Tíminn - 02.11.1975, Qupperneq 11
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
TÍMINN
n
Vaka eða víma
Flóttamannabúðir
i Reykjavík
í Lesbók Morgunblaðsins
núna um veturnætur er grein
eftir eina þá konu, sem fremst
hefur staðið i félagsskap
einstæðra foreldra. Þar er rætt
um það, að margar konur, sem
búið hafi með drykkjumönnum
lifi i stöðugri hættu vegna
þeirrar sambúðar. Enda þótt
þær hafi slitið samvistum við
manninn og losað sig þannig við
hann, vofi alltaf yfir sú hætta að
hann ryðjist ölóður inn á heimili
þeirra og vinni þar einhver
hryðjuverk. Höfundur segir að
við þessu þurfi eitthvað að gera,
en ekki koma fram ákveðnar til-
lögur um úrræði.
Nokkru áður var birt i Timan-
um viðtal við einstæða móður.
Þar var rætt um þessa sömu
hættu. Þar kom það fram að
nauðsynlegt væri að hafa i borg-
inni einhvers konar flótta-
mannabúðir fyrir fyrrverandi
sambýliskonur drykkjumanna.
t þeim flóttamannabúðum
þyrfti að vera svo öflugt og
harðsnúið setulið að það væri
við þvi búið að mæta innrás
drykkjusvolanna jafnvel þó að
þeir kæmu vopnaðir svo sem
ktundum hefur verið.
Samkvæmt þessum lýsingum
er nú hópur mæðra i Reykjavik
sem hefur raunverulega ástæðu
til að lifa i stöðugum ótta um lif
sitt og barna sinna vegna
áfengisneyzlu feðranna. Sú
hætta er I augum þessara lifs-
reyndu kvenna svo alvarleg að
þær kalla á opinberar aðgjörðir
hennar vegna.
Hér verður ekki lagt á móti
þvi að slikar flóttakvennabúðir
verði byggðar. Borgin gæti byrj-
að með þvi að byggja svo sem 50
eða 60 ibúðir. Sennilega yrði rik-
ið að leggja til setulið, þvi að
það myndi tilheyra lögreglu.
Varla er annað þorandi en að
hafa fasta varðstöðu við hverjar
útidyr og þvi væri hagkvæmt að
byggja háhýsi til þessara nota.
En jafnframt þvi sem vakin
er athygli á þessum neyðaróp-
um einstæðra mæðra og þeim
óskað verndar vil ég láta i ljós
þá von að þær gangi til liðs við
bindindishreyfinguna og fjölgi
áfengislausum heimilum. Þeir,
sem aldrei hafa vikið af vegi
bindindisins eru ekki hættulegir
i þessu sambandi. Það eru
drukknir menn sem konurnar
óttast. Þvi hlýtur að mega ætla
að þær vilji minnka drykkju-
skapinn. Þessir voðamenn, sem
hættan stafar af, ætluðu bara að
gleðja sig og hressa á vininu
þegar þeir byrjuðu neyzlu þess.
Þeim datt ekki i hug að drekka
frá sér vitið. Eins og þeir væru
ekki menn til að smakka vin án
þess að svo illa færi!
Svo er annað. Ef áfengið er
komið innn á heimilið er vafa-
samt hvaða gagn er að dyra-
vörzlu. Þá getur sá, sem nú er
gestur, heimilisvinur eða jafn-
vel heimamaður orðið jafn
hættulegur og fyrrverandi sam-
býlismaður. Mennirnir eru
meinlausir þangað til þeir eru
orðnir drukknir. Hættan stafar
af áfenginu. Eina örugga vörnin
er að losna við áfengið. Það
verður ekki gert nema með al-
mennum samtökum. Þeir sem
vita af lifshættu mæðra og
barna vegna drykkjuskapar og
skelfingar þess striðs, sem
þeirri hættu fylgir, hljóta að
koma til liðs við bindindis-
hreyfinguna.
Nema hvað?
H.Kr.
skidoo
ER FRA KANADA
SKI-DOO er framleiddur af BOMBARDIER
sem framleiddi fyrsta vélsleðann, framleiðir
einnig BOMBARDIER snjóbilana.
SKI-DOO er mest framleiddi vélsleðinn í
heimi, meir en milljón sleðar á ári.
SKI-DOO árg. 1976 bjóðum við á íslandi.
Eigum fyrirliggjand búnaö: i eftirfarandi -\ vélsleöa-
Áttavita Kveikjara Olíu
Burðargrindur Verkfærasett og. fl.
Yf irbreiðslur Spegla
Einnig körfur fyrir 2 menn aftan i vélsleða.
Gísli Jónsson & Co hf
Sundaborg — Klettagörðum 11 — Sími 86644
Einstakt tækifæri
Bókatilboð bókaklúbbs
<á
lýir félagar í Bókaklúbbi AB geta valið sér
ina af þessum bókum fyrir aðeins 100
rónur.
Kaupið bœkurú betra verði
1. ( fylgd með Jesú
Leifisögn um Nýja testamentiÖ í máli og myndum. 180
myndir. Falleg bók í stóru broti. Ætti að vera til á hverju
heimili. (Venjulegt verÖ: kr. 1.080.—).
2. Þorsteinn Gíslason — Skáldskapur og stjórnniál
LjóÖaúrval,. safn ritgerÖa; þættir úr stjórnmálasögu ís-
lands, æviágrip Þorsteins, o.fl. í samantekt Hagalíns.
(Venjulegt verÖ: kr. 1.080.—).
3. Frásagnir um ísland, Niels Horrebow
Ein merkilegasta heimild um Island, eins og háttaö var
hérlendis fyrir tveimur öldum. Bókin kom fyrst út 1752.
(Venjulegt verÖ: kr. 1.080.—).
4. Höfuðpaurinn, William Golding
Framtíðarskáldsaga af bestu gerÖ: skóladrengir berast
undan tortímandi atómstyrjöld upp á óbyggða eyju (
Kyrrahafi. (Venjulegt verð: kr. 720.—)
5. Hjartað I borði, Agnar ÞórÖarson
I þessari skáldsögu gefur Agnar meira í skyn en sagt er
með berum orðum á þann hátt, sem honum einum er
lagiöl (Venjulegt verð: kr. 720.—)
Veljið eina af þessum bókum — og gefið
val yðar til kynna á umsókn yðar í Bóka-
klúbb AB.
| & §fð
tp'
Þetta sérstaka tilboð er aðeins ætlað
nýjum féiögum. Nýir félagar tryggja
öllum félögum Bókaklúbbs AB áframhald-
andi vildarkjör á bókum klúbbsins, sem
eru betri en yfirleitt gerist á almennum
bókamarkaði.
Ath. Tilboð þetta stendur á meðan upplag
tilboðsbókanna endist, — og því miður
ekki lengur en til 15. nóvember.
★ Bókaklúbbur AB var stofnaður með vþað fyrir
augum, að hægt sé að gefa félögum klúbbsins
kost á fjó‘lbreyttu úrvali bóka á betra verði en
yfirleitt gerist á almennum bókamarkaði.
Félagar geta allir orðið, hafi þeir náð lögræðis-
aldri. Rétt til kaupa á bókum klúbbsins eiga
aðeins skráðir félagar Bókaklúbbs AB.
★ Bókaklúbbur AB mun gefa út 6—8 bækur ár-
lega. Félagsbækurnar mupu koma út með eins
eöa tveggja mánaða millibili.
★ Lim það bil einum mánuði áður en hver félagsbók
kemur út verður félögum Bókaklúbbs AB sent
Fréttabréf AB, þar sem bókin og höfundur hennar
verður kynntur, greint frá verði bókarinnar, stærð
hennar, o.fl.
1f Félagar Bókaklúbbs AB eru ekki skyldugir að
kaupa neina sérstaka bók. Félagar geta afþakkað
félagsbækur með því að senda Bókaklúbbi AB
sérstakan ívarseðil, sem prentaður verður í
hverju fréttabréfi AB.
1r Félagar Bókaklúbbs AB geta valið sér aðra bók en
þá, sem boðin er hverju sinni I Fréttabréfi, og
aukabækur að vild sinni. Velja má bækurnar eftir
skrá, sem birt er ( Fréttabréfinu. Þá geta félagar
keypt bækur til viðbótar samkvæmt sértilboði,
sem veitt verður öðru hvoru.
1t Ef bók er afþökkuð, eða önnur valin I hennar
stað, eða aukabækur pantaðar, þarf fyrrnefndur
svarseðill að hafa borizt Bókaklúbbi AB fyrir
tilskilinn tlma. Að öðrum kosti verður litið svo á.
að félaginn óski að eignast þá félagsbók, sem
kynnt er í Fréttabréfinu. Félagsbókin verður þá
send ásamt póstgíróseðli. Félaginn endursendir
síðan póstgíróseðilinn ásamt greiðslu í næsta
pósthús eða bankastofnun.
1c Sú eina skylda er lögð á herðar nýrra félaga
Bókaklúbbs AB að þeir kaupi einhverjar 4 bækur
fyrstu18 mánuðina, sem þeir eru félagar. Félags-
gjöld eru engin. Áskriftargjald Fréttabréfsins er
ekkert.
Félagar Bókaklúbbs AB geta sagt upp félagsrétt-
indum sínum með þv( að segja sig skriflega úr
klúbbnum með eins mánaðar fyrirvara. Sami
uppsagnarfrestur gildir fyrir nýja félaga, en þó
aðeins að þeir hafi lokið kaupum á fjÓrum bókum
innan átján mánaða.
Félagar i Bókaklúbbi AB fó:
★ Fréttabréf um nýjar bækur
★ 6—8 vandaðar bækur ó óii
★ Félagsréttindi ón félagsgjalda
★ Bækur póstsendar sér að
kostnaðarlausu
★ Frjóls val bóka ó lógu verði
★ Bækur í góðu og vönduðu bandi
■ .i Eg vil vera með _____ _
Umsókn nýrrafélaga
Vinsamlega skróið mig ( Bókaklúbb AB.
Ég hef kynnt mér félagsreglurnar og geri mér grein
fyrir kvöðum nýrra félaga um kaup á bókum.
Nafn
Heimilisfang
Nafnnúmer
Ég vel mér bók nr.
ALMENNA BÓKAFÉLAGIÐ
Austurstræti 1 8, Reykjavlk Pósthólf 9 Slmar 1 9707 & 1 6997