Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.06.2005, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 21.06.2005, Qupperneq 4
KAUP Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 65,05 65,37 118,80 119,38 79,43 79,87 10,67 10,73 10,09 10,15 8,61 8,66 0,60 0,60 95,58 96,14 GENGI GJALDMIÐLA 20.06.2005 GENGIÐ HEIMILD: Seðlabanki Íslands SALA 4 21. júní 2005 ÞRIÐJUDAGUR Framkvæmdastjóri Tros í Sandgerði: Samkeppnin ver›i virk FLUTNINGAR Fiskútflytjendur telja samkeppnisstöðuna ekki breyt- ast mikið þó að FL Group, Blá- fugl og Flugflutningar renni saman. Níels Guðmundsson, framkvæmdastjóri Tros í Sand- gerði, telur samruna fyrirtækj- anna þriggja valda ekki jafn miklum áhyggjum og þróun gengisins. Níels segir að það skipti verulegu máli að samkeppni í flugfrakt sé virk þannig að hægt sé að fá flutninga á réttum kjör- um. Það sé hagsmunamál allra að sem mestur útflutningur eigi sér stað með flugi og því sé sam- eining FL Group, Bláfugls og Flugflutninga bara einn þáttur í heildarmyndinni. „Við erum í erfiðri stöðu út af háu gengi íslensku krónunnar og mikilli samkeppni erlendis við aðrar vörur og framleiðslu- lönd þannig að þetta er aðeins eitt af mörgum sem við höfum áhyggjur af,“ segir hann. „Ef við verðleggjum okkur út af markaðnum verður svo sem ekki mikið að gera fyrir flutn- ingsaðilana heldur og það er töluvert aðhald í því. Kostnaðurinn við að koma vörunni á markað má ekki vera ekki of hár,“ segir hann. -ghs Tillaga lög› fram um vei›ar í atvinnuskyni Formanni íslensku sendinefndarinnar á fundi Alfljó›ahvalvei›irá›sins telur a› draga sé saman me› fylkingum í afstö›unni til hvalvei›a. Lög› ver›ur fram tillaga á fundinum í Su›ur-Kóreu í dag um a› hefja hvalvei›ar í atvinnuskyni. HVALVEIÐAR Lögð verður fram til- laga á ársfundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins í dag um að hvalveiðum í atvinnuskyni verði stjórnað innan Alþjóðahvalveiðiráðsins. Verði til- lagan samþykkt mun það þýða að bann Alþjóðahvalveiðiráðsins á veiðum í atvinnuskyni leggst af og veiðar stjórnað af ráðinu verða leyfðar. Fundurinn, sem fer fram í Ulsan í Suður-Kóreu, hófst í gær en þá fóru fram nokkrar atkvæða- greiðslur um ýmis mál af stjórn- sýslulegu tagi samtakanna og fundarins. Stefán Ásmundsson, formaður íslensku sendinefndar- innar á fundinum, segist telja að draga sé saman með fylkingum hvalveiðisinna og andstæðinga þeirra. „Það var ein atkvæðagreiðsla sem féll bara á einu atkvæði en það var svo sem ekki stórt mál. Langstærsta málið snýst um stjórnunarkerfið um atvinnuveið- ar og það er það sem er verið að ræða í bakherbergjum hér á fund- inum. Á þessari stundu er ekkert ljóst hvort að við náum því í gegn að stjórnkerfi hvalveiðanna verði komið á en við erum að reyna koma því máli í réttan farveg,“ segir hann. Þrjá fjórðu hluta atkvæða á fundinum þarf til að aflétta bann- inu sem hefur gilt í um tuttugu ár. Helstu stuðningsaðilar hvalveiða á fundinum eru auk Íslendinga, Japanir og Norðmenn sem eru eina þjóðin í heiminum sem stund- ar hvalveiðar í atvinnuskyni en Japanir og Íslendingar stunda þær í vísindalegum tilgangi. Ásta Einarsdóttir, varaformað- ur íslensku sendinefndarinnar, segir að henni finnist sem miðju- hópur sé að myndast í afstöðunni til hvalveiða þar sem Bandaríkin, Holland, Svíþjóð og Finnland séu meðal stærstu þjóðanna en auk þeirra hafa komið inn ný ríki sem styðja hvalveiðar. Nokkur þeirra höfðu þó ekki atkvæðisrétt á fundinum í gær þar sem þau höfðu ekki greitt gjöld til ráðsins. Þær þjóðir sem eru hvað hörðust í afstöðu sinni gegn hvalveiðum eru Ástralía og Nýja-Sjáland. Í tillögum Hafrannsóknar- stofnunar fyrir árið í ár er gert ráð fyrir því að veiddar verði þrjátíu og níu hrefnur í vísinda- skyni en þeim verði svo fjölgað í eitt hundrað árið 2006. hjalmar@frettabladid.is Sauðárkrókur: Hass og hra›akstur LÖGREGLA Upp komu tvö fíkni- efnamál um helgina á Sauðár- króki. Lögregla fann við reglu- bundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi. Lögreglan á Sauðárkróki vildi láta þess getið að málin tengdust ekki vélhjólahátíðinni sem fram fór í bænum um helg- ina, en hjá lögreglu var mikil ánægja með mótið, sem fór vel fram. Þá stöðvaði lögreglan á Sauð- árkróki 19 ökumenn fyrir of hraðan akstur um helgina. Lögregla segir umferð hafa verið mikla, en gengið nokkuð vel. -óká VEÐRIÐ Í DAG SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580 Bakpokar -landsins mesta úrval Deuter Aircontact 50+10SL Sumartilboð 17.990 kr. Verð áður 19.990 kr. FLUGFRAKT Fiskútflytjendur hafa ekki þungar áhyggjur af samruna FL Group, Bláfugls og Flugflutninga. Þeir hafa meiri áhyggjur af þróun gengisins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /P JE TU R Héraðsdómur Reykjavíkur: Sekta›ur fyr- ir sterasmygl DÓMSMÁL 32 ára gamall maður var síðasta fimmtudag dæmdur til greiðslu 300.000 króna sektar í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir tilraun til að smygla hingað til lands ólöglegum sterum frá Danmörku árið 2003. Þá var manninum gert að greiða sakarkostnað upp á rúmar 800.000 krónur. Maðurinn smyglaði efnunum í tveimur aðskildum sendingum með flutningaskipi frá Árósum. Hluta efnanna faldi hann í bif- reiðarhreyfli og hinn hlutann í bifreið sem hann sendi til lands- ins. Lögregla haldlagði efnin við leit á vinnustað mannsins. Maðurinn játaði, en hann hef- ur ekki komist í kast við lögin áður. -óká FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FRÁ ÁRSFUNDI ALÞJÓÐAHVALVEIÐIRÁÐSINS Í GÆR Ole Samsing og Amalie Jessen, fulltrú- ar dönsku sendinefndarinnar, ásamt Stefáni Ásmundssyni, formanni íslensku sendinefnd- arinnar, á fundi hvalveiðiráðsins í Ulsan í Suður-Kóreu í gær. KRÓKURINN MAKAÐUR Fahad Al Sabah, olíumálaráðherra Kúvæt og forseti OPEC, gleðst eflaust yfir háu olíuverði þessa dag- ana. Olíuverðið hækkar: Fati› á tæpa sextíu dali BÚDAPEST, AP Heimsmarkaðsverð á olíu hélt áfram að stíga í gær og fór fatið hæst upp í tæpa sextíu dali. Ólíkt hækkununum á síðasta ári, sem helguðust einkum af ótraustu stjórnmálaástandi í olíuframleiðslu- ríkjunum, stafa hækkanirnar nú af því að framleiðslugeta olíuhreins- unarstöðva er í hámarki. Á sama tíma vex spurnin eftir eldsneyti hröðum skrefum, til dæmis vegna þess að ferðamannatíminn er í há- marki. Samtök olíuframleiðsluríkja, OPEC, hafa þegar hækkað fram- leiðsluþak sitt um 500.000 föt á dag en sú aðgerð náði ekki að slá á verð- hækkanirnar. Formælandi OPEC útilokaði ekki frekari framleiðslu- aukningu í samtali við fréttamenn í gær. ■ SÚDAN FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P FALLIÐ FRÁ ÁKÆRUM Súdönsk stjórnvöld hafa ákveðið að falla frá ákærum á hendur tveimur háttsett- um starfsmönnum hjálparsamtak- anna Læknar án landamæra og segjast vilja bæta samskiptin við samtökin. Mennirnir voru hand- teknir í síðasta mánuði fyrir róg- burð eftir að hafa bent á að kerfis- bundnar nauðganir og misþyrming- ar væru stundaðar í Darfur-héraði.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.