Gilzean, sem hefur veriö
einn litrikasti knattspyrnu-
maður Tottenham Hotspurs
undanfarin ár. Hann var
keyptur frá Dundee I desem-
ber 1964 á 72,500 þús pund.
Clemence er Englendingur,
sem er ný byrjaður að leika
með enska landsliöinu og er
taiinn næsti landsliösmark-
vörður. Hann hefur leikiö báða
landsieiki Engiands i undan-
keppni HM-keppninnar I V-
Þýzkalandi 1974. Gilzean er
Skoti, sem á 22 landsleiki að
baki fyrir Skotiand. Hann er
nú 33 ára og er að hefja sitt
siðasta skeið á knattspyrnu-
ferli sinum, sem hefur verið
viðburðarlkur.
— SOS.
,Hann verður örugg-
lega sjólfkrafa eftir-
maðurGordonBanks'
— segir Jackie Charlton, um hinn unga og frdbæra markvörð
Liverpool, Ray Clemence
ÞAÐ verður erfitt að fylla
það skarð, sem hinn snjalli
Gordon Banks, markvörður
Englands, hefur skilið eftir
sig i enska landsliðinu í
knattspymu. Einn mark-
vörður er þó staðráðinn að
fylla það skarð og verða
þar með markvörður
númereittí Englandi. Það
er enginn annar er hinn
frábæri markvörður Liver-
pool, Ray Clemence, sem
Bill Shankly, fram-
kvæmdastjóri Liverpool,
keypti frá Scunthorpe á 20
þús. pund 1967.
Clemence lék sinn fyrsta lands-
leik gegn Welsh i H.M-keppninni I
nóvember sl. Eftir þann leik, lét
Sir Alf Ramsey hafa eftir sér: —
„Hann var frábær, þótt hann
hafði ekki mikið að gera, en það,
sem hann geröi, hefði enginn get-
aö gert betur. Hann virtist af-
slappaður og fullur af sjálfsáliti
allan leikinn og þessi mikla hetja
frá Anfield sýndi, að hann átti
þaö fyllilega skilið að leika I
landsliðsmarkinu”.
Peter Shilton hefði getaö fengið
þennan leik alveg eins og Ray
Clemence. En nú getur Leicester-
markvörðurinn snjalli ekki leng-
ur veriö talinn llklegur eftirmaö-
ur Gordon Banks, — hann er bú-
inn aö fá harðan keppinaut, þar
sem Clemence er.
Jackie Charlton, hinn frægi
leikmaöur Leeds, sagöi ,eftir aö
hann haföi séö Clemence i slnum
fyrsta landsleik: „Ég ber mikla
viröingu fyrir Clemence, hann
veröur örugglega sjálfkrafa eftir-
maöur Banks”.
Clemence álitur sjálfur, aö
Banks sé bezti markvörður, sem
hefur verið uppi I heiminum.
Hann viðurkennir, aö hafa lært
mjög mikið af Banks, þegar þeir
hittust á landsliösæfingum. En nú
skulum viö láta Ray Clemence,
segja frá kynnum slnum af
Banks: „Banks er einn af þeim
leikmönnum, sem þú getur talaö
viö og likaö vel viö. Hann hefur
hjálpaö mér mikiö, meö sinni
miklu leikreynslu og kunnáttu. Ef
þú hefur eitthvaö annaö álit á
hlutunum en hann, þá hlustar
hann og ræöir máliö viö þig. Og
jafnvel samþykkir þaö, sem þú
segir. Þaö er ekki hægt aö hugsa
sér betri félaga”.
Þaö, sem kom Clemence á topp
inn, var vilji hans til aö læra af
meistaranum, Banks, ásamt
mikilli metnaöargirni. Þá hefur
það hjálpaö honum mikiö, að
hann er leikmaöur I einu bezta
félagsliöi Evrópu. Clemence, sem
kom til Liverpool 1967 frá Scunt-
horpe, segir, aö það sé ekkert
betra fyrir öryggiö, en aö leika á
Anfield og meö Liverpool-liöinu.
„Þaö gengur allt mjög vel hjá
Liverpool I augnablikinu og ef viö
höldum þannig áfram, þá vinnum
við deildina örugglega”.
Þegar Clemence var spuröur
aö þvi um daginn, hvort aö hann
héldi aö Liverpool-liöiö væri betra
lið núna, heldur en á slöasta
keppnistimabili, þegar meistara-
titlinum var stoliö frá liöinu, svo
aö segja i siöasta leik, sagöi
hann: „Já, við erum þaö örugg-
lega, þvi aö i fyrsta lagi gerum
við nú fleiri mörk, sérstaklega á
útivöllum. I ööru lagi, missum viö
varla stig á Anfield. Þó aö viö sé-
um komnir nokkrum mörkum yf-
ir i leikjum okkar, þá leikur vörn-
in af fullum krafti og gefur ekkert
eftir”.
Og Clemence heldur áfram: „A
siðasta keppnistlmabili, vorum
viö i miklum vandræöum meö aö
skora mörk á útivöllum. En I ár
gerum viö mörg mikilvæg mörk,
sem gefa okkur dýrmæt stig i
baráttunni um Englands-
meistaratitilinn. Astæðan fyrir
þessu er sú, aö viö erum farnir aö
senda fleiri menn fram i sóknina.
önnur ástæöa fyrir þessum góöa
árangri I ár er, aö nú höfum viö
öölazt meiri leikreynslu. Jafnvel
þó aö viö höfum tapaö siöasta
keppnistimabili, og tapaö úrslita-
leik á Wembley gegn Arsenal,
áriö á undan, þá erum viö enn
óreyndir. Þaö má segja, aö aöeins
þrír menn I liöinu, hafi einhverri
reynslu yfir að ráöa. Þaö eru þeir
Tommy Smith, Chris Lawler og
Ian Callaghan. Hinir leikmenn
liösins, eru allir ungir menn,
nýkeyptir, eöa nýkomnir af vara-
mannabekknum.
I ár veröum viö reynslunni
rikari meö hverjum leik og hin
bitra reynslu slðustu ára, hefur
veriö góö lexla. Viö gerum ekki
sömu mistökin aftur og lykillinn
af árangri Liverpool I ár, er sam-
vinna allra leikmannanna, sem
hugsa allir um liöiö fyrst og
fremst. Viö höfum einnig frábæra
varamenn, sem geta fyllt sköröin,
þegar menn meibast. Þegar
Tommy Smith gat ekki leikiö meö
liöinu i nokkrar vikur vegna
meiösla, kom Bill Shankley meö
Trevor Storton, sem hann keypti
frá Tranmere. Hann féll fljótlega
inn i liðiö og spilaöi sérstaklega
vel. Phil Boersma, sem kom inn i
liðið fyrir John Toshack, sem
einnig meiddist, sýndi stórkost-
lega byrjun hjá Liverpool, hann
skoraði mörg þýöingarmikil
mörk”.
Leikmenn Liverpool gera sér
þaö ljóst, aö mörg ljón veröa á
veginum áöur en hinn eftirsótti
Englandsmeistaratitill vinnst. Til
dæmis er Clemence hræddur viö
Leeds og hann segir:
„Maöur veröur alltaf aö gæta
sin á þeim. Þeir eru stórhættuleg-
ir og miklir baráttumenn, sem
gefast ekki upp, fyrr en I fulla
hnefana”. Einnig lltur hann með
beyg til London: „Ég hélt aö þaö
yröi Tottenham I ár, sem mundi
veröa erfitt. Ég geröi mér ekki
grein fyrir þvl, hvaö Arsenal-
menn eru geysilega sterkir, þeir
eru alltaf stórhættulegir, sér-
staklega nú I lokabaráttunni.
Liverpool-liöiö er llka I UEFA-
bikarkeppninni og þaö yröi
skemmtilegt aö vinna þá keppni,
þvi aö Liverpool hefur ekki unniö
I Evrópukeppni. En þó geri ég
ráö fyrir aö baráttan um Eng-
landsmeistaratitilinn, veröi aöal-
atriöiö hjá okkur. En ef viö höld-
um áfram að vinna leiki, eins og
viö höfum gert. Þá eru engin tak-
mörk fyrir þvi, hvað viö gerum”.
Þaö er sagt aö Liverpool-liöið
leiki góöa knattspyrnu og leiki af
miklu öryggi. Hvaöa liö myndi
ekki gera þaö, meö Ray
Clemence, fyrir aftan sig I mark-
inu.
GORDON BANKS OG RAY CLEMENCE.. . 24 tímum eftir aö þessi mynd var tekin, cn hún sýnir þessa
tvo frábæru markveröi ganga af Anfield, lenti Banks I umferöarslysi, sem varö til þess aö hann getur
ekki leikið meö Stoke á þessu keppnistlinabili.
,,Ef við höldum ófram að vinna leiki eins
og við höfum gert, þd eru engin takmörk
fyrir því, hvað við getum"
— sagði Clemence, hinn snjalli
markvörður Liverpool.