Tíminn - 02.11.1975, Qupperneq 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 2. nóvember 1975.
LÖGREGLUHATARINN
56 Ed McBain Þýðandi Haraldur Blöndal
V J J
slangur af strætisvagnabílstjórum. Þeir áttu aö sækja
krakka úr fátækrahverfunum og leyfa þeim að dorga
gegnum ísvök í vatninu. Því var svo frestað.
— Hvers vegna?
— Það var of kalt.
— Hvenær voru strætisvagnabílstjórarnir hér?
— Þeir komu snemma morguns og hinkruðu hér eitt-
hvað f rameftir þar til við f réttum að hætt hefði verið við
allt.
— Sást þú einhvern þeirra vera að bauka við Cadillac-
inn?
— Nei. Þú ert ekki á rétri braut í þessu máli. Bílarnir
voru allir grandskoðaðir í gær og fóru á götuna i fyrsta
f lokks ástandi. Sprengjan hlýtur að hafa verið sett í bíl-
inn EFTIR að hann kom á götuna.
— Nei. Það er með öllu útilokað, herra Coyle.
— Ekki var henni komið fyrir hér á þessu verkstæði.
— Þú ert mjög viss í þinni sök.
— Ég var að segja þér að bílarnir voru grandskoðaðir.
Þú hefur kannski ekki heyrt það.
— Skoðaðir þú þá sjálfur, herra Coyle?
— Nei, ég hef nóg annað að gera þó ég sé ekki að yf ir-
fara tuttugu og f jóra Cadillac-bíla, f jórtán strætisvagna
og átta mótorhjól.
— HVER skoðaði þá bílána, herra Coyle? Var það einn
af bifvélavirkjunum sem vinna hér?
— Nei. Það var eftirlitsmaður frá bifreiðaeftirliti
borgarinnar.
— Sagði hann að allt væri í lagi með bílana?
— Hann grandskoðaði þá nákvæmlega frá skrúfu til
skrúfu. Hann kannaði hvert einsta ökutæki á verkstæð-
inu. Við fengum vottorð út á það að allt væri í lagi með
bílana.
— Leit hann á vélarnar í bílunum?
— Hann skoðaði þá að innan og utan, allt sem skoða
þarf. Þetta tók hann nærri sex klukkustundir.
— Hann hefði með öðrum orðum fundið sprengju ef
um sprengju hefði verið að ræða?
— Einmitt það sem ég var að segja.
— Lét hann þig fá eitthvað skrif legt um að búið væri
að kanna bílana og ekkert væri að þeim?
— Þvi spyrðu? Ertu að reyna að varpa af þér sökinni,
spurði Coyle.
— Nei, ég....
— Ætlar þú að koma sökinni á bifreiðaeftirlitið?
— Við ætlum að komast til botns í þvi hvernig honum
gat yf irsést sprengja, sem var án alls efa undir vélarhlíf
þessa bíls. Það ætlum við okkur að gera, herra Coyle.
— ÞAÐ VAR ENGIN SPRENGJA. Það er svarið.
— Enn einu sinni ítreka ég þetta, herra Coyle. Rann-
sóknarstofan tilkynnti okkur að í niðurstöðum hefði
komið í Ijós að...
— AAig skiptir engu hvað rannsóknarstofan sagði eða
sagði ekki. Ég ítreka það enn einu sinni að sérhver þess-
ara bíla var grandskoðaður í gær og það er með öllu úti-
lokað að sprengja hafi verið falín undir vélarhlíf vara-
borgarstjóra-bílsins. Það setur punktinn yfir i-ið. Coyle
lauk máli sínu með því að spýta á gólfið af áherslu-
þunga.
— Sást þú með eigin augum þegar bill varaborgar-
stjórans var skoðaður, herra Coyle, spurði Kling.
— Ég sá það svo sannarlega með mínum eigin augum.
— Sást þú sjálfur þegar vélarhlífinni var lyft?
i — Svo sannarlega.
— Þú værir fús til að sverja að gaumgæfilega hafi
verið farið yfir allt sem í vélarrúminu er.
— Hvað áttu við?
— Sást þú með EIGIN AUGUAA þegar eftirlitsmaður-
inn kannaði vélina?
— Ég horfði ekki yfir öxlina á honum, ef þú átt við
það.
— Hvar varst þú eiginlega staddur, þegar bíll vara-
borgarstjórans var kannaður?
— Ég var þar sem ég er nú.
— Hér á þessum punkti?
— Nei. Ég var þarna inni á skrifstof unni. En ég sá hér
inn. Það er stór glerrúða á skrifstofunni, eins og þú
kannski sérð.
— Og þú sást eftirlitsmanninn lyfta vélarhlíf inni á bíl
varaborgarstjórans?
— Hér eru tuttugu og fjórir Cadillac-bílar. Hvernig
vissir þú að þessi umræddi bíll var bíll hans?
— Það sá ég af bílnúmerinu. Það er merkt VBO og svo
bílnúmerið. Bíll Vale borgarstjóra er merktur á svipað-
an máta, BO fyrir borgarstjóri og svo númerið. Svo er
líka.
— Allt í lagi. Það var augljóslega bíll hans. Og þú sást
greinilega þegar..
— Nei hættu nú, laxi. Eftirlitsmaðurinn var rúman
hálftíma með hvern einasta bíl. Þú skalt ekki segja mér
-að þetta hafi ekki verið nákvæm skoðun.
anst að ^ Þeir geta ekki
iðu mennirnir verið mjög slæmir
iðu lifi okkar í,~*1 ■
111
nmí 1:
Sunnudagur
2. nóvember
8.00 Morgunandakt. Herra
Sigurbjörn Einarsson bisk-
up flytur ritningarorð og
bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög
9.00 Fréttir. Útdráttur úr
forustugreinum dagblað-
anna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir). a. Félagar i
Vinaroktettinum leika
Divertimento nr. 7 i D-dúr
fyrir fimm strengjahljóð-
færi og tvö horn (K334) eftir
Wolfgang Amadeus Mozart.
b. Georgina Dobré og Carlos
Villa kammersveitin leika
Klarinettukonsert i G-dúr
eftir Johann Melchior Molt-
er. c. Dinu Lipatti og hljóm-
sveitin Philharmonia leika
Pianókonsert i a-moll op. 54
eftir Robert Schumann,
Herbert von Karajan
stjórnar.
11.00 Messa I Frikirkjunni i
Reykjavik. Prestur: Séra
Þorsteinn Björnsson. Org-
anleikari: Sigurður ísólfs-
son.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Hlitarnám. Dr. Sigriður
Valgeirsdóttir flytur hádeg-
iserindi.
14.00 Staidrað við á Bakka-
firði. Jónas Jónasson litast
um og spjallar við fólk.
15.00 Miðdegistónleikar: Frá
tónlistarhátiðinni i Vinar-
borg i júni sl. Sinfóniu-
hljómsveitin i Vin leikur.
Einleikari Nathan Milstein.
Stjórnendur: Karl Böhm og
Julius Rudel. a. Forleikur
að óperettunni „Leðurblök-
unni” eftir Johann Strauss.
b. Fiðlukonsert i a-moll eftir
Karl Goldmark. c. Sinfónla
nr. 5 i B-dúr eftir Franz
Schubert. d. Dónárvalsinn
eftir Johann Strauss.
16.15 Veðurfregnir. Fréttir.
16.25 Framhaidsleikritið:
„Eyja i hafinu” eftir
Jóhannes Helga II. þáttur:
„Ströndin”. Leikstjóri:
Þorsteinn Gunnarsson.
Persónur og leikendur:
Murtur, Arnar Jónsson.
Læknirinn, Þorsteinn O.
Stephensen. Séra Bernharð,
Sigurður Karlsson. Úlfhild-
ur Björk, Valgerður Dan.
Frú Andrea, Þóra Borg.
Smiðskona, Margrét Helga
Jóhannsdóttir. Málari, Arni
Tryggvason. Klængur, Jón
Sigurbjörnsson. Aðrir leik-
endur: Sigrún Edda Björns-
dóttir, Helga Bachmann,
Jón Hjartarson og Helgi
Skúlason.
17.15 Tónleikar
17.40 Útvarpssaga barnanna:
„Tveggja daga ævintýri”
eftir Gunnar M. Magnús.
Höfundur les (4).
18.00 Stundarkorn með
belgiska fiðluleikaranum
Arthur Grumiaux. Tilkynn-
ingar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.25 „Eftirþankar
Jóhönnu”.. Vésteinn
Lúðviksson rithöfundur les
úr nýrri bók sinni.
20.00 íslensk tóniist. Gisli
Magnússon leikur á pianó.
a. Fimm pianólög eftir Sig-
urð Þórðarson. b. Fjórar
abstraktsjónir eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson. c.
Barnalagaflokkur eftir Leif
Þórarinsson.
20.30 Um hella og huldufólks-
trú undir Eyjafjöllum. Gisli
Helgason og Hjalti Jón
Sveinsson tóku saman þátt-
inn.
21.15 Frá tónleikum Oratoriu-
kórs Dómkirkjunnar i
kirkju Filadelfiusafnaðar-
ins 12. f.m. Oratoriukórinn
og einsöngvararnir Sólveig
Björling, Svala Nilsen, Hu
bert Seelow og Hjálmar
Kjartansson flytja ásamt
félögum i Sinfóniuhljóm-
sveit íslands, „Requiem” I
c-moll eftir Luígi Cherubini,