Fréttablaðið - 09.05.2005, Síða 6
6 9. maí 2005 MÁNUDAGUR
BRETLAND Þótt aðeins séu þrír dag-
ar liðnir frá kosningunum í Bret-
landi eru samflokksmenn Tony
Blair þegar farnir að leggja að
honum að segja af sér. Strax hef-
ur slegið í brýnu á milli þeirra
Gordon Brown fjármálaráðherra.
Það fækkaði um 94 þingmenn í
þingflokki Verkamannaflokksins
eftir kosningarnar á fimmtudag-
inn en flokkurinn hefur nú aðeins
67 sæta meirihluta. Sá meirihluti
getur reynst of naumur í um-
deildum málum ef litið er til þess
hversu margir þingmenn sem
hafa verið Tony Blair óþægir ljá-
ir í þúfu náðu endurkjöri. Nú eru
margir þessara manna þegar
farnir að knýja á um afsögn for-
sætisráðherrans.
Í útvarpsviðtali við BBC í gær
kvaðst Robin Cook, fyrrverandi
utanríkisráðherra, vera þeirrar
skoðunar að Verkamannaflokkur-
inn hefði sigrað í kosningunum
þrátt fyrir Blair en ekki vegna
hans. Cook, sem hætti í ríkis-
stjórninni í mótmælaskyni við
innrásina í Írak, sagði að Blair
ætti að hugsa vandlega um hvort
nú væri ekki rétti tíminn til að
láta öðrum leiðtogaembættið í
Verkamannaflokknum eftir.
Í svipaðan streng tóku þing-
mennirnir John Austin og Jeremy
Corbyn, svo og Frank Dobson,
fyrrverandi heilbrigðismálaráð-
herra, sem sagði Blair hafa verið
bagga á flokknum í kosningunum
í viðtali við ITV-sjónvarpsstöðina.
Aðrir þingmenn komu Blair til
varnar, til dæmis David Blunkett
sem er orðinn ráðherra á ný, og
Tessa Jowell, menningarmálaráð-
herra. Það er því ljóst að forsæt-
isráðherrann er orðinn enn um-
deildari í eigin flokki.
Blair hefur ekki enn svarað
gagnrýni samflokksmanna sinna
en einn talsmanna hans sagði að
yfirlýsing hans frá því í septem-
ber um að hann sæti út kjörtíma-
bilið stæði óbreytt. The Observer
hermir að í innsta hring stuðn-
ingsmanna Blair sé rætt um að
hann láti af embætti á flokksþingi
Verkamannaflokksins árið 2008.
Blaðið greindi jafnframt frá
því að til snarpra orðaskipta hefði
komið á milli þeirra Tony Blair og
Gordon Brown vegna skipunar
Andrew Adonis sem aðstoðar-
manns Ruth Kelly menntamála-
ráðherra.
Brown lagðist eindregið gegn
skipuninni og virtist Blair ætla að
láta í minni pokann.
sveinng@frettabladid.is
Úttekt Hagstofu:
Hótelgest-
um fækkar
FERÐAMÁL Gistinóttum á hótelum
landsins í mars fækkaði um rúm níu
prósent miðað við sama mánuð í
fyrra. Í ár var heildarfjöldi
gistinótta í mánuðinum 62.815 en
68.070 í fyrra.
Á höfuðborgarsvæðinu var
fækkunin einnig níu prósent en
mestur varð þó samdrátturinn á
Austurlandi en þar fækkaði gisti£-
nóttum um tæp fjörutíu prósent.
Aðallega eru það útlendingar sem
hafa dregið úr hóteldvöl hér á landi
en þeir voru fimmtán prósentum
færri í marsmánuði í ár en sama
mánuð í fyrra. Íslendingum fækk-
aði hinsvegar um eitt prósent. -jse
Ólga og órói:
fiúsundir
fl‡ja Tógó
TÓGÓ, AP Ólgan í Tógó heldur áfram
eftir að Faure Gnassingbe var kjör-
inn forseti
landsins í kosn-
ingum sem
margir telja
vafasamar í
meira lagi.
22.000 manns
eru taldir hafa
flúið land síð-
ustu vikur,
10.000 til Gana
og 12.000 til
Benín. Einhverjir hafa fengið húsa-
skjól hjá vinum og ættingjum en
stærsti hluti flóttamannanna býr í
búðum við lakan kost.
Jacques Chirac, forseti Frakk-
lands, hefur óskað Gnassingbe til
hamingju með sigurinn en Tógó var
nýlenda Frakka til ársins 1960. ■
INNTÖKUPRÓF Í LÆKNADEILD HÍ
Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknis-
fræði og sjúkraþjálfun verður haldið í Reykjavík dagana
21. og 22. júní 2005. Staður og stund verða tilkynnt próftak-
endum eftir að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig til inntökuprófsins fyrir 5. júní
2005. Skráning er undir umsjón Nemendaskrár Háskóla Íslands
og er skráningareyðublað að finna á Háskólavefnum www.hi.is
og á skrifstofu Nemendaskrár í Aðalbyggingu Háskólans.
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo daga, með þremur
tveggja tíma próflotum hvorn daginn, eða 12 klst. alls. Niður-
staða prófsins birtist í einni einkunn sem verður reiknuð með
tveimur aukastöfum. Reiknað er með að niðurstaða liggi fyrir
ekki síðar en um miðjan júlí.
Árið 2005 fá 48 nemendur í læknisfræði og 20 í sjúkraþjálfun
rétt til náms í læknadeild Háskóla Íslands og skulu þeir hafa
skráð sig hjá Nemendaskrá fyrir 20. ágúst. Þeir sem ekki öðlast
rétt til náms í læknadeild eiga þess kost að skrásetja sig, innan
sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu skrásetningar-
gjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um inntökuprófið og dæmi um prófspurn-
ingar má finna á heimasíðu læknadeildar Háskóla Íslands
www.hi.is/nam/laek.
SJÚKRAÞJÁLFUNARSKOR OG LÆKNISFRÆÐISKOR
AUSTURRÍKI
BOSNÍA
Fylgist flú me› flróun Úrvals-
vísitölunnar?
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Lag›ist flú á ljósabekk í vet-
ur?
Niðurstöður gærdagsins á visir.is
69,7%
30,3%
Nei
Já
Farðu inn á fréttahluta visir.is
og segðu þína skoðun
KJÖRKASSINN
FAURE GNASSINGBE
NEITA ÞJÓÐARATKVÆÐI Þjóðar-
flokkur Wolfgangs Schüssels,
kanslara Aust-
urríkis, leggst
gegn því að
efnt verði til
þjóðaratkvæða-
greiðslu um
stjórnarskrá
Evrópusam-
bandsins. Frels-
isflokkurinn,
sem er í stjórn
með Þjóðarflokknum, hefur barist
fyrir slíkri atkvæðagreiðslu.
LÉST VIÐ SPRENGJULEIT Sprengju-
sérfræðingur lét lífið í sprengingu
þegar hann var að leita að jarð-
sprengjum í austurhluta Bosníu á
föstudag. Maðurinn, 32 ára Bosníu-
Serbi, lét lífið þegar jarðsprengja
sprakk, ein af hundruðum þúsunda
sem enn eru grafnar í jörð eftir
borgarastríðið 1992 til 1995.
UMDEILDUR Áhrifamenn í Verkamannaflokknum á borð við Robin Cook og Frank Dobson
hafa látið þá skoðun í ljós við fjölmiðla að forsætisráðherrann hafi verið byrði á flokknum
í kosningunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
Tony Blair hvattur
til a› segja af sér
Áhrifamenn í Verkamannaflokknum hvetja Tony Blair til a› taka pokann sinn
og láta Gordon Brown forsætisrá›herraembætti› eftir. Strax er fari› a› bera á
spennu í samskiptum fleirra.
DÍSELVERÐ „Mér er það til efs,
þrátt fyrir þessa fimm krónu
lækkun, að atvinnubílstjórar
séu spenntir fyrir því að vera á
díselbíl frekar en bensínbíl, seg-
ir Óskar Stefánsson, formaður
Bifreiðastjórafélagsins Sleipnis
um þá ákvörðun ríkisstjórnar-
innar að lækka dísilolíugjald um
fimm krónur á lítrann frá 1. júlí
næstkomandi en að óbreyttu
heimsmarkaðsverði hefði dísil-
olía orðið dýrari en bensín frá 1.
júlí.
Óskar telur þessa breytingu
þó aðeins til bóta en segir að
mönnum finnist þetta samt sem
áður í hærra lagi og lítill
ögrandi mismunur sé milli bens-
ínlítraverðs og díselolíuverðs.
Óskari sýnist að díselbílum
muni fækka komi ekki til enn
frekari lækkunar á dísellítran-
um. Hugsanlega myndu menn
hugsa sig verulega um ef mis-
munurinn væri 10 krónur en
díselbílar eru töluvert dýrari í
innkaupum en bensínbílar.
- sgi
Formaður Sleipnis um díselverð:
Lítill munur ögrar
ÓSKAR STEFÁNSSON Formað-
ur Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis telur að díselbílum
muni fækka komi ekki til frek-
ari lækkunar díselverðs.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/E
.Ó
L
LANDSFUNDUR „Það vantar veru-
lega á að hlustað sé nægilega vel
á okkur í sambandi við kjörin.
Þar þurfum við að gera stór-
átak,“ segir Benedikt Davíðs-
son, fráfarandi formaður Lands-
sambands eldri borgara sem
heldur landsfund á Kaffi
Reykjavík í dag og á morgun.
Tvö stærstu málin sem rædd
verða á fundinum eru kjör eldri
borgara, það eru tryggingar og
skattlagning trygginga-
greiðslna, og biðlistar á sjúkra-
heimili. „Biðlistarnir á hjúkrun-
arheimilin eru skollakornið ekk-
ert að styttast,“ segir Benedikt,
enda fjölgi mjög ört í hópi há-
aldraðra sem þurfi á þessari
þjónustu að halda.
Á fundinum verður hlítt á
nokkur gestaerindi. Árni Magn-
ússon félagsmálaráðherra, fjall-
ar um umdeildan flutning á yfir-
stjórn málefna aldraðra frá heil-
brigðis- og tryggingaráðuneyti
til félagsmálaráðuneytis. Karl
Steinar Guðnason, forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins,
gerir grein fyrir endurkröfu
Tryggingastofnunar á trygg-
ingagreiðslum fyrri ára á hend-
ur eldri borgurum.
- sgi
Landsfundur Landssambands eldri borgara:
Rætt um kjör og bi›lista
BENEDIKT DAVÍÐSSON
Dregur sig í hlé eftir landsfund
Landssamband eldri borgara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
R
EY
N
IS
SO
N