Fréttablaðið - 02.10.2005, Page 64
Á föstudag var hálf öld
liðin frá því að leikarinn
James Dean dó í bílslysi.
Ef miðað er við fjölda
þeirra mynda sem hann
lék í hefði hann átt að
falla í gleymskunnar dá.
Væri James Dean á lífi í dag
væri hann kominn vel á áttræð-
isaldurinn. Eflaust virtur leikari
með fjölda verðlauna á bakinu
ef miðað er við upphaf ferils
hans. Dean fæddist í Marion í
Indiana. Faðir hans var tann-
smiður og flutti með fjölskyld-
una til Los Angeles þegar
stráksi var fimm ára. Þegar
móðir hans lést fluttist Dean til
Miðvesturríkjanna á ný þar sem
hann ólst upp hjá frænda sínum
og frænku.
Hann snéri aftur til Kaliforn-
íu til að stunda nám í Santa
Monica-framhaldsskólanum og
UCLA. Leikferill Deans, eins og
svo margra, hófst í litlum sjón-
varpshlutverkum og ekki leit út
fyrir að honum tækist að fram-
fleyta sér með þessari iðju. Föð-
ur hans þótti ekki mikið til þess-
arar vinnu koma og taldi hana
ekki manni sæmandi. Dean var
þó ákveðinn og hélt fast við sitt.
Að ráði leiklistarkennarans,
James Whitmore, fluttist hann
til New York þar sem hann
reyndi að koma sér á framfæri í
leikhúsum.
Það má kannski segja að
James Dean hafi lagt grunninn
að ferli sínum þegar hann komst
í Actors Studio sem var talinn
einn virtasti leiklistarskóli
heims. Þar höfðu Julia Harris og
Marlon Brando verið við nám.
Eftir að hafa útskrifast fékkst
hann við leik í sjónvarpi en var
svo boðið hlutverk í leikritinu
32 2. október 2005 SUNNUDAGUR
ROPE YOGA
Bæjarhraun 22 / 220 Hafnarfjörður / 3. hæð
Skráning er hafin í síma 555-3536 GSM 695-0089
ropeyoga@internet.is • www.ropeyoga.net
stöðin Bæjarhrauni 22
NÝ BYRJENDANÁMSKEIÐ
folk@frettabladid.is>
fj
ör
ið
..
.
Leikarinn sem varð
átrúnaðargoð
UPPREISN ÁN MÁLSTAÐAR James Dean ásamt meðleikurum sínum Sal Mineo og Natalie Wood í Rebel without a cause.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/
G
ET
TY
I
M
AG
ES