Fréttablaðið - 09.05.2005, Page 69
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
6 7 8 9 10 11 12
Mánudagur
MAÍ
■ ■ LEIKIR
19.15 FH og Keflavík eigast við í
Meistarakeppni karla í knattspyrnu.
■ ■ SJÓNVARP
15.45 Helgarsportið á Rúv.
16.10 Ensku mörkin á Rúv.
17.30 Þrumuskot ensku mörkin á
Skjá Einum.
18.30 US PGA Wachovia á Sýn.
20.30 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
22.00 Olíssport á Sýn.
Boston setti vafasamt met
20 9. maí 2005 MÁNUDAGUR
> Við hrósum ...
... íslensku unglingalandslið-
unum í körfuknattleik sem
voru verðugir fulltrúar
landsins á Norðurlandamóti
unglingalandsliða og komu
heim með tvö
silfurverðlaun og eitt
brons.
sport@frettabladid.is
> Við furðum okkur á ...
... háu miðaverði á leik
FH og Keflavíkur í
Meistarakeppni KSÍ
í knattspyrnu sem
fram fer í kvöld.
Miðað við gæði
knattspyrnunnar á
þessum tíma árs
ættu 200 krónur
að vera kappnóg
fyrir aðgang á
hvern leik.
Heyrst hefur ...
að Aðalsteinn Eyjólfsson íhugi nú
tilboð frá liðum hér heima sem og í
Þýskalandi. Aðalsteinn liggur undir
þykkum feldi í Þýskalandi þessa
dagana en líklegt þykir að Aðalsteinn
muni kanna til hlítar fjárhagsstöðu
þess félags sem býður best enda var
örsjaldan sem að launin skiluðu sér
á réttum tíma hjá Weibern.
Emil Hallfreðsson er kominn heim til Íslands í sumarfrí eftir
að hafa verið á mála hjá Tottenham Hotspur í vetur. Emil hef-
ur verið að leika með varaliði félagsins og þar hefur hann
fengið að spreyta sig í hinum ýmsu stöðum á vellinum í til-
raunaskyni. Hann mun æfa með gamla liðinu sínu, FH, í sum-
ar og tekur svo þátt í tveimur landsleikjum U-21 árs liðsins
áður en hann heldur aftur út í júlí.
„Það er gott að vera kominn heim í mat til mömmu,“ sagði
Emil í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég verð að æfa á fullu í
fríinu mínu í sumar og ætla að æfa með FH og taka líka á því
í frjálsíþróttunum líka til að undirbúa mig undir næsta tíma-
bil. Stefnan er að komast í betra form og vera í góðum gír í
landsleikjunum“, sagði Emil.
„Þessi tími þarna úti er búinn að vera fín reynsla, ég er búinn
að vera að leika allar stöður á vellinum með varaliði Totten-
ham og var meðal annars að spila vinstri bakvörð. Ég er nú
kannski ekki besti varnarmaðurinn í boltanum, en þeir vilja
sjá hvort maður getur skilað þessu varnarhlutverki sem mað-
ur þarf að sinna í þessu líka. Ég
ræddi við Frank Arnesen, yfir-
mann knattspyrnumála hjá fé-
laginu áður en ég fór og hann
sagði mér bara að standa mig
vel í landsleikjunum og koma
sterkur til baka í undirbúnings-
tímabilið. Menn voru þokkalega
sáttir við þetta hjá mér þarna og
maður vonast til að fá kannski
séns hjá þeim á næsta ári. Annars
er Tottenham auðvitað búið að
vera að kaupa mikið af leik-
mönnum og maður veit ekkert
hvað þeir gera í sumar, svo að
þetta verður bara að koma í
ljós,“ sagði Emil Hallfreðsson.
Barcelona–Valencia:
Hönd á titli
FÓTBOLTI Barcelona sýndi styrk
sinn í gær þegar liðið vann örugg-
an sigur á Valencia á útivelli, 2-0.
Það getur því fátt komið í veg fyr-
ir að Barcelona vinni spænska
meistaratitilinn í fyrsta skipti síð-
an 1999 en þegar þrjár umferðir
eru eftir hafa þeir 6 stiga forystu
á Real Madrid.
Ronaldinho og Samuel Eto’o
skoruðu mörk Barcelona en þeir
hafa verið með betri leikmönnum
liðsins í vetur. Barcelona er með
sex stiga forskot á Real Madrid að
óleiknum þremur umferðum. ■
Arsenal–Liverpool:
Everton
fagna›i
FÓTBOLTI Vonir Liverpool um að ná
fjórða sætinu í ensku úrvalsdeild-
inni voru gerðar að engu í gær
þegar Arsenal lagði þá að velli á
Highbury, 3-1.
Eins og svo oft áður í vetur þá
var spilamennska Liverpool al-
gjör andstæða við frammistöðu
liðsins í Meistaradeild Evrópu þar
sem liðið hefur farið á kostum. Í
fyrri hálfleik var aðeins eitt lið á
vellinum og Arsenal uppskar eftir
því.
Robert Pires skoraði beint úr
aukaspyrnu og kom sínum
mönnum í gang og Jose Antonio
Reyes skoraði annað mark liðsins
skömmu síðar. Steven Gerrard
klóraði í bakkann fyrir Liverpool
en síðasta naglann í kistu Liver-
pool rak Fabrecas eftir glæsilega
sókn heimamanna. Úrslitin í dag
þýða að Liverpool getur ekki náð
Everton að stigum og Arsenal hef-
ur nánast tryggt sér annað sætið í
deildinni. ■
Hlynur Bæringsson:
Hugsanlega
til Hollands
KÖRFUBOLTI Hlynur Bæringsson,
fyrirliði Snæfells og landsliðs-
maður í körfuknattleik, á í við-
ræðum við hollenska liðið
Woonaris. Það var létt yfir Hlyni
þegar blaðamaður
Fréttablaðsins sló
á þráðinn til hans.
„Já, það yrði fróð-
legt ef ég færi til
Hollands, því ég
veit álíka mikið
um vindmyllur og
færeyska goða-
fræði,“ sagði
Hlynur og hló.
„En það eru ágæt-
is líkur á þessu og
ég hlakka til að
sjá hvernig þetta
fer.“
Sigurður Þor-
valdsson, sam-
herji Hlyns hjá
Snæfelli, á einnig í viðræðum við
Woonaris. „Þetta er nýkomið á
borð til mín þannig að þetta er allt
á frumstigi,“ sagði Sigurður í
samtali við Fréttablaðið. „Við fé-
lagarnir erum einmitt farnir að
huga vel að sundinu, enda lífs-
nauðsynlegt á láglendinu,“ bætti
Sigurður við og hló.
Þess má geta að Brandon
Woudstra, fyrrum leikmaður
Njarðvíkur, leikur með Woonaris.
Tvær úrslitavi›ureignir voru í fyrstu umfer› úrslitakeppni NBA-körfuboltans á laugardagskvöldi›. Dallas
Mavericks rústa›i Houston Rockets, 116-76, og Indiana Pacers fór létt me› Boston Celtics, 97-70.
EMIL HALLFREÐSSON: KOMINN HEIM Í HAFNARFJÖRÐINN Í SUMARFRÍ
Æfir fótbolta og frjálsar með FH
KÖRFUBOLTI Tveir oddaleikir í
fyrstu umferð úrslitakeppninnar í
NBA-körfuboltanum fóru fram á
laugardagskvöldið. Þar mættust
Indiana Pacers og Boston Celtics
annars vegar og Dallas Mavericks
og Houston Rockets hins vegar.
Körfuboltaáhugafólk hefur ugg-
laust hugsað sér gott til glóðarinn-
ar enda ekki á hverjum degi sem
hreinir úrslitaleikir eru í boði.
Indiana vann Boston örugglega
á útivelli, 97-70, og áttu Celtics-
menn afar erfitt uppdráttar gegn
sterkri vörn Pacers og hafa aldrei
skorað jafn lítið í leik í úrslita-
keppni. Stephen Jackson var
stigahæstur í liði Pacers með 24
stig en Antoine Walker fór fyrir
Celtics með 20 stig. Celtics tapaði
þremur af fjórum heimaleikjum
sínum í seríunni sem er met hjá
félaginu. „Þetta er skrýtið og ger-
ir mann hugsi,“ sagði Antoine
Walker, svekktur eftir tapið.
„Maður leggur hart að sér til að
ná í heimaleikjaréttinn. Ef þið
hefðuð sagt mér að við myndum
tapa þremur af heimaleikjum
okkar þá hefði ég ekki trúað því.“
Dallas Mavericks rótburstaði
Houston Rockets á heimavelli
með 40 stiga mun, 116-76, og
Rockets er komið í sumarfrí.
Jason Terry skoraði 31 stig fyrir
Mavericks en Yao Ming var at-
kvæðamestur Rocket-manna með
33 stig, 10 fráköst og 5 varin skot.
Mavericks leiddi leikinn frá
fyrstu mínútu til hinnar síðustu
og sá lið Rockets aldrei til sólar
gegn vel smurðu liði heima-
manna.
Tracy McGrady, leikmaður
Rockets, var svekktur yfir tapinu
en sagði tímaspursmál hvenær
hann færi alla leið. „Ég er von-
svikinn og reiður en að sama
skapi mun ég ekki hengja haus,“
sagði McGrady sem hefur komist
5 sinnum í úrslitakeppnina en
aldrei náð í undanúrslit. „Ég er 25
ára gamall, ég á helling eftir og ég
verð hér á næsta ári. Það er
klárt,“ bætti McGrady við.
Dallas mætir Phoenix Suns í
undanúrslitum Vesturdeildarinn-
ar og er fyrsta viðureignin í
kvöld. Þar hittir liðið fyrir Steve
Nash, nýkjörinn MVP í ár, sem
sagði skilið við Mavericks á síð-
asta ári.
Steve Nash valinn bestur
Eins og fram kom í fréttum um
helgina var Steve Nash hjá Phoen-
ix Suns valinn verðmætasti leik-
maður ársins í NBA deildinni í ár-
legu kjöri íþróttafráttamanna í
Bandaríkjunum í gærkvöldi. Nash
hafnaði naumlega í toppsætinu á
undan Shaquille O’Neal, sem varð
í öðru sætinu, aðeins 34 stigum á
eftir honum. Nash hlaut 1066 at-
kvæði á móti 1032 atkvæðum
O’Neal. Þessir leikmenn voru lang
efstir í kjörinu, en í þriðja sæti
með 349 stig hafnaði vinur Nash,
Dirk Nowitzki hjá Dallas og rétt á
eftir honum kom Tim Duncan hjá
San Antonio með 328 stig og Allen
Iverson hjá Philadelphia fékk 240
atkvæði í fimmta sætinu.
Nash er aðeins sjötti bakvörð-
urinn til að hljóta verðlaun þessi
síðan þau voru afhent fyrst árið
1981, en hann var eins og allir vita
lykilmaður í sigursælasta liði
deildarinnar í ár og leiddi deildina
í stoðsendingum með yfirburðum.
Á LEIÐ Í ATVINNU-
MENNSKU? Hlyn-
ur Bæringsson
hefur átt í viðræð-
um við Woonaris í
hollensku úrvals-
deildinni í
körfuknattleik.
ÁFRAM Í UNDANÚRSLIT Reggie Miller og félagar í Indiana Pacers eru komnir í undanúrslit
Austurdeildarinnar í úrslitakeppni NBA-körfuboltans. AP
KÖRFUBOLTI Norðurlandamóti ung-
lingalandsliða í körfuknattleik
sem fram fór í Svíþjóð lauk í gær.
Drengjalið U-18 vann Noreg í leik
um 3. sæti, 86-81 en Íslendingar
náðu mest 20 stiga forystu í leikn-
um. Norðmenn voru ekki af baki
dottnir og skoruðu 16 stig í röð í
fjórða fjórðung en íslenska liðið
hélt haus í lokin og fékk brons.
Stúlknalið U-18 átti ekki mögu-
leika gegn Svíum og voru mest 33
stigum undir í úrslitaleik mótsins.
Íslensku stelpurnar áttu engu að
síður ágætis endasprett og
klóruðu í bakkann.
U-16 strákarnir töpuðu með 4
stigum gegn Svíum í jöfnum og
spennandi leik en hinir sænsku
voru þó alltaf skrefinu á undan.
Íslenska liðið komst aldrei yfir í
seinni háfleik og réði varamanna-
bekkur Svíþjóðar úrslitum í leikn-
um en bekkur liðsins skilaði 46
stigum í leiknum gegn einu frá
bekk Íslendinga. ■
Góður árangur íslensku unglingalandsliðanna á NM í Svíþjóð:
Tvö silfur og eitt brons
Í HAM GEGN NOREGI Brynjar Þór Björnsson átti stórleik gegn Norðmönnum og skoraði 26
stig. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM