Fréttablaðið - 06.09.2004, Side 54

Fréttablaðið - 06.09.2004, Side 54
26 6. september 2004 MÁNUDAGUR Eftir Patrick McDonnell ■ PONDUS ■ ROCKY ■ KJÖLTURAKKAR ■ BARNALÁN ■ PÚ OG PA Eftir SÖB Eftir Kirkman/Scott Eftir Martin Kellerman Eftir Frode Överli Góður maður gaukaði að mér sögu af syni sínum fyrir sköm- mu. Drengurinn hafði orðið fyrir ógæfu snemma á unglingsárunum og orðið brennivín- inu að bráð en var þó bráðfjör- ugur undir áhrifum og lét skrautleg prakkara- strik eftir sig liggja. Sögumaðurinn sagði strákinn hafa verið á skralli seint í desem- bermánuði ásamt nokkrum félög- um á litlum stað úti á landi. Höfðu þeir tekið forskot á áramótasæl- una, dreypt á kampavíni og öðru góðgæti. Lítið var þó um að vera þetta kvöld, enda almenningur að safna kröftum fyrir einn af há- punktum hvers árs, sjálf áramótin. Þegar hér var komið rann það upp fyrir hópnum að lítið sem ekk- ert var að gerast í krummaskuðinu sem þeir voru staddir í. Nú voru góð ráð dýr. Þeir veltu því fyrir sér hvort kvöldinu væri viðbjargandi, enda hvergi nærri hættir og allir sem einn í feiknastuði. Þá var þeim litið til áramóta- brennunnar sem búið var að safna í. Var brennan, eins og á flestum stöðum, stór partur af því að kveð- ja gamla árið. Einum félaganna datt þá í hug að næla sér í bensín úr sláttuvél pabba síns og tendra í brennunni. Þetta fannst hópnum þjóðráð og vildu allir ólmir taka þátt í þessum frumlega grikk. Kauði kom að vörmu spori með brúsa fullan af bensíni, skvetti allrækilega yfir bálköst- inn og lagði eld að. Fyrr en varði var brennan orðin að veruleika, lýsti upp hálfan bæinn og félag- arnir sameinuðust með kampavín og vindla. Nú höfðu í fyrsta sinn í sögu Íslands verið haldin einka- áramót og strákarnir réðu sér vart af gleði, enda frumkvöðlar að einu frumlegasta prakkarastriki sem sögur fara af. Sögumaðurinn reyndi hvað hann gat til að vera alvarlegur en það leyndi sér ekki að karlinn hafði gaman að. Sonur hans fær risaprik í kladdann fyrir húmorinn. ■ STUÐ MILLI STRÍÐA SMÁRI JÓSEPSSON FRÉTTI AF FRUMLEGUM ÁRAMÓTUM ÚTI Á LANDI Kveikt í brennunni í leyfisleysi M YN D : H EL G I S IG U RÐ SS O N Laugarvegi - Reykjavík Dalshrauni - Hafnarfirði Skólabraut - Akranesi Hólmgarði - Reykjanesbær Engjateigi 5, sími 581 2141 Opið virka daga frá kl. 10.00-18.00, laugardaga frá kl. 10.00-16.00. Ótrúlegt úrval af síðbuxum Gallabuxur - flauelsbuxur Eddufelli 2, s. 557 1730 Bæjarlind 6, s. 554 7030 Opið mán.-fös. frá kl. 10-18 og lau. kl. 10-16T Í S K U V E R S L U N PEYSUR VERÐ FRÁ 2.900.- Hvað í andskotanum gerðist eiginlega? Þetta er stóra tæki- færið mitt til að verða ættleiddur. Ég er búinn að þrífa mig. Nú verð ég bara að brosa sætt og Athvarfs- sögur Hugsa jákvætt! Ég er heimilisvænn. Ég er heimilisvænn. Ég er heimilisvænn. Hvað er í kvöldmatinn elskan? Eitthvað einfalt. Eins og hvað? Kássa? Hugsaðueinfaldar Hugsaðu einfaldar Hugsaðu einfaldar Kjúklingur? Kjötbúðingur? Fiskur? Hugsaðu heimsent. Ó, einn af þeim dögum ha? „Tommi“ Ég vissi ekki að þú tækir í vörina? Ég hætti að reykja fyrir nokkrum dögum...gleypi fjórar pillur á dag til að draga úr lönguninni! Bráðum treð ég tóbaki undir forhúðina á mér! Ég er með Martin Timell plástur undir höndunum og nikótíntyggjó í rassinum! Ég meina, gleymdu grasi, það eru nicotinell pennar sem virka! En ég veit ekki hvað ég á að gera við hendurnar á mér! Ég fer að káfa á fólkinu hérna bráðum! Og þá sagði ég við þennan feita dyravörð á barnum að hann gæti troðið helvítis headsettinu upp í rassgatið á sér og drullast til að...bla bla bla...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.